Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Síða 15
Stefnir]
Frá öðrum löndum.
109
inginn um það, að öllu eftirliti
ætti að vera lokið í síðasta lagi
1935. Var þessu setuliðssvæði
skift í 3 belti. Úr fyrsta beltinu
fór setuliðið 1925. Úr öðru belt-
inu á það að fara í janúar næsta
ár, og loks að fullu og öllu 1935.
Hafa Þjóðverjar staðið svo vel
við skuldbindingar sínar, að þeir
þykjast eiga kröfu á, að liðið
verði nú þegar kvatt heim, og
Englendingar eru því hlyntir.
Hefir Henderson beinlínis lýst.því
yfir, að enska setuliðið verði kvatt
heim í árslokin, hvernig sem um
samningana fer að öðru leyti.
Erfiðleikarnir frá Englendinga
Bricind.
Stréaemann.
eru Snowden fjármálaráðherra og
Henderson utanríkisráðherra, og
aðalfulltrúi Þjóðverja er Strese-
mann utanríkisráðherra.
Frakkar eru hlyntir fjármála-
hlið Young-álitsins, en telja ekki
fært að kveðja herliðið heim úr
Rínarlöndunum, nema sett sé sér-
stök nefnd, er hafi rétt til að
„rannsaka“ athafnir Þjóðverja í
Rínarlöndunum, svo sem bygg-
ing nýrra járnbrauta, er geti
orðið þeim að gagni í hernaði.
Þjóðverjar aftur á móti setja
það sem ófrávíkjanlegt skilyrði,
að setuliðið sé kvatt heim skil-
yrðislaust, og vitna í Versalasamn-