Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 91
og þráhyggjusýkl!
LÁGMARKS-
SKAMMTUR
ÁBENDING
HÁMARKS-
SKAMMTUR
50 mg á dag Þunglyndi 200 mg á dag
50 mg á dag Áráttu- og þráhyggjusýki 200 mg á dag
50 mg á dag* Ofsakvíði 200 mg á dag
* Ráðlagt er að hefja meðferð með 25 mg á dag i eina viku.
Zoloft - Pfizer. Hver tafla inniheldur: Sertralinum INN, klóríð, samsvarandi Sertralinum INN 50 mg. Ábendingar: Þunglyndi. Áráttu-
og þráhyggjusýki (obsessive compulsive disorder). Felmtursköst (ofsahræðsla (panic disorder)), með eða án víðáttufælni (agoraphobia).
Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Ekki skal gefa sertralín sjúklingum, sem nota MAO-hemjandi lyf og ekki fyrr en 2 vikum eftir að slíkri
meðferð hefur verið hætt. Gæta ber varúðar við notkun lyfsins hjá sjúklingum sem eru með sykursýki og meðhöndlaðir með insúlíni eða
sykursýkilyfjum af súlfónýlúreaflokki. Meðganga og brjóstagjöf: Dýratilraunir benda ekki til að lyfið hafi áhrif á frjósemi eða hafi fósturskemmandi
áhrif, en mjög háir skammtar hafa leitt til aukinnar dánartíðni nýfæddra dýra. Ber því að forðast notkun lyfsins á meðgöngu nema brýna nauðsyn
beri til. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkunin er ógleði u.þ.b. 20%.
Algengar (> I %): Almennar: Aukin svitamyndun. Taugakerfi: Vöðvaskjálfti, truflun á sáðláti. Meltingarfæri: Ógleði, munnþurrkur, niðurgangur,
meltingaróþægindi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Geðrænar: Kvíði. Milliverkanir: Samtímis gjöf MAO-hemjandi lyfja getur valdið skyndilegum háþrýstingi
og oförvunarástandi. Samtímis notkun litíums getur aukið tiðni aukaverkana sertralins, einkum ógleði, skjálfta og kvíða.Við samtímis gjöf
címetidins getur orðið aukning á blóðstyrk sertralins. Skammtastærðir handa fullorðnum: Við þunglyndi og áráttu-og þráhyggjusýki:
Upphafsskammtur er 50 mg/dag. Ef þörf krefur, má auka þennan skammt um 50 mg á dag í þrepum á nokkrum vikum í allt að 200 mg/dag. Sé
þörf á langtímanotkun lyfsins er venjulegur viðhaldsskammtur 50 mg á dag.Við felmtursköstum (ofsahræðslu) með eða án víðáttufælni:
Upphafsskammtur er 25 mg á dag í eina viku, sem síðan er aukinn í 50 mg á dag. Ef þörf krefur má auka þennan skammt um 50 mg á dag í
þrepum á nokkrum vikum. Hámarksskammtur sem mælt er með er 200 mg/dag. Skammtastærðir handa öldruðum eru þær sömu og að framan
er getið. Árangur meðferðar getur komið fram innan 7 daga, en oftast þarf 2-4 vikna meðferð áður en full verkun næst. Skammtastærðir
handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð l.júlf 1998: 28 stk. (þynnupakkað) - kr. 3.874, 98 stk. (þynnupakkað) -
kr. 12.418. Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðslufyrirkomulag: B.
Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,210 Garðabær.
Heimildir: Sérlyfjaskrá 1998.