Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 26

Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 26
Orri Vésteinsson Uppbygging hlöðu sem enn stendur í SkaftaíeUi. Uppbygging hlaðanna í Gröf og á Lundi hefur uerið áþekk þessu. þess höfðu menn vindaugu á stöfn- um hlöðunnar.38 En þar sem loft kemst inn, þar vill líka seytla vatn. Það hefur þannig verið vissara að hafa heyið eins þurrt og hægt var, en á því gat auðvitað orðið mis- brestur, einkanlega í þeirri vætutíð sem stundum plagar þetta land. Vel tyrfð hey sem stóðu úti á ber- angri höfðu þann kost fram yfir hlöðurnar að um þau lék sífelldur næðingur, þau þornuðu því frekar og því var minni hætta á að kviknaði í þeim. Hey sem sett var í þannig stæður þurfti því ekki að vera eins þurrt og það sem fór í hlöðurnar. Skúli Magnússon heldur því fram að vel og réttilega hlaðnir heystakkar geti haldist óskemmdir í 2-3 ár.39 Á því leikur hinsvegar enginn vafi að tyrfðu heyi var hættara við að hrekj- ast og blotna en heyi sem geymt var í hlöðum. Og hey sem geymt var í heytóftum var fullt eins líklegt til að brenna og hlöðuhey.40 „Hvorsu kann einn fátækr leigulidi...?“ Það er þannig líklega bitamunur en ekki fjár hvort hey geymdist betur í hlöðu eða í stakki. Enda er sú rök- semd - að hey skemmist síður í hlöðum, lítið notuð í málflutningi þeirra 18. aldar manna sem voru að hvetja landa sína til að byggja hlöður. Helstu kostirnir við hlöður eru taldir vera þeir - að fljótlegra og þægilegra sé að setja í þær, einkan- lega í vætutíð, ekki þurfi að tyrfa á milli þess sem bætt er í stabbann, - að þægilegra sé að gefa úr þeim og að ekkert hey þurfi að skemmast á leiðinni úr hlöðu í kýrkjaft, - að úr þeim megi gjörgefa hverja tuggu, - að ekki komist peningur að til að rífa úr stálinu, og - að ekki þurfi að rista torf á hverju sumri til að þekja heyin.41 Það eru þannig að stórum hluta hagkvæmnisástæður sem gera hlöð- urnar að betri kosti en tyrfðu heyin. Guðlaugur Sveinsson reiknar út að torfið sem fer til að byggja 5-6 kýr- fóðra hlöðu samsvari 8 ára torf- skurði til að þekja sama hey í stökkum. Veggir slíkrar hlöðu myndu standa í 30-40 ár eða lengur og að þakið þyrfti ekkert viðhald fyrstu 5 árin 42 Með því að heygarðar og -tóftir þurfa einnig viðhald, má segja að hlaða Guðlaugs myndi borga sig upp á innan við 8 árum. En hvað kostaði að byggja sér hlöðu? í grein um heyhlöður frá 1857 er reiknað út, að til að byggja 8-9 kýrfóðra hlöðu fari um 58 dagsverk, auk kostnaðar við að flytja torf og timbur heim að bæ sem er reiknaður sem 101 hestleigudagur. Þar við bætist svo timburverðið sem er 12 rd. 48 sk. Hér er tæplega of- reiknað því tilgangur hins ónafn- greinda höfundar er að fá menn til að byggja sér hlöður, þó er hér lík- lega miðað við nokkuð langa kaup- staðarleið. Hann telur að þessi hlaða muni standa í 40-50 ár og muni borga sig upp á um 6 árum. Til samanburðar reiknar hann að kostnaður við að byggja heytóft nemi rúmum fjórðungi kostnaðar við að byggja hiöðu.43 Þetta er töluverður stofnkostnað- ur, enda segir Markús Eyjólfsson að áskorun hans um hlöðubyggingar verði svarað á þessa leið: -í“ »“ J « sf/rur Tillaga Anonymusar frá 1791 um huernig haganlegast mcetti byggja hlöðu og fjós. A er hlaðan, B fjós fyrir 8 kýr mylkar, C ranghali, D hesthús, E hesthúshlaða, F heygarður „ef hladan dugar ekki" a gluggi, huar inn er kastað heysátunum, b uindauga, c dyr til heygarðs, d dyr til hlöðu, e-e básar, f-f flórinn, g-g steinlögn til að moka mykju ofan í, h brunnhús, i útidyr fjóssins, k stallurinn I dyr til hesthúshlöðu, m hesthúsdyr, n gluggi til að láta inn um heyið, o hlið eða sund ofan í uegginn, p dyr fram í ranghala, q rœsi úr heygarðshorninu. hvorsu kann einn fátækr leigulidi at byggia svo stórt hús, sem þarf yfir allt hans hey, þar hann er ein- virki bornum bundinn, og má eigi missa vinnu sína, svo lengi, sem hann þarf til at byggia, vidrin ærit dýr og optsinnis fæzt eigi? 24 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.