Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 101

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 101
Stefnir] Kraftaverk Andkrists. 99 jafn þéttskipuð, því það var skoð- að sem hin mesta sæmd fyrir aug- liti guðs, að berjast á Aracoeli. Og því var það, að fyrir sextíu árum var baráttan enn háð af fulium krafti, og vegna veikleika yfirstandandi tíma börðust munk- arnir nú af meira kappi, en nokkru sinni áður, og voru full- vissari um komu Andkrists en nokkru sinni fyr. Um þetta leyti kom auðug ensk kona til Rómaborgar. Hún gekk upp til Aracoeli-kirkjunnar og sá líkanið, og hún varð svo gagntekin af því, að henni fannst !íf sitt óbærilegt, fengi hún það ekki til eignar. Hún fór hvað eftir annað upp til kirkjunnar, til að fá að sjá myndina, og að síðustu bað hún munkana að selja sér hana. En þótt hún hefði þakið allt tiglagólfið í hinni stóru kirkju með gullpeningum, mundu munk- arnir ekki hafa viljað selja henni líkan þetta, er var þeirra eina hugsvölun. Þrátt fyrir það var hin enska kona svo töfruð af líkaninu, að án þess fann hún hvorki frið né gleði. Og þar eð hún gat ekki á annan veg fengið ósk sína upp- fyllta, ásetti hún sér að stela því. Hún hugsaði ekkert um, hvílíka synd hún drýgði, hún fann aðeins til svo mikillar nauðsynar og svo brennandi þorsta, að hún vildi heldur tapa sálu sinni, en að neita sér um þá hjartans gleði, að eign- ast það, er hún þráði. Og til þesa að ná marki sínu, lét hún gera líkan, er var nákvæmlega eins og það, er geymt var í Aracoeli- kirkjunni. Líkanið í Aracoeli-kirkjunni var skorið úr ólífuviði úr Getse- mane-garði, en enska konan á- ræddi að láta skera líkanið úr álmviði, er var óþekkjanlegur frá ólífuviðnum. Líkanið í Aracoeli- kirkjunni var ekki af manna- höndum málað. Þá er munkur- inn, er skar það, hafði tekið fram pentskúf og liti, rann honum í brjóst yfir vinnu sinni. Og er hann vaknaði, var líkanið búið að fá lit. Það hafði málað sig sjálft, sem merki þess, að guð hefði ást á því. En enska konan áræddi að láta jarðneskan mál- ara mála álmviðarlíkanið sitt, þannig, að það varð nákvæm eftirmynd hins heilaga líkans. Handa falslíkani þessu lét hún svo gera kórónu og skó, en hvor- ugt var úr gulli; hvorutveggja var úr venjulegu pjátri með gyll- mgu. Hún pantaði skartgrípí, hún keypti hringa og hálsmen, 7*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.