Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 34
35
stökkbreytt séu verr differentieruð en spóradísk
æxli en sams konar upplýsingar um BRCA2 tengd
æxli hafa ekki legið fyrir. Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna meinafræðilega og líf-
fræðilega þætti BRCA2 tengdra æxla í íslenskum
krabbameinsfjölskyldum og bera þá saman við
sömu þætti í viðmiðunarhópi.
Aðferðir: Athuguð voru 40 BRCA2 tengd
brjóstakrabbamein úr fimm íslenskum fjölskyld-
um sem hafa sömu stökkbreytingu í BRCA2 gen-
inu (999del5). Athugað var meðal annars stærð
æxlisins, hvort meinvörp væru í holhandareitlum,
niðurstöður estrógen og prógesterón mælinga,
æxlisgerð og æxlisgráða. Gerð var DNA flæði-
greining og athugað hvort æxli væru tvílitna eða
mislitna og fjöldi frumna í S-fasa ákvarðaður.
Niðurstöður: Flestir sjúklingar (34) voru með
ductal carcinoma en tveir höfðu lobular carcin-
oma og einn var með medullary carcinoma.
BRCA2 tengdu æxlin höfðu marktækt hærri est-
rógen viðtakagildi en spóradísku æxlin
(p=0,0002) en voru verr differentieruð
(p=0,003). BRCA2 æxlin höfðu þannig mark-
tækt færri tubuli, meiri kjarnabreytileika og fleiri
kjarnadeilingar en sporadísku æxlin. Frumufjölg-
un (S-fasi) var einnig marktækt hærri í BRCA2
tengdu æxlunum (p=0,02) en ekki var munur á
DNA innihaldi (ploidy).
Ályktun: Arfgeng brjóstakrabbamein tengd
999del5 stökkbreytingunni í BRCA2 geninu eru
illa differentieruð æxli og fleiri þættir en þessi
ákveðna stökkbreyting ákvarða æxlisgerðina.
E-36. Krabbamein í efri loftvegum í ís-
lendingum 1975-1994
Margrét Leópoldsdóttir, Jónas Hallgrímsson,
Pórarinn Sveinsson
Frá Rannsóknastofu Hl í meinafrœði, krabba-
meinslcekningadeild Landspítalans
Inngangur: Nýgengi illkynja æxla í efri loftveg-
um hefur ekki verið það sama hérlendis og á
hinum Norðurlöndunum. Æxli í nefkoki hafa
verið mun algengari hér hjá báðum kynjum og
barkakýlisæxli í konum algengari en hjá kynsystr-
um þeirra á Norðurlöndunum. Ráðist var í að
gera hliðstæða rannsókn og gerð var árið 1981 en
þá voru skoðuð öll æxli í efri loftvegum frá árun-
um 1955-1974 og þau flokkuð samkvæmt reglum
Alþjóðaheilbrigðistofnunarinnar (WHO) 1978.
Áðferðir: Öll upphafleg æxli í efri loftvegum í
krabbameinsskrá KI sem send voru til greiningar
á 20 ára tímabili, 1975-1994, voru endurskoðuð og
flokkuð eftir WHO flokkun frá 1990.
Niðurstöður: Alls voru æxlin 187 þar af 40 í
konum og 146 í körlum. I báðum kynjum voru
æxli algengust í barkakýli eða 110 (20 konur og 90
karlar). Æxli í nefi komu næst í röðinni hjá konum
(10) en hjá körlum deildu æxli í nefkoki (19) og
nefi (18) með sér öðru sætinu.
Ályktanir: Efri loftvega illkynja æxli voru al-
gengari á íslandi árin 1974-1995 (187) miðað við
árin 1955-1975 (114). Munar þar mestu um að
nýgengi barkakýlisæxla hefur aukist mikið á ís-
landi, nær þrefalt í körlum og tvöfalt í konum.
Nýgengi illkynja æxla í afholum nefs hefur minnk-
að en nýgengi illkynja æxla í nefi aukist.
E-37. Breytt tjáning E-kadheríns í
brjóstakrabbameinsæxlum. Orsakir og
afleiðingar
Kristján Skúli Ásgeirsson*, Jón Gunnlaugur Jón-
asson**, Kristrún Ólafsdóttir**, Helga M. Ög-
mundsdóttir*
Frá *Rannsóknarstofu KÍ í sameinda- og frumu-
líffrœði, **Rannsóknastofu HÍ í meinafrœði
Ifarandi vöxtur krabbameinsfrumna er háður
frumusamloðun. In vivo og in vitro tilraunir hafa
sýnt fram á að minnkuð eða trufluð tjáning E-
kadheríns í frumuhimnu krabbameinsfrumna geti
skipt máli við íferð þeirra, en E-kadherín er Ca2+
háð bindisameind tjáð á frumuhimnunni. Stökk-
breytingar í E-kadherín geninu hafa fundist í
magakrabbameini og tengjast ífarandi vexti og
auknum líkum á myndun meinvarpa. Rannsóknir
okkar á brjóstakrabbameinsfrumulínum hafa
sýnt að interleukin-6 (IL-6) minnkar frumusam-
loðun með því að trufla tjáningu á E-kadheríni. í
þessari rannsókn höfum við skoðað E-kadherín
tjáningu í 66 brjóstakrabbameinssýnum með mót-
efnalitunaraðferð. Jafnframt þessu notuðum við
erfðamark nálægt E-kadherín geninu (16q22.1) til
að skoða úrfellingar á þessu svæði. Að lokum
mældum við IL-6 í plasma 60 þessara sjúklinga.
Niðurstöður okkar sýna að 16 af 66 (24%) sýn-
anna sýndu jákvæða litun fyrir E-kadheríni, en 50
þeirra (76%) sýndu blandaða eða neikvæða litun.
Öll sex lóbúlar brjóstakrabbameinin sýndu bland-
aða eða neikvæða litun. Eitlameinvörp líktust í
langflestum tilfellum frumæxlinu. Tap á arf-
blendni greindist í 15 af 36 sýnum (42%) sem
upplýsingar fengust úr. Tap á arfblendni tengdist
marktækt blandaðri og neikvæðri E-kadherín lit-
un (p=0,013). Hækkuð plasma gildi á IL-6 (>6
pg/ml) reyndust vera í 16 af 60 sjúklinga (27%), en
engin tengsl voru milli hækkaðra gilda og E-kad-
herín tjáningar. Algert tap á E-kadherín tjáningu
virðist tengjast því að krabbameinið taki sig fyrr
upp en annars en fjöldi sjúklinga og tímabilið sem
skoðað var reyndist ekki fullnægjandi til ná-