Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Page 84
178
Frá öSrum löndum.
[Stefnir
r?T?Tni t 8 tesundir-Verð frá
UljlL'ÍU UL kr. 10022 — kr. 20022
»VICTORIA« saumavélar margar gerðir.
»COLUMBIA« grammófónar margar gerðir.
PLÖTUR mörg þúsund stykki fyrirliggjandi.
Allir varahlutir i reiðhjól og grammófóna.
Vörur sendar um alt land gegn eftirkröfu.
HEILDSALA T7 A T X^TTVTTWT LAUGAVEG 24
SMÁSALA r j\)uiJ\ll\ 1\ REYKJAVÍK
þakka fyrir ef þeir geta komizt
hjá fullri auðmýking út af þessu
fljótræðisflani.
Frá harðstjórunum í Suður-
Evrópu.
Rivera hefir nú borið fram
frumvarp að stjórnarskrá fyrir
Spán og kvað þar ekki gæta sér-
lega mikils lýðræðis. Konungur
hefir meiri áhrif á skipun þings-
ins en þjóðin. Ákvæði er um það,
að þingið megi ekki gefa stjórn-
inni vantraustsyfirlýsing! Heldur
þykir það og nýstárlegt, að bein-
línis er tekið fram í opinberri til-
kynning, að blöðin megi ræða
frumvarpið, en þó eigi þau að
gæta þeirrar stillingar er hæfi
svo háleitu efni!
Mússólíni er nú sem óðast að
flytja and-fascista í útlegð. Eru
það sérstaklega frímúrarar, sem
nú er veizt að. Flestir yfirmenn
reglunnar eru í fangelsum hing-
að og þangað á smáeyjum, og
jafnvel synir sumra þeirra hafa
orðið að sæta svipuðum kjörum
án allra saka.
Bendetto Croce, mesti heim-
spekingur ítala, gagnrýndi samn-
ing Mússólínis og páfastólsins í
langri ræðu í öldungaráðinu. —
Blöðum var harðbannað að minn-
ast á ræðu þessa, hvað þá birta
útdrátt úr henni. Nokkrir menta-