Sagnir - 01.04.1989, Side 10

Sagnir - 01.04.1989, Side 10
Þóra Kristjánsdóttir Víðimýrarkirkja, teikning eftir Jón Helgason biskup frá 1919. Hörður lýsir því næst ferð um Vestfirði og merkum húsum á þeirri leið. Greininni fylgja ljósmyndir, uppdrættir og sögulegar upplýsing- ar. Hún er upphaf að fjölmörgum slíkum sem Hörður kemur á fram- færi í Birtingi og víðar og er afrakst- ur rannsóknaferða hans um landið í þeim tilgangi að opna augu manna fyrir því að virða sjónrænan menn- ingararf þjóðarinnar. Til þessa verk- efnis-hlaut Hörður styrk úr Vísinda- sjóði og vann verkið að nokkru leyti í samráði við Þjóðminjasafnið, fyrst sumarið 1961, og síðan í allmörg ár þar á eftir. í skýrslu um Þjóðminjasafnið 1965 er þess getið að Hörður hafi enn á því ári hlotið styrk úr Vísinda- sjóði til þess að ferðast um og rann- saka, ljósmynda og mæla upp gömul hús í sveitum og kaupstöðum. Sé þetta starf að töluverðu leyti unnið í samráði við Þjóðminjasafnið og all- ur efniviður, sem safnist, eigi að verða eign þess.7 Starfsmenn Þjóðminjasafnsins höfðu þá á hundrað ára ferli þess reynt að vekja áhuga landsmanna á gildi gamalla húsa og mannvirkja en þar var við ramman reip að draga. Það var í svo mörg horn að líta, hraðinn svo mikill á öllum sviðum, mönnum lá svo á að byggja upp nú- tímaþjóðfélag, að það var hvorki tími né orka til þess að hlúa að því gamla, — og skilningur á sögulegu samhengi hlutanna takmarkaður meðal almennings. Þáttur Þjóðminja- safnsins í húsafriðun Sigurður málari Guðmundsson, sem talinn er upphafsmaður Þjóð- minjasafnsins, hefur haft mikinn áhuga á fornri húsagerð og er að finna í minnisbókum hans upp- drætti af húsum og húsaskrauti, og hugleiðingar um byggingarlag horf- inna mannvirkja. En elstu skjalfestu orðin, þar sem beinlínis er hvatt til friðunar mann- virkis á íslandi telur Hörður Ágústs- son vera frá 1905, er Árni Björnsson prófastur blandar sér í umræður um nýja kirkjubyggingu á Víðimýri í Skagafirði. Eigendur jarðarinnar höfðu þá undirbúið smíði nýrrar kirkju og hugðust rífa gömlu kirkj una. Árni telur æskilegt að þegar ný kirkja verði smíðuð, gjörðist þess á einhvern hátt kost- ur, að hin forna torfkirkja, sem er vonum fremur stæðileg, fengi að standa órifin, sem sýnishorn kirkna frá eldri tímum, enda segir kirkjueigandinn, að ýmsir mjög merkir útlendingar hafi látið þetta sama álit í ljósi.8 Margt varð til þess að tefja smíði nýrrar kirkju, og á meðan fékk gamla kirkjan að standa óáreitt. Það var svo loks 1934 að Matthías Þórðar- son þjóðminjavörður hefur frum- kvæði að því að ríkissjóður kaupir kirkjuna og afhendir Þjóðminjasafn- inu til varðveislu. Tuttugu árum áður hafði Matthías gert átak til þess að bjarga fornum byggingararfi og varðveita hann, er hann fékk nokkra fjárhæð úr ríkis- sjóði til þess að láta gera við hinn forna skála á Keldum á Rangárvöll- um 1914.9 Ekki virðist hafa orðið framhald á slíkum fjárveitingum, og 1921 gekkst Matthías fyrir almennri fjársöfnun til þess að láta gera við Bessastaða- kirkju, sem þá var bændakirkja og hafði lítill sómi verið sýndur um langan tíma.10 Það átak hefur haft nokkur áhrif, því að árið 1923 er Hóladómkirkja tekin á fornleifaskrá og afhent Þjóðminjasafninu." Kirkjan var þá í mikilli niðurníðslu, og lét Matthías gera rækilega við hana og færa til upphaflegs vegar eftir því sem unnt reyndist. Þar má segja að hefjist fyrir alvöru varðveisla húsa og mannvirkja á vegum Þjóðminjasafnsins, og átti það starf eftir að þróast og hafa áhrif meðal almennings og ráðamanna víða um land. Nú eru 29 hús víðs 8 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.