Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 54

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 54
148 Milli fátæktar og bjargálna. [Stefnir manna eða neyzluvörur, en sem mest eigi að taka með beinum sköttum svonefndum, þ. e. með því að taka handa ríkissjóði og sveitasjóðum stighækkandi hluta af tekjum manna og stofnana, eða af tekjum þeirra að tilkostn- aði frádregnum. I hreinni og fullkominni mynd birtist þessi stefna hjá kommúnistum, þegar þeir halda því fram, að enginn eigi að fá að halda til eigin þarfa eða sem sinni eign meiri árstekj- um, en sem svarar þurftarfram- færi handa honum og fjölskyldu hans. Það, sem hann kann að afla þar fram yfir eigi að taka af honum í skatta til opinberra þarfa. Að þessu sinni skal nú aðeins athugað hvor af þessum tveim stefnum er líklegri til þess að greiða fyrir eignaaukningu þjóð- arinnar, fyrir aukinni framleiðslu og hækkandi kaupgjaldi, fyrir vaxandi velmegun og vellíðan yfir höfuð. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning skal það þó tekið fram, að eins og hér er ástatt verða þarfir ríkissjóðs og sveitar- sjóða svo miklar móts við gjald- getu landsmanna, og skattarnir í heild hljóta að vera svo háir, að enginn nothæfur skattstofn má með öllu missast úr skatta- kerfinu. Spurningin verður því ekki um það, hvort vér eigum að taka allar tekjurnar með tollum af munaðarvörum, eða allar með beinum sköttum. Hvorugt mundi reynast framkvæmanlegt, og hvorttveggja mundi koma ó- hæfilega misjafnt niður. Spum- ingin verður aðeins sú, hvor stefnan sé hollari, að taka sem mest með munaðarvörutollum, eða sem mest með beinum skött- um. Vér byggjum þá á þeirri niður- stöðu, sem áður var fengin, að undirstöðuatriði allra efna- legra framfara er það, að sem minstur hluti af árlegum af- rakstri efnahagsstarfseminnar í landinu gangi til árlegrar eyðslu eða neyzlu, en sem mestur hluti verði eftir óeyddur og verðmætið fest í stofnfjármunum þeim, sem eru undirstaða aukinnar velmeg- unar. Tollar á munaðarvöru og öðr- um ónauðsynlegum eða miður nauðsynlegum varningi hafa þann auðsæja kost, að þeir draga úr neyzlu eða notkun þessara hluta. Þar með lækkar sú upphæð, sem greidd er árlega út úr landinu fyrir slíkan vaming, og jafnmik- ið hækkar þá sú upphæð, sem

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.