Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Síða 33

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Síða 33
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37 33 Á árunum 1996 og 1997 var kjarnamögnunar- próf gert hjá 95% þeirra sem höfðu lifrarbólgu C mótefni og var það jákvætt hjá 168 af 179 (77% alls; 79% karla, 70% kvenna). Algengi mótefna eftir aldursflokki 1997. Aldur Fjöldi Jákvætt mótefni (%) jákvætt mótefni (p<0,0001) <20 32 0 0 20-29 117 43 37 30-39 100 59 59 40+ 38 22 58 Alls 287 124 43 Ályktanir: 1. Lifrarbólga C er algeng meðal sprautufíkla á Vogi en tíðnin er lægri en víða annars staðar á Vesturlöndum. 2. Sjúkdómur- inn er jafn algengur meðal kven- og karlfíkla. 3. Flestir eru nteð veirudreyra. 4. Tíðnin hækk- ar með aldri og hættan á smiti eykst með lengd sprautunotkunar. E-22. Ofnæmiseinkenni hjá íslenskum börnum Herbert Eiríksson", Björn Ardal", Asbjörn Sig- fússon2>, Björn Rúnar Lúðvíksson21, Héðinn Sig- urðsson21, Helgi Valdimarsson21, Ásgeir Har- aldsson" Frá "Barnaspítala Hringsins, 2)rannsóknastofu HI [ ónæmisfrœði Inngangur: Algengi ofnæmis virðist fara vaxandi á Vesturlöndum. Undirrót ofnæmis er enn aðeins þekkt að hluta. Til að afla upplýs- inga um ofnæmi hjá íslenskum börnum höfum við fylgt eftir hópi þeirra sem fædd eru 1987. Efniviður og aðferðir: Upphaflega voru 179 börn skoðuð við 18-23 mánaða aldur, af þeim var 161 endurmetið við fjögurra ára aldur og við átta ára aldur voru 134 barnanna metin. Með sögu, skoðun og húðprófum voru greindir ofnæmissjúkdómarnir astmi, exem, ofnæmis- kvef og fæðuofnæmi. Niðurstöður: Fjöldi 20 mánaða barna með ofnæmi var 75/179 (41,9%), fjögurra ára voru 72/161 (44,7%) með ofnæmi og átta ára45/134 (33,6%). Hjá 20 mánaða börnum voru astmi og exem ríkjandi. Algengi exems fór minnkandi með aldri og við átta ára aldur hafði dregið úr algengi astma. Ekkert barn greindist með of- næmiskvef fyrir tveggja ára aldur, en átta ára höfðu 10% barna einkenni þess. Af börnum með ofnæmi höfðu 20-25% fleiri en eitt of- næmiseinkenni. Um tveir þriðju hlutar þeirra barna sem höfðu astma og/eða exem fyrir tveggja ára aldur voru einkennalaus við átta ára aldur. Alvarleg ofnæmiseinkenni voru mjög sjaldgæf í öllum aldurshópum. Liðlega þriðj- ungur átta ára barna með ofnæmi var með já- kvæð húðpróf. Algengastur ofnæmisvaka var köttur. Um 60% barna með ofnæmi koniu úr fjölskyldum með sögu um ofnæmi. Ályktanir: Ofnæmi er algengt í íslenskum börnum eins og víða á Vesturlöndum. Einkenni ofnæmis virðast breytileg eftir aldri. Athygli vekur að meirihluti barna með astma og/eða exem á fyrstu tveimur aldursárum verður ein- kennalaus á barnsaldri. Hins vegar hafa of- næmiseinkenni um helmings átta ára barna komið til eftir tveggja ára aldur E-23. Greining hjartasjúkdóma fyrir fæðingu Gunnlaugur Sigfússon", Hróðmar Helgason", Hanna Asvaldsdóttir41, Reynir Tómas Geirs- son2>, Jóhann Heiðar Jóhannsson3> Frá "Barnaspítala Hringsins, 2,kvennadeild Landspítalans, 3)rannsóknastofu Hl í meina- frœði, 4>lyflækningadeild Landspítalans Inngangur: Unnt er að greina hjartasjúk- dóma fyrir fæðingu með ómskoðun á fóstur- hjarta og hafa slíkar rannsóknir verið fram- kvæmdar á íslandi síðan 1989. Tilgangur þess- arar rannsóknar var að athuga greiningu hjarta- sjúkdóma í fóstrum hérlendis, fjölda greindra tilfella, tegundir hjartagalla og afdrif fóstranna. Efniviður og aðferðir: Ábendingar og nið- urstöður ómskoðana á fósturhjörtum hérlendis undanfarin 10 ár voru skoðaðar. Greiningar voru staðfestar með ómskoðun eftir fæðingu eða krufningu. Niðurstöður: Alls greindust 34 fóstur með hjartasjúkdóm á þessu 10 ára tímabili. Eitt árið greindist eitt tilfelli en flest greindust sjö fóstur á ári. Fjöldi tilfella hefur farið vaxandi á und- anförnum árum en umtalsverð aukning hefur einnig orðið á fjölda ómskoðana á rannsóknar- tímabilinu. Aldur fóstranna. það er meðgöngu- lengd við greiningu, var 14-37 vikur (m=22,2 vikur). Aldur mæðra við ómskoðun var 16-40 ár (m=29,6 ár). Helstu ábendingar fyrir óm- skoðun á fósturhjarta var afbrigðileg fjögurra hólfa sýn eða grunur um hjartasjúkdóm við 19. viku sónarskoðun (skimskoðun). Aðrar ábend- ingar voru: hjartagalli í fjölskyldu, aukin hætta á meðfæddum hjartagöllum vegna sjúkdóms móður eða lyfjanotkunar og hjartsláttaróregla
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.