Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 54
760
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
mikill lestur og fólk vill ein-
beita sér að honum til þess að
verða fært um að taka réttar
tæknilegar ákvarðanir. En sið-
fræðin leikur oft stórt hlutverk
þegar taka þarf réttar ákvarð-
anir og læknanemar þurfa
ákveðna þjálfun í því að sjá
manneskjuna en ekki bara sam-
spil líffærakerfa. Eg geng
kannski ekki eins langt og Páll
Skúlason rektor sem vill helst
ekki útskrifa lækna nema þeir
hafi lokið gráðu í heimspeki,
en það þarf að þjálfa verðandi
lækna í því að bera kennsl á
þau siðferðilegu verðmæti sem
eru í húfi og þeir hafa milli
handanna. Og í því er gildi
svona ráðstefna ekki hvað síst
fólgið,“ segir Magnús Hjalta-
lín læknanemi.
-ÞH
Norræn samtök um læknaskop
verða stofnuð á næsta ári
- Rætt viö Bjarna Jónasson lækni sem tekur þátt í undirbúningi
stofnfundar
í norrænum læknablöð-
um hafa að undanförnu
birst fréttir af stofnun nýrra
samtaka lækna sem hafa
hlotið vinnuheitið Nordisk
selskap for medisinsk humor.
Meðal þeirra sem taka þátt í
undirbúningnum er Bjarni
Jónasson heimilislæknir á
Heilsugæslunni í Garðabæ,
en auk hans sátu undirbún-
ingsfund í Osló í sumar þrír
Norðmenn og fimm Danir.
Þar var meðal annars
ákveðið að boða til stofn-
fundar samtakanna í Kaup-
mannahöfn um miðjan jan-
úar á næsta ári.
Bjarni segist hafa rætt
óformlega við starfsmenn Is-
lenskrar málstöðvar hvernig
best væri að þýða hugtakið
„medisinsk humor“ og varð
niðurstaða þeirra sú að skásta
orðið væri læknaskop. En
hvað er þetta læknaskop? Eru
það brandarakarlar (og -kerl-
ingar) úr læknastétt sem kepp-
ast við að segja fyndnar sögur
af kollegunum? Nei, svo er
ekki, heldur snýst málið um
það hvernig nota má skop og
almennan léttleika til þess að
Bjarni Jónasson hcimilislæknir á skrif-
stofu sinni í Heilsugæslunni í Garðabæ.
gera tilveruna bærilegri fyrir
lækna og samskiptin við sjúk-
lingana auðveldari og ekki
hvað síst ánægjulegri.
En hvað segir Bjarni um
gildi skopsins fyrir læknis-
fræðina? Getur það nýst við
meðferð og lækningu sjúk-
dóma?
Hláturinn lengir lífið -
og bætir það
„I hefðbundnu læknanámi
er okkur kennd ákveðin að-
ferð við að nálgast vandamál-
in. Við lesum okkar bækur og
þær rykfalla svo í hillunum
meðan við umgöngumst sjúk-
lingana eins og eðli okkar og
kunnátta segir til um. En ég
hef fundið fyrir því í starfi
mínu að ef ég er meðvitaður
um hinar skoplegri hliðar til-
verunnar þá líður mér betur.
Það skapar mér vissan létt-
leika og ég er ekki í vafa um
að það getur líka gagnast sjúk-
lingunum þó að þeir finni það
ekki að maður sjái einhverjar
skoplegar hliðar á hlutunum.
Eg skopast auðvitað ekki að
sjúklingunum, það má ekki
skilja mig þannig. En skopið
gerir mér fært að nálgast
vandamálin á annan hátt en ef
ég beiti eingöngu þessum
hefðbundnu aðferðum sem ég
lærði fyrir áratugum og hef
tamið mér á starfsferlinum."
- Ertu í raun ekki bara að
sanna réttmæti þess að hlátur-
inn lengi lífið?
„Nú er ég að verða fimm-
tugur og ég veit ekki hvort
það er hlátrinum að þakka, en
ég held að hann geri lífið létt-