Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Qupperneq 106
106
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
þeim tilgangi til þessa og gæti kítósan því verið
kjörið til lyfjagjafar á slímhúð.
Markmið verkefnisins var að hanna forskrift
fyrir hlaup (hydrogel) úr kítósani og kanna eig-
inleika lyfjaformsins. Þar sem afasetýlering
kítósanmólekúlsins svo og keðjulengd fjöllið-
unnar hafa áhrif á eiginleika efnisins svo sem
leysni var unnið með þrjár gerðir af kítósani
við rannsóknirnar. Við framleiðslu hlaupanna
var notuð annars vegar ediksýra og hins vegar
mjólkursýra til að leysa kítósanið upp. Tengsl
sýrustigs hlaupanna og seigjustigs var könnuð.
Flæðipróf voru framkvæmd til að kanna losun
lyfja með gagnstæða hleðslu.
Niðurstöður sýndu að lyfin losnuðu með
jöfnum hraða úr hlaupunum og fylgdu sem
næst núllta stigs kínetik. Við seigjustigsmæl-
ingar kom fram að seigjustig hlaupanna minnk-
aði með tíma, en stöðugleikinn var mismun-
andi eftir gerð lyfs. Tilraunir voru gerðar til að
draga úr óstöðugleika hlaupanna með ýmsum
hjálparefnum og tókst að bæta stöðugleikann
nokkuð. ítarlegri rannsóknir eru fyrirhugaðar
með það fyrir augum að reyna að bæta stöðug-
leika kítósanhlaupanna.
V-43. Áhrif efna úr íslenskum fléttum á
illkynja frumur
HelgaM. Ögmundsdóttirl>, Gunnar Már Zoéga2',
Michael J. Tisdale31, Kristín IngólfsdóttirJ>
Frá "Krabbameinsfélagi íslands, "lœknadeild
HÍ, 3)Aston University Birmingham,4)lyfjafrceði
lyfsala HÍ
Inngangur: Fléttuefni, sem eru afurð sam-
býlis svepps og þörungs eru einstök í náttúruni
og áhugaverð til rannsókna með tilliti til lyfja-
verkunar. Við höfum áður sýnt fram á vaxtar-
hemjandi verkun tveggja fléttuefna, prótólich-
esterínsýru og lóbarínsýru, á illkynja frumur úr
mönnum. Bæði þessi efni hafa hamlandi verk-
un á ensímið 5-lípoxýgenasa sem hvetur mynd-
un á bólgumiðlandi efnum. Vitað er að afurðir
lipoxýgenasaferlanna (5, 12 og 15) koma við
sögu í stjórn á fruinufjölgun og frumudauða. I
þessari rannsókn voru prófuð þrjú efni sem skyld
eru lóbarínsýru að efnabyggingu, bæði efni
sem eru virk gegn 5-lípoxýgenasa (baeomyces-
ic sýra) og efni sem eru óvirk (atranorín og
úsnínsýra). Loks voru gerðar frekari prófanir á
prótólichesterínsýru með tilliti til áhrifa á
lipoxýgenasa efnaferla.
Efniviður og aðferðir: Notaðar voru tvær
frumulínur úr brjóstakrabbameini (T-47D og
ZR-75-1), ein frumulína úr hvítblæði (K-562)
og tvær frumulínur úr ristilkrabbameini í mús-
um (MAC13 og MAC16). Frumufjölgun var
metin með frumutalningum og með því að
mæla DNA framleiðslu (upptöku á ^H-liymid-
ini). Fylgst var með fjölda lifandi frumna
(MTS próf). Afurðir lipoxýgenasaferlanna, 5
HETE, 12 HETE og 15 HETE voru notaðar í
hindrunartilraunum.
Niðurstöður: Öll efnin höfðu vaxtarhindr-
andi áhrif á frumulínur úr brjóstakrabbameini
(T 47D og ZR 75-1) og frumulínu úr hvítblæði
(K-562), og því virtist ekki vera einfalt sam-
hengi milli lípoxýgenasahindrandi verkunar og
vaxtarhindrandi áhrifa á illkynja frumur. Prótó-
lichesterín sýra hafði mjög öflug vaxtarhemj-
andi áhrif á músakrabbameinsfrumurnar
(MAC13 og MAC16). Þessar frumur eru
ónæmar gegn öðrum efnum en þeim sem hindra
lipoxýgenasa, og þá sérlega 12/15 lipoxýgen-
asa. Fyrstu niðurstöður hindrunartilrauna gefa
vísbendingu um að 5 HETE minnki vaxtar-
hindrandi verkun prótólichesterín sýru á T 47D
en 12 og 15 HETE virtust hafa minni áhrif.
Ályktanir: Þau fimm fléttuefni sem prófuð
voru sýna öll vaxtarhemjandi verkun á illkynja
frumur. Þessi verkun gæti í sumum tilvikum
tengst hemjandi verkun á lipoxýgenasa, en í
öðrum er greinilega um annars konar áhrif að
ræða.
V-44. Ónæmisvirkt (1—'►3)-(l—'►4)-a-D-
glúkan úr fjallagrösum
Elín S. Ólafsdóttir", Kristín Ingólfsdóttir", H.
Barsett", B. Smestad Paulsen2>, K. Jurcic31, H.
Wagner"
Frá "lyfjafrœði lyfsala HÍ, 21Dept. of Pharm-
acognosy, Institute of Pharmacy Osló,3>Institut
fiir Pharmazeutische Biologie der Universitat
Munchen
Inngangur: Sýnt hefur verið fram á í in vitro
og in vivo átfrumuprófum að vatnsextrakt flétt-
unnar Cetraria islandica (fjallagrös) hefur
ónæmishvetjandi áhrif. Fjallagrös innihalda
fjölsykrur í miklu magni og er talið að þær eigi
ríkan þátt í ónæmishvetjandi virkni vatnsex-
traktsins. Isolichenan-lík fjölsykra, Ci-3, sem
leysist í köldu vatni, hefur nú verið einangruð
úr Cetraria islandica og virkni hennar könnuð.
Efniviður og aðferðir: Ci-3 var einangruð á
hreinu og einsleitu formi úr vatnsextrakti og
einnig úr basaextrakti fléttunnar, með því að
nota etanól-felliskiljun (fractionation), díalýsu,