Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Page 90

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Page 90
90 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37 staðfesta að meðal íslendinga er afmörkuð (tannlækna-) fælni algengari meðal kvenna en karla. Tíðni tannlæknafælni er einnig meiri meðal fráskildra, ekkla/ekkna, öryrkja, atvinnu- lausra og húsmæðra. Flestir svarenda geta tengt upphaf fælninnar við afmarkaðan sárs- aukafullan eða ógnvekjandi atburð. Á undangengnu hálfu ári sögðu 96 svarendur að þeir hefðu forðast tannlæknameðferð og 48 sögðu að tannlæknaótti þeirra hefði truflandi áhrif á líf þeirra almennt. Tuttugu og einn svar- andi uppfyllti skilmerki DSM-IV greiningar- kvarðans fyrir afmarkaða (tannlækna-) fælni, en 75 sýndi mörg einkenni tannlæknahræðslu. Marktækur munur fannst milli heildarfjölda (96) þeirra sem voru hræddir við tannlækna og hinna (1096) sem viðurkenndu lítinn eða engan tannlæknaótta hvað varðar kyn (fleiri konur hræddust tannlækna) og hjúskaparstöðu (fleiri fráskildir/-ar eða ekklar/ekkjur hræddust tann- lækna). Hópurinn sem hræddist tannlækna var með marktækt færri tennur en hópurinn sem viðurkenndi lítinn eða engan tannlæknaótta og fór einnig marktækt sjaldnar til tannlæknis. V-10. Óvænt niðurstaða rannsókna á tíðni skammdegisþunglyndis á Islandi Högni Óskarsson", Andrés Magnússon2>, Mik- ael M. Karlsson3>, Jóhann Axelsson31 Frá "Þerapeiu, 2>rannsóknarstofnun við geð- deild Ulleval sykhus Osló 3>rannsóknastofhun í lífeðlisfrœði HÍ Inngangur: Tíðni skammdegisþunglyndis hefur reynst vera óvenju lág á Islandi þegar beitt hefur verið rannsóknum með Seasonal Pattern Assessment Scale (SPAQ). Rannsókn sú, sem hér er kynnt studdist við aðra aðferð, það er að meta árstíðasveiflur með röð þver- sniðsrannsókna sem studdust við Hospital Anxiety and Depression Scale (HAD) og þann- ig að þátttakendur áttu að meta ástand sitt strax, en ekki að styðjast við eigið mat á undanfar- andi ári. Efniviður og aðferðir: Valin voru fjögur 1000 manna slembiúrtök úr þjóðskrá. Hverju úrtaki var sendur HAD-spurningalisti, fylgi- bréf og frímerkt umslag, eitt úrtak fyrir hverja árstíð, í janúar, apríl, júlí og október. Aðeins var stuðst við svör, sem bárust innan fjögurra vikna frá útsendingu. Niðurstöður: Meðaltalsskor var ekki hærra að vetri en að sumri, hvorki fyrir kvíða né þunglyndi, óháð kyni. Ekki var tölfræðilegur munur á algengi kvíða og þunglyndis eftir árs- tíðum, hvorki þegar tekið var tillit til sjúkratil- fella, jaðartilfella eða að þeim tveimur flokkum sameinuðum. Ályktanir: Þessar niðurstöður stangast á við niðurstöður annarra rannsókna, þar sem tíðni þunglyndis hefur mælst marktækt hærri að vetrarlagi. Á þetta við um innlendar rannsóknir með SPAQ jafnt sem erlendar, sem hafa verið framkvæmdar á suðlægari breiddargráðum. Is- lensk þýði hafa þó mælst með lægri tíðni en sambærileg erlend þýði. Þessi munur kann að stafa af því að HAD og SPAQ séu misnæmir fyrir ýmsum einkennum þunglyndis eða að minnisþátturinn hafi áhrif, því SPAQ-aðferðin felur í sér upprifjun einkenna til lengri tíma. Eins kann það að vera að þessar niðurstöður gefi vísbendingu um að íslenska þjóðin sé búin sérstökum eiginleikum til að svara skammdeg- inu. Höfundar vinna að frekari rannsóknum til að kanna þetta. V-11. Faraldsfræðileg rannsókn á iðra- ólgu hjá Islendingum Linda Björk Ólafsdóttir", Hallgrímur Guð- jónsson2', Bjarni Þjóðleifsson21, Rúnar Vilhjálms- son31 Frá "GlaxoWellcome ehf, 2>lyflœkningadeild Landspítalans, 3>námsbraut í hjúkrun Inngangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir á algengi iðraólgu á stóru úrtaki Islendinga hafa ekki verið gerðar hér á landi áður. Með þessari rannsókn fæst góð yfirsýn yfir algengi iðraólgu og ýmis önnur einkenni í meltingarfærunum sem tengjast henni. Fyrri rannsókn bendir til þess að iðraólga hjá ungu fólki á Islandi sé al- gengari en annars staðar. Markmið rannsóknar- innar er að kanna algengi iðraólgu, með sér- stöku tilliti til annarra einkenna í meltingarfær- um. Einnig að kanna tengsl milli iðraólgu og tíðaverkja hjá konum. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti, stað- færður fyrir ísland, var sendur út til 2000 ein- staklinga á aldrinum 18-75 ára. Spurningalist- inn samanstendur af 74 spurningum ásamt ein- kennalista til útfyllingar. Um 40 spurningar tengjast iðraólgu. Greiningaraðferð Mannings og einkennaskor voru notuð til að greina iðra- ólgu. Úrtak var fengið hjá Hagstofu Islands með heimild Tölvunefndar. Framkvæmd rann- sóknarinnar byggði á hinni svokölluðu heildar- aðferð (Dillman, 1978). Niðurstöður: Alls bárust 1336 marktæk svör
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.