Sagnir - 01.04.1989, Page 14

Sagnir - 01.04.1989, Page 14
Þóra Kristjánsdóttir úr hinum ólíkustu stéttum þjóðfé- lagsins sem áttu umhverfisvernd og áhuga á menningararfinum sem sameiningartákn. Frumkvæðið átti stjórn Arkitektafélags íslands, en formaður þess var þá Guðrún Jóns- dóttir. Fékk Arkitektafélagið til liðs við undirbúning stofnfundarins öll aðildarfélög Bandalags íslenskra listamanna og ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna, svo og ýmis önnur félög svo sem Stúdentaráð Háskóla íslands. Samtökin voru stofnuð 1. desember 1972 eftir fjöl- mennan útifund og blysför um mið- borg Reykjavíkur. Tvímælalaust má greina áhrif frá námsmannahreyf- ingum þeim sem kenndar eru við 1968-kynslóðina þegar þessi mál eru skoðuð. Sá hljómgrunnur sem friðun húsanna fékk meðal almenn- ings, jafnt menntamanna, sem ann- arra, sem til þessa höfðu lítið sinnt slíkum málum, og þær baráttuað- ferðir sem viðhafðar voru, allt var þetta tímanna tákn. Þessi fjölda- hreyfing hafnaði þarna forræði yfir- valda og tók upp nýjar baráttuað- ferðir. Og baráttan átti eftir að standa í mörg ár. Borgarbúar skiptust í tvo andstæða hópa, þá sem vildu nýj- ar glæsibyggingar á þessum stað í hjarta borgarinnar og þá sem vildu með öllum ráðum halda í menningar- arfinn og gamla svipmót bæjarins. Síðarnefndi hópurinn tók sig til eina vornótt 1973 og málaði öll húsin, þannig að þau gáfu fyrirheit um það hvemig þau gætu prýtt borgina, ef þeim yrði gert til góða. Og nýskipuð húsafriðunamefnd lagði til hvað eftir annað að þau yrðu friðuð, án árangurs. Árið 1977 kviknaði í húsunum og tókst naumlega að bjarga þeim frá eyðilegg- ingu. Var talið að þar hefði verið um íkveikju að ræða. Það var svo loks árið 1979 að þáverandi menntamálaráð- herra, Vilmundur Gylfason, tók af skar- ið og fékk samþykkt fýrir friðun hús- 29 anna. Torfusamtökin gerðu stuttu síðar leigusamning við íjármálaráðherra og menntamálaráðherra um tólf ára um- ráð yfir húsunum og endurreisn þeirra. Næstu ár einbeitti hópurinn sér að við- gerðum á húsunum, og hýsa þrjú hús nú veitingastofur og listsýningarsal. 1985 var sett á laggimar sjálfseignar- stofnunin Minjavemd með þátttöku fjármálaráðuneytisins, Þjóðminjasafns íslands og Torfusamtakanna, og sér hún nú um endurbyggingu húsanna.30 Viðfangsefni húsa- friðunar En hverjar eru forsendur aðfara sem þessara? Hvað getur réttlætt það, að samfélagslegt mat sé lagt á það sem einstaklingar gætu litið á sem skerð- ingu á sínum persónulega eigna- rétti? Hvar eru línur milli „opinbers" umhverfis og umhverfis einstaklings- ins, sem hann velur sér sjálfur? í fyrsta lagi getur verið um að ræða hús eða mannvirki, sem svo augljóslega eru sameiginleg menn- ingarsöguleg verðmæti, að í augum uppi liggur, að þau eru eign samfé- lagsins sem heildar og að samfélag- inu beri að annast viðhald þeirra og varðveislu. Dæmi slíks eru Hóla- dómkirkja, Bessastaðastofa, Viðeyjar- stofa og -kirkja; reyndar ýmis hús Smíðarhús á Skipatóni uið Eyjafjörð, byggl 1843, endurbyggl 1986. 12 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.