Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 38
Sveinbjörn Rafnsson
„Minníngar-málverk" yfir Jón Eiríksson eftir
Óiaf Ólafsson á Kóngsbergi. í hinni prentuðu
œvisögu Jóns er allur texti þess þýddur og
táknin útskýrð. Þar segir að málverkið hafi
„nokkra líkíng sem af æruporti". Framan við
það standi „tvœr uppaðdregnar styttur af hvít-
um marmarasteini ... niðr við fótstykkið á
hœgri styttunni er málað íslands vopn, krýndr
þorskr flattr ... utanvið fótstykkið sitr jarð-
yrkjugyðjan Ceres með kornvöndul sinn, sorg-
andi, og styðr hönd undir kinn. Á vinstri stytt-
unni niðrvið fótstykkið er máluð hugmynd
skarpleiksins ... utanvið fótstykki þessarar
styttu sitr vísdómsgyðjan Mínerva með sitt
gorgonshöfuð, eins hnuggin og hin. “
lj. r> MtSQ.NTW I2A\D1A H
I I j<;!.TOU»[NTL'lSO»lUsB
'[{fösDUirannrmiumsLsS
jusamiuTTAKwrr, 1
'l;';LTSTL\nL'KLVmmM
EHEI' QVAIÍTAH „ 1
föí rauranKŒTn- I
Lff I\ H3.VÍHTTÍ1,1(\TL:i'.n?'.|
'fíýit ATCVEÍIDEJI ,y
rMnœnrr r.mHPimTEM'
nwissoRTUHs., I
'h toumMmmiímilo
mMHJKHR CUEU '
.' XÁTÚÍ •:
- AMDCfcXXYlII
DŒ JtAIiG
. deía'tut
A KDCCLXXXVII
DIE 20' KARITI
miAiDGWtenBiBir
diction) hafi verið í höndum
þingsins, sem enn haldist, fyrst í
fjórum yfirdómum yfir hverjum
fjórðungi landsins og síðan einnig í
fimmtardómi. Um opinberar aðgerð-
ir, nýjar tilskipanir og annað varðandi
stjórnarmálefni hafi verið fjallað í
lögréttu sem lögsögumaður stjórn-
aði og þar sem sátu með honum
fremstu menn landsins, þar með
taldir biskuparnir.8 Þannig ber lýs-
ing Jóns nokkur einkenni stjórnar-
deildakerfis (kollegial system) danska
einveldisins, ekki síst lýsing hans á
lögréttu hinni fornu. Ekki verður
það þó talin meiri glámskyggni en
þegar valdskiptingarkenningar mót-
aðar af bandarísku og frönsku bylt-
ingunum eru látnar einkenna ís-
lenska „þjóðveldið" í sagnaritun
nútímans. Það er yfir allan efa hafið
að hin íslenska réttarsaga Jóns er
afrek, öll byrjun er erfið og sérhvert
brautryðjandaverk stendur til bóta.
í sama riti (1762) birtir Jón yfirlit
yfir íslenska verslunarsögu, hið fyrsta
sem kom út á prenti. Þetta er lykil-
verk fyrir alla síðari sagnaritun bæði
um verslunarsögu og pólitíska sögu
íslendinga og einnig eru hér settar
fram ýmsar rökfærslur og viðhorf sem
síðar áttu eftir að stinga upp kollin-
um í sjálfstæðisbaráttu íslendinga.
Pólitískt frelsi skoðað í Ijósi sög-
unnar var mikilvægt viðfangsefni 18.
aldarmanna. í Danmerkursögu Mall-
ets sem út kom fyrst 1755 á frönsku
var tíundaður mjög þjóðarandi ís-
lendinga hinna fornu, náttúrleg skyn-
semi og frelsisþrá sem birst hefði í
stjórnarháttum hins forna lýðveldis
þeirra. Var af því tilefni vitnað til
hugmynda Montesquieus um frelsi
þjóðanna. Hinu forna lýðveldi ís-
lendinga var jafnað til klassískrar
fornaldar Grikkja með blómstrandi
rnenningu, skáldskap og sagnaritun.9
Það var einnig skoðun Jóns Eiríks-
sonar að frelsið og styrkurinn til
verslunar við útlönd hefði einkennt
íslenska sögu til forna. En á svo
fornri og frumstæðri tíð hefði skort
þekkingu á búskaparefnum, og hugs-
unarháttur bardagamanna hefði ver-
ið sá að fyrirlíta kaupmennsku.
Borgarastríð á 12. og 13. öld á ís-
landi og kunnáttuleysi í skipasmíð-
um og siglingum áttu sinn þátt í falli
íslenskrar verslunar til forna. Síðan
fylgdi uppgjöf fyrir Norðmönnum
sem dró enn úr krafti íslensku þjóð-
arinnar til verslunar. „Med Friheden
tabtes den almindelige Virksomhed,
som den forer med sig, de Leilig-
heder, som den for havde givet."
Með falli frelsisins féll hin almenna
athafnasemi niður sem því fylgdi,
tækifærin sem það hafði áður gefið.
Klerkar páfavaldsins hefðu svo lagst
36 SAGNIR