Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Síða 117

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Síða 117
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37 117 þriggja eða fjögurra) til afmörkunar þess svæð- is, sem magna skal, skiptir miklu máli og erum við sífellt að endurskoða og bæta prófin. A þessu ári hafa verið tekin upp ný próf fyrir Herpes 1-7 og ORF (sjá sér veggspjald). Þær veirur og veiruflokkar, sem finna má með PCR á Rannsóknastofu í veirufræði eru: DNA-veirur: Adeno, HSV-1, HSV-2, VZV, CMV, EBV, HHV-6, HHV-7, Parvo, JC/BK, ORF, HPV. RNA-veirur: Entero, ECHO 22/23, rhino, astro, calici, inflúensa A (í vinnslu), inflúensa B (í vinnslu). Alyktanir: PCR aðferðin er næm og sértæk. Hún getur greint veirur, sem eru í litlu magni til dæmis í mænuvökva (sjá sér umfjöllun á þing- inu), veirur sem eru óræktanlegar í vefjarækt eða þaktar mótefnum og á því formi óræktan- legar. PCR er því vel þegin viðbót við fyrri greiningaraðferðir og bætir til muna greiningu veirusjúkdóma í mönnum. V-61. PCR til greiningar á sláturbólu Einar G. Torfason, Sigrún Guðnadóttir Frá rannsóknastofu Landspítalans í veirufrœði í Ármúla Inngangur: Sláturbóla (contagious ecthyma, contagious pustular dermatitis, scabby mouth) er veirusjúkdómur í sauðfé og geitum, sem get- ur borist í menn, gjarna við sauðburð, rúningu eða slátrun. Þessu veldur orf, sem er parapox- veira, fjarskyld bólusóttarveiru. í ferfætlingn- um eru þetta gjarna bólur eða þykkildi í krún- unni en getur herjað á snoppu og munn (scabby mouth). Lambadauða hefur verið lýst. Talið er að menn smitist um skrámur á höndum, hand- leggjum eða í andliti. Þykkildi eða hnútar með roða í kring, sem mynda fljótlega hrúður eða skorpu, eru yfirleitt á smitsvæðinu, en þó er dreifing blóðleiðina þekkt. Hitaslæðingur og bólgnir eitlar geta fylgt. Þetta grær á sex til sjö vikum. Endursýking er algeng í mönnum og dýrum. Flest haust fáum við sýni til greiningar á sláturbólu. Okkur hefur vantað próf til að sinna þessurn sýnum. Ákveðið var að þróa kjarnsýru- mögnun (PCR) til sláturbólugreininga alveg frá grunni, enda höfum við ekki séð neinu slíku prófi lýst. Efniviður og aðferðir: Upplýsingar um rað- greiningar á orf og skyldum veirum voru sóttar úr GenBank og fleiri gagnagrunnum. Reynt var að meta hvaða gen væru veirunni nauðsynleg og því jafnan til staðar. Fyrir valinu varð eitt af þeim genum sem tengjast RNA pólýmerasa veir- unnar (orf-rpa). Oligo forritinu var beitt til að velja heppilega prímera. Þekkt jákvæð kontról voru ekki tiltæk, en við höfðum örfá sýni sem voru klínískt talin vera sláturbólusýni. Sent var bréf til heilsugæslustöðva með beiðni um lík- leg sláturbólusýni, og hefur það fengið góðar undirtektir. Niðurstöður: Oligo skilaði tveimur tillög- um. I annarri var afurðin of stutt, en í hinni fengum við tvo 21bp prímera, sem afmarka 140bp svæði. Aðferðin var reynd á sýni sem talið var jákvætt og gaf dauft jákvætt svar með töluverðri ruslmögnun. Þegar AmpliTaq Gold ensím var notað fékkst sterkt svar í mjög snyrtilegu prófi. Eftir er að meta næmi prófs- ins, en nokkur sýni hafa þegar verið prófuð. Hafi þau á annað borð verið jákvæð, hefur mátt þynna þau mjög mikið. Þetta er vísbending um töluvert næini. Ályktanir: Við höfum þróað frá grunni PCR próf sem er nú á reynslustigi. Eftir er að meta næmi og sérvirkni, en prófið lofar góðu sem ódýr og handhæg aðferð að grípa til þegar við fáum sláturbólusýni. V-62. Nýlendun í öndunarvegum og til- urð lungnabólgu á gjörgæsludeild. Skyld- leikagreining með skerðibútarafdrætti Sigurður Magnason11, Karl G. Kristinsson2', Þorsteinn Svörfuður Stefánsson3I, Helga Er- lendsdóttir21, Einar H. Jónmundsson4', Kristín Jónsdóttir', Már Kristjánsson51, Sigurður Guð- mundsson61 Frá "lœknadeild HÍ, 2>sýklafrœðideild, 3,gjör- gœsludeild og 4,röntgendeild Landspítalans, 5,smitsjúkdómadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 6,lyflœkningadeild Landspítalans Inngangur: Lungnabólga er algeng meðal sjúklinga á gjörgæsludeildum og mikilvægt er að þekkja meingerð hennar og smitleiðir. Efniviður og aðferðir: Fylgst var með tilurð lungnabólgu meðal sjúklinga á gjörgæsludeild í 300 sjúkralegum. Reglulega voru tekin rækt- unarsýni frá barka, munnkoki og maga sjúk- linga. Skyldleiki bakteríustofna var greindur með skerðibútarafdrætti (pulsed-field gel el- ectrophoresis, PFGE). Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu greind- ust 23 spítalatengd lungnabólgutilfelli, þar af tvö sem ekki náðu tímaskilmerkjum sem gjör- gæslutengd sýking, en þar var nýlendun öndun-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.