Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Qupperneq 32
126
lögreglumenn geta orðið með
réttu móti. Það var sagt — nei
annars, ég nenni ekki að fara að
segja hneykslissögur.
Elsie Dicker fór við og við til
Evrópu. Hún þurfti náttúrlega
að fullnuma sig, og svo þurfti
hún að fullnuma sig ennþá betur.
Og þá var það sem hún kyntist
Stoney. Hann var laglegur mað-
ur, ekki vantaði það, og ekki
nema tíu árum eldri en hún.
Stoney snerti ekki spil á leið-
inni, heldur flögraði kringum
Elsie eins og fluga kring um ljós.
Amor litli var með í förinni og
hæfði þau bæði í hjartað. Þeim
kom saman um það, að þau skyldi
strax fara til gamla mannsins
þegar vestur kæmi, beina leið
heim til hans.
En þess þurfti alls ekki, því að
Dicker gamli stóð á bryggjunni
þegar þau komu. ,,Pabbi“, sagði
Elsie, „má eg ekki kynna þig
herra Barton?“
En Dicker leit á Stoney því
augnaráði, að ef ástin hefði ekki
verið á suðumarki, hefði hann
áreiðanlega botnfrosið á hálfri
mínútu.
„Eg hefi þann .... að þekkja
hr. Barton“, sagði hann, og ef
þig langar til þess að vita meira
um hann, þá skaltu koma upp á
[Stefnir
lögreglustöð og sjá lífshlaupið
hans“.
Stoney hefir víst verið búinn
að vera „inni“ einu sinni og tals-
vert oft í klípu.
Upp frá þessu var heimsstyrj-
öld milli Dickers og Stoney. En
unga fólkið hittist oft, og víst er
um það, að æfinlega fékk Stoney
þykt bréf um leið og skipið lenti
í New York. Eg fór víst með heila
tylft af þeim til hans.
Eg held að Stoney hafi boðið
gamla manninum að hætta „sigl-
ingum“ og gerast hæglætis mað-
ur, ef hann vildi gefa honum
stelpuna. En Dicker ætlaði að
tryllast. Hann sat um Stoney,
stundum fyrir það, að hann bæri
á sér óleyfileg vopn og stundum
fyrir annað verra, en honum Lókst
ekki að hafa hendur í hári hans.
Elsie trúði á Stoney. Þegar fað-
ir hennar sagði henni að hann
væri spilaþjófur, gerði hún ekki
annað en brosa.
„Hann hefir svo mörgu að
sinna báðumegin hafsins“, sagði
hún, „að það er von að hann
þurfi oft að fara á milli“.
En þegar gamli maðurinn fór
að ryðja úr sér öllu því illa, sem
hann vissi um Stoney, gekk Elsie
snúðugt út úr stofunni og læsti
sig inn í herbergi sínu.
Karlar sem kunna það.