Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 51

Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 51
Lútherskur rétttrúnaður og lögmál hallæranna eða „ekki án ótta“ þegar tíð var góð og náttúran gjöful? Animismi var enn við lýði eins og áður sagði, en til að skýra svartsýni af þessu tagi verður að athuga fleiri þætti í lífs- skoðun íslendinga. Hræðsla við velgengni Gamla samfélaginu íslenska má líkja við burðargrind sem styrkist undir álagi en liggur við hruni ef okið er fjarlægt. Hömlur þær sem yfirvöld lögðu á frelsi einstaklinga tóku að bresta í langvarandi góðæri sem, að dómi Jóns Espólíns, leiddi af sér „óguðleik, ósið, óreglu, sjálf- ræðisfrekju og leti“.22 Þegar lægri stéttir þjóðfélagsins eygðu þann ■nöguleika að nýta góðæri til að bæta hlutskipti sitt þótti mál til kom- ið að guð sendi hallærið á nýjan leik.23 Hlýðni við veraldleg yfirvöld var látin jafngilda hlýðni við guð24 °§ trúarviðhorfin þjónuðu samfé- lagslegu hlutverki með því að leggja hömlur á framagirni einstaklinga. í kyrrstæðu landbúnaðarsamfélagi æeð takmarkað jarðnæði og tak- æarkaða framleiðslugetu var nægju- semin því meiri dyggð þar sem nietnaður lægri stéttanna leiddi til ataka um takmörkuð gæði og „sjálf- ræðisfrekju". Afstaða kirkjunnar fór heldur ekki á milli mála. Heiðarleg fátækt telur Jón Vídalín „að ekki all- lítið gagni til himnaríkis"25 og í guðsorðabók sem fyrst kom út árið 1771 og varð vinsæl, útskýrir sr. Stefán Halldórsson á Myrká þá hættu sem fylgir velgengni: Þegar guð ann oss meðlætis, þá minnist forblinduð náttúra lítið þess þakklætis, sem skaparanum á þar fyrir að greiða, svo margir gleyma þá bæði Guði og sjálfum sér: Guðs miskunn og náð, sem átti að uppvekja hjá þeim elsku og auðsveipni, og, þekking á sín- um eigin vanmætti og óverðug- leika, svo þeim þykir sér fáir hlut- 'r ómögulegir, hvar fyrir þeir treysta uppá holdið en tapa því sanna trausti á Guði.26 hegar svona er komið eru íslending- ar farnir að tileinka sér „það sem Verst er á hinum farsælu þjóðunum, er lifa i þeim góðu löndunum", og vanrækja að tilbiðja guð „fyrir vel- lystingar sakir".27 Langvarandi góðæri þótti leiða til upplausnar í samfélaginu og minni guðrækni. Ég hef áður gert því nokkur skil hversu bókstaflega öll áföll voru túlkuð sem merki um reiði guðs vegna slíks ástands28 og læt því nægja hér að nefna lítið dæmi um hvernig guðsóttinn gat komið fram. Skagfirskan bónda dreymdi mann er sat í stól í loftinu yfir Vatnsskarði og dýfði vendi í blóðpott og hristi í allar áttir. Draummaður túlkaði sýnina: „það var Guð, sem í stólnum sat, vöndur- inn merkir straff, en blóðið merkir dauða.1'29 Guðsótti af þessu tagi verður skiljanlegur ef við höfum í huga varnarleysi fólks gagnvart sjúk- dómum og það hversu algengur, jafnvel hversdagslegur hungurdauð- inn var; en talið er að á bilinu 1600- 1800 hafi komið 58 meiri eða minni hungurfellisár á íslandi.30 í raunveruleikanum fengu menn ítrekaða staðfestingu á reiði guðs; óttinn við refsingu og dauða var því eðlilegur miðað við almenna trú og ytri aðstæður. En eigi að síður virðist samvirkni milli rétttrúnaðar annars- vegar og drepsótta og hungurdauða hinsvegar varla duga til að útskýra þá hræðslu sem kom yfir fólk þegar árgæska var óvenju mikil. Líklegra er að það geri ráð fyrir viðlíka náttúru- lögmáli og lýst er í vísunni: Ef hún Góa öll er góð, að því gæti mengi, þá mun Harpa, hennar jóð, herða mjóa strengi.31 En hverjar eru forsendur lögmáls- ins? Síðasta dæmið sem ég ætla að taka um hugsunarhátt af þessu tagi felur í sér eins konar orsakaskýr- ingu, en þegar að er gáð gerir skýr- ingin vandamálið aðeins flóknara. Heimildin er bréf ritað af Hjálmari Jónssyni árið 1874, sem ber þess merki að höfundur hefur ígrundað málið vandlega. Mér þótti gleðilegt að heyra í bréfi yðar um þá miklu blessun af síldarafla og fiskifeng; það er mikil guðs gjöf þar nyrðra, en það er eins og ég óttist fyrir, að þetta mikla síldarhlaup svo snemma á tíma muni kannske leiða eftir sig vorkulda, því svo reyndist mér það jafnan, sem og hvað annað, sem gengur yfir eðli náttúrunnar hér í þessu harðærissama landi.32 Skýring Hjálmars hefur yfirbragð skynsemishyggju; það er eðli náttúr- unnar, að minnsta kosti hér á ís- landi, að leita aftur að því jafnvægi sem raskast hefur vegna óvenjulegrar árgæsku. Orsakasamhengið virðist rökrétt, svo langt sem það nær, en hvers vegna er gert ráð fyrir því að síldarganga hafi áhrif á veðurfar? í vélgengri náttúru sem að öllu leyti er skýranleg með aðferðum náttúru- vísinda er slíkt orsakasamhengi ekki til. En þótt langt sé liðið á 19. öld er þetta ekki sú náttúra sem Hjálmar skynjar, heldur er það hin lifandi náttúra sem refsar mönnum fyrir að ganga á fjöll og tekur gjafir sínar til baka. Ef ég skil Hjálmar rétt þá hefði fiskigangan ein sér tæpast valdið honum áhyggjum, en það gerir hinn mikli fiskifengur, á óvenjulegum tíma í harðærissömu landi. Hegðun manna, líðan og hugarfar hefur áhrif á hegðun nátt- úrunnar; þegar þeim gengur allt í haginn vofir hættan yfir. Freud og lærisveinar hans hafa greint hræðsluna við hubris, eða hroka, sem afleiðingu sektarkenndar sem allir menn finna til í meira eða minna mæli. Aðeins refsing getur linað sektarkenndina sem magnast við langvarandi velgengni. Bent er á að Forn-Grikkir, sem voru tiltölulega lausir við sektarkennd miðað við aðra menningarhópa, skilgreindu hrokahræðslu sem einn af undir- stöðueiginleikum sálarlífsins.33 Á 17. og 18. öld voru íslendingar langt frá því að vera lausir við sektar- kennd. Hart uppeldi var trúaratriði,34 en í landi hungurdauðans er líklegt að kærleiksboðskapurinn hafi ekki síður magnað samviskubit. Engar heimildir greina frá líðan þeirra sem í hallærum neyddust til að vísa ver- gangsfólki frá sínum bæjardyrum, en kvæðið Varúðarvísa, sem Hálfdan Einarsson orti að afstöðnu hallæri árið 1758 gefur innsýn í hugarástand þjóðarinnar: Syndir hyl sekra vondar (sjá brár, hvernig þær tárastl), tak hjörð þína, ó hirðir! harmandi þér á arma.35 SAGNIR 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.