Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 118
118
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
arvega þó talin hafa orðið eftir innlögn á deild-
ina. Enterobacteriaceae ollu 35% sýkinganna,
Pseudomonas 17%, Stenotrophomonas 9%,
Haemophilus 9%, Str. pneumoniae og S. aureus
ollu einu tilfelli hvor, en aðrar sýkingar voru af
blandaðri eða óþekktri orsök. I fimm tilvikum
tókst að ákvarða upprunastað nýlendunar: Ný-
lendun hófst í munnkoki í tveimur tilvikum, í
barka í einu tilviki og í maga í tveimur tilvik-
um, sem hvorugt taldist þó til spítalasýkinga.
Ekki var unnt að greina upprunastað nýlendun-
ar, þar sem ræktanir urðu jákvæðar á fleiri en
einum stað samtímis í fjórum tilvikum, í níu til-
vikum vegna þess að sýni frá maga náðist ekki
um það leyti sem nýlendun varð og í fimm til-
vikum af öðrum orsökum. Bakteríur sömu teg-
undar, sem nýlenduðu fleiri staði hjá sama
sjúklingi, reyndust í öllum tilvikum samstofna.
Tveir sjúklinganna sýktust af lungnabólgu af
völdum Serratia marcescens, sömu stofngerðar
og ræktaðist frá mengaðri sápu á deildinni.
Umræða: Spítalatengd lungnabólga getur
átt uppruna sinn í nýlendun munnkoks eða
maga. A hinn bóginn tókst einungis í um fjórð-
ungi tilvika að greina uppruna nýlendunar. Upp
kom hópsýking, sem með stofnagreiningu mátti
rekja til mengaðrar sápu. Rannsóknin sýndi
glöggt, eins og aðrar rannsóknir hafa gert, að
skerðibútarafdráttur er mikilvæg aðferð við
rannsóknir á tilurð og faraldsfræði spítalasýk-
inga.
V-63. Örverudrepandi virkni fítuefna
gegn gram-jákvæðum og gram-neikvæð-
um kokkum
Guðmundur Bergsson", Olafur Steingríms-
son2>, Halldór Þormar1'
Frá "Líjfrœðistofnun HÍ, 21sýklafrœðideild
Landspítalans
Fituefni sem sýnt hafa örverudrepandi virkni
gegn bæði veirum og bakteríum, þar á meðal
herpesveirum, alnæmisveirunni og Chlamydia,
voru prófuð gegn Neisseria gonorrhoeae sem
er gram-neikvæð baktería og streptókokkum af
Lancefield gr. B sem eru gram-jákvæðar bakt-
eríur.
Miklu magni af bakteríum var blandað sam-
an við nokkur mismunandi fituefni sem leyst
höfðu verið upp í broði. Efnin voru prófuð í
eina mínútu við stofuhita gegn N. gonorrhoeae
áður en gerðar voru tífaldar þynningar af
blöndunum og þynningunum sáð á súkkulaði-
agar. Gegn streptókokkunum fór prófið fram
við 37°C í 10 mínútur áður en þynningar voru
gerðarog þeim sáð á blóðagar. Þyrpingar voru
síðan taldar og örverudrepandi virkni fituefn-
anna mæld með því að bera fjölda baktería í
meðhöndluðu sýnunum saman við fjöldann í
ætisviðmiðinu sem ekki innihélt fituefni.
Fituefnin kaprýlínsýra (8:0), kaprínsýra
(10:0), mýristínsýra (14:0), olínsýra (18:1),
mónókaprýlín (8:0), mónómýristín (14:0),
mónópalmitolín (16:1) og mónóolín (18:1) í
2,5 mM styrk sýndu takmarkaða örverudrep-
andi virkni með lækkun á títer á bilinu 0-2,4
logl0 gegn báðum bakteríunum. 1 2,5 mM styrk
reyndust lárínsýra (12:0), palmitolínsýra (16:1),
mónókaprín (10:0) og mónólárín (12:0) mjög
virk (5,9->6,6 log10) gegn N. gonorrhoeae. Aft-
ur á móti reyndust einungis palmitolínsýra og
mónókaprín virk (4,7->6,2 log,0) gegn streptó-
kokkum í 2,5 mM styrk, en hvorki lárínsýra né
mónólárín. Lárínsýra sýndi þó mikla virkni
(>6,1 log10) í 5 mM styrk gegn streptókokkum.
í fyrri rannsóknum á áhrifum fituefna gegn
örverum hefur verið sýnt með rafeindasmásjár-
skoðun að fituefnin sem hér hafa verið prófuð
hafa áhrif á frumuhimnur örvera. Niðurstöður
úr þessum rannsóknum hafa sýnt að himna
gram-neikvæðs kokks er mun næmari fyrir
þessum fituefnum en himna þess gram-já-
kvæða. Þá er einnig athyglisvert hversu mikla
virkni mónókaprín í lágum styrk hefur gegn
báðum bakteríunum en það er í samræmi við
virkni mónókapríns á aðrar örverur, bæði bakt-
eríur og veirur.
V-64. Áhrif fjölómettaðra fítusýra í fæði
á TNF-a í blóði músa eftir Klebsiella
pneumoniae sýkingu
Jón Reynir Sigurðsson", Auður Þórisdóttir',
Ingibjörg Harðardóttir", Helga Erlendsdóttir",
Eggert Gunnarsson51, Sigurður Guðmundsson61
Asgeir Haraldsson'-31
Frá "Barnaspítala Hringsins, "líjfrœðiskor HI,
31læknadeild HI, 4'sýklafrœðideild Landspítal-
ans, 5lTilraunastöð HI í meinafrœði að Keldum,
6>lyflœkningadeild Landspítalans
Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt að mýs
aldar á lýsi lifa fremur af Klebsiella pneum-
oniae sýkingar, samanborið við mýs aldar á
ólífu- og kornolíubættu fæði. Talið er að ómega-
3-fitusýrur hafi veruleg áhrif á ónæmiskerfið,
fremur en bein áhrif á bakteríuvöxt í músunum.
Tumor necrosis factor alpha (TNF-a) er
frumuboðefni, sem er seytrað við ýmiss konar