Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Blaðsíða 71
Stefnir]
Pólitískt söguágrip.
69
styrkur flokkanna. Jón Þorláks-
son fékk 20 atkv., Tryggvi Þór-
hallsson 17 atkv. og Jón Bald-
vinsson 5 atkv. Enginn fékk því
fullan helming atkvæða og var
kosið aftur. Þá yfirgáfu allir
Framsóknarmennirnir nema tveir
sinn fyrri forseta. Jón Baldvins-
son var svo kosinn í þriðju at-
rennu.
Um þetta segir Alþýðublaðið:
„Framsóknarflokkurinn grennsl-
aðist í gær eftir afstöðu þing-
manna Alþýðuflokksins til for-
setakosninganna, sem áttu að
fara fram í gærkvöldi.
„Alþýðuflokkurinn svaraði því,
að þingmenn flokksins mundu
kjósa Jón Baldvinsson forseta
sameinaðs þings. Ef hann yrði
kosinn, hefðu þingmenn flokksins
óbundnar hendur af flokksins
hálfu við kosningu deildarforseta
og skrifara". Þeir neita sem sagt
að semja. Framsókn á að þjóna
þeim án allra skuldbindinga af
þeirra hendi á móti. Og þetta
tókst.
Tr. Þórhallsson segir í áður-
nefndri grein, að „þessar forseta-
kosningar hafi orðið þeim (þ. e.
Sjálfstæðismönnum) þörf og rétt-
mæt áminning". Auðvitað var
þetta ekki Sjálfstæðismönnum
nein áminning um annað en það,
sem enn er í fullu gildi, að Fram-
sókn öll (þ. e, bæði núverandi
Framsókn og Bændaflokkurinn)
eru jafnan til í samvinnu við sósí-
alista heldur en að láta Sjálfstæð-
ismenn nokkru ráða. Þetta er á-
reiðanlega „þörf og réttmæt á-
minning" fyrir Sjálfstæðiskjós-
endur landsins í vor.
Eftir að Framsókn hafði þann-
ig kysst á vöndinn án þess að setja
nokkur skilyrði, voru sósíalistar
svo náðugir, að kjósa með þeim
deildarforseta. Það var undir-
gefnishugarfarið, sem þeir höfðu
verið að prófa, en alls ekki að
þeim dytti í hug, að láta Sjálf-
stæðismenn komast að. Þessir
flokkar í sameiningu réðu því
störfum aukaþingsins.
Um makkið, sem nú fór fram
milli þessara flokka eru ekki til
öruggari heimilidir en bréfin
sjálf, sem á milli fóru, og til þess
að enginn þurfi að hugleiða, hvort
hér sé rétt skýrt frá, verða þau
birt hér.
Frumkvæði að samningunum
kom frá Framsókn, eins og áður
er sagt frá. En hér er nú fyrsta
svar Alþýðuflokksins, skrifað fá-
um dögum áður en þing kom sam-
an: —