Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Qupperneq 65
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 34
65
V-2. Hæfíleiki frumna til framleiðslu á
IgE
Kristbjörn Orri Guðmundsson*, Leifur Porsteins-
son*, Sveinn Guðmundsson*, Ásgeir Haralds-
son**
Frá *Blóðbankanum, **Barnaspítala Hringsins
Landspitalanum
Inngangur: Fjölmargar rannsóknir hafa verið
gerðar til að freista þess að finna forspárgildi fyrir
myndun ofnæmis og astma hjá börnum og full-
orðnum. Meðal rannsóknanna eru mælingar á
IgE í naflastrengsblóði nýfæddra barna. Rann-
sóknir þessar hafa ekki gefið óyggjandi niðurstöð-
ur. Mögulegt kann að vera að betri forspárgildi
fáist ef reynt er að meta hæfileika frumna til að
hefja framleiðslu IgE við ákveðna hvatningu.
Rannsókn okkar var sett upp til að beita aðferð-
um ónæmisfræðinnar við að mæla hæfni frumna
til framleiðslu á IgE undir ákveðnum kringum-
stæðum.
Aðferðir: Blóði var safnað úr heilbrigðum, full-
orðnum einstaklingum og einstaklingum með of-
næmi. Jafnframt fékkst blóð úr sjúklingi með of-
myndun á IgE (hyper-IgE syndrome). Frumulín-
ur voru gerðar með EBV-sýkingu. Mæld var
hæfni frumulínanna til framleiðslu á IgE með
ELISPOT aðferð. Bornar voru saman niðurstöð-
ur án hvatningar og með IL4-hvatningu.
Niðurstöður: Blettir (spots) voru fáir án hvatn-
ingar en margfölduðust við hvatningu með IL4.
Sjúklingur með ofmyndun á IgE hafði umtals-
verðan fjölda bletta án hvatningar og breyttist
fjöldinn ekki við IL4 hvatningu.
Ályktun: Aðferðin er greinilega nothæf við mat
á fjölda IgE framleiðandi frumna. Ljóst er einnig
að hvetja má frumuna til IgE framleiðslu með
IL4, svo sem þekkt er. Athyglisvert er að fjöldi
IgE framleiðandi frumna hjá sjúklingi með of-
myndun á IgE breyttist ekki við hvatninguna.
Fyrirhugað er að beita aðferðinni á nafla-
strengsblóð nýfæddra einstaklinga og meta for-
spárgildi blettafjölda með tilliti til ofnæmis og
astma.
V-3. Þéttni IgD í sermi barna
Soffía G. Jónasdóttir*, Weemaes CMR **, van de
Wiel G ***,Klasen 1 ***, Göertz /***, Ásgeir
Haraldsson*
Frá *Barnaspítala Hringsins Landspítalanum,
**barnadeild Háskólasjúkrahússins í Nijmegen,
Hollandi, ***rannsóknastofu Háskólasjúkra-
hússins í Nijmegen
Inngangur: Hlutverk IgD í ónæmiskerfi manna
og dýra er ekki að fullu ljóst. Talið er að IgD hafi
hugsanlega hlutverki að gegna í minni ónæmis-
kerfisins eða í stjórn þess. Rannsóknir hafa ekki
sannað óyggjandi þessar kenningar. Ofmyndun
IgD (hyper IgD syndrome) er heilkenni sem ein-
kennist af hita, stækkuðum eitlum og einkennum
um sjálfsónæmissjúkdóm. Orsakir heilkennisins,
sem oftast byrjar í barnæsku, eru óljósar.
í heilbrigðum fullorðnum einstaklingum er
magn IgD í sermi yfirleitt lágt. Einnig er almennt
álitið að magn IgD í börnum sé lágt þó ákveðin
viðmiðunarmörk séu ekki til staðar. Skortur á
slíkum viðmiðunarmörkum er frekari rannsókn-
um á IgD í börnum til trafala.
Tilgangur rannsóknarinnar var að finna við-
miðunarmörk fyrir IgD í sermi heilbrigðra barna.
Aðferðir: Sermi var safnað úr heilbrigðum ís-
lenskum börnum og magn IgD mælt með ELISA
aðferð. Mælingar fóru fram við Háskólasjúkra-
húsið í Nijmegen
Niðurstöður: Niðurstöður sýndu að IgD er
mjög lágt í nýfæddum börnum og ungbörnum og
hækkar í barnæsku. Um 10-12 ára aldur virðast
börnin hafa náð fullorðinsgildum.
Umræða: Niðurstöður okkar benda til að IgD
hækki í barnæsku. A þessum árum eru börn einn-
ig útsett fyrir fjölmargar nýjar sýkingar sem
ónæmiskerfið þarf að vinna bug á og læra að
þekkja. Þessar upplýsingar geta verið mikilvægar
í frekari rannsóknum á IgD, þar með talið rann-
sóknum á minni og stjórnun ónæmiskerfisins.
V-4. Fyrirburar, innan við 1500 gr,
fæddir á árunum 1976-1995
Hördur Bergsteinsson, Atli Dagbjartsson, Gestur
Pálsson, Gunnar Biering
Frá vökudeild Barnaspítala Hringsins Landspítal-
anum
Tilgangurinn með þessari rannsókn var að
skoða árangur meðferðar á minnstu fyrirburum á
vökudeild Barnaspítala Hringsins á árunum 1976-
1995. Gagna var aflað úr fæðingarskráningu, úr
sjúkraskýrslum barna og mæðra þeirra barna sem
voru léttari en 1500 gr við fæðingu. Á þessu árabili
voru lögð inn á vökudeildina 455 börn undir 1500
gr að fæðingarþyngd, 297 (65%) lifðu, 158 (35%)
dóu. Lifandi fædd börn á öllu landinu voru
87.889. Þessi hópur barna, sem er léttari en 1500
gr við fæðingu, er því um 0,516% af öllum lifandi
fæddum börnum á tímabilinu, hins vegar er hlutur
þessa hóps í burðarmálsdauða um 25%.
Ef hópurinn er skoðaður í heild kemur í ljós að
lífslíkur aukast úr um 50% á fyrstu árunum í um
80-90% síðustu árin. á þessu 20 ára tímabili.
Lífslíkur eru háðar meðgöngulengd og fæðing-