Sagnir - 01.04.1989, Side 63

Sagnir - 01.04.1989, Side 63
Um blessaðan lífs-ávöxt á 17. og 18. öld 1636, að þeir „„áminni umvöndunar- lausa foreldra og húsbændur, haldi strákum og stelpum til vinnu og erfiðis og spari þeim ekki hrísið eður agann...““ Stúlka ein var dæmd árið 1652 til 32ja vandar- hagga fyrir að draga nauðsyn sakra- mentisins í efa og hafa óviðeigandi orð um móður sína. Fyrir kom að börn voru strýkt til dauða og þá af foreldrum sínum.18 Nú er húsagatilskipunin frá miðri 18. öld, en eins og sjá má af ofan- greindum dæmum og tilskipunum úr Bessastaðapóstum hefur verið ætlast til enn harðari aga á 17. öld, áður en áhrifa píetismans fór að gæta. Húsagatilskipunin bendir fólki á að vera ekki með of mikla blíðu og linkind við börn, en grípa óhikað til vandarins hvenær sem ástæða þyki til, sem virðist hafa verið nokkuð °ft. I 8. gr. húsagatilskipunarinnar segir svo um refsingar: Fremji börnin nokkuð ósæmilegt, þá eiga foreldrarnir ekki eftir hingað til brúkanlegum siðvana að láta of-mikið eftir þeim, heldur straffa þau með alvarlegum orð- um (þó fyrir utan blót og ósæmi- leg illyrði) ellegar og so með hendi og vendi eftir ásigkomulagi yfirsjónarinnar; þó skulu öll höf- uð-högg og að slá í höstugri reiði vera hér með ölldungis fyrirboð- in ... Mögli börnin eður láti sjá á sér fúlt, reiðuglegt andlit, þá þeim er skipað nokkuð eða þá þau eru öguð, þá tyftist þau með því meiri alvörugefni, þangað til þau læra að sýna sig ástúðleg og auð- mjúk.19 Þó farið væri að halda börnum að vinnu um leið og aldur þeirra leyfði, munu þau þó hafa notið nokkurs frjálsræðis fyrstu æviárin, en líklega gætti oftast mikillar hörku við minnstu yfirsjónir. Lítum á nokkur dæmi. Jón Steingrímsson (f. 1728) lýsir því í endurminningum sínum hvernig hirtingar þóttu sjálfsagðar. Eitt sinn hafði hann ásamt stúlku á bænum tekið hest í leyfisleysi því þau ætluðu að forvitnast um eitt- hvað. Ekki fór betur en svo að hest- urinn fleygði þeim af baki, en þau lágu lengi í roti og blóði ötuð. Jón segir: Fáa leiðir gott af forvitninni, og sannaðist það hér. Lof sé guði, sem nú hlífði, að satan fékk ei meira gert oss til skaða. Þó höfð- um við vit á því að segja ei af for- vitni okkar, að ei fengjum fleng- ing þar ofan á.20 í annað sinn ætlaði hann að skoða klett, sem honum hafði verið sagt að ókindur byggju í. Datt hann þá í ána sem rann þar hjá, en svo vel vildi til að móðir hans var nærri og gat bjargað honum: Hagaði guðs forsjón því svo til, að mig rak þar að landi, er hún var fyrir; annars hefði eg lífi tapað. Hún greip mig upp, hljóp með mig heim að bæ, svipti af mér vosbúðinni og strýkti mig milli hæls og hnakka. Mátti það vel svo vera, þó þá fyndist þungbært.21 Magnús Pálsson (f. 1779) hefur hlotið mjög harðneskjulega með- ferð í æsku, eins og fram kemur í ævisögu hans. Hann segir svo um reynslu sína á sjöunda aldursári: Þá fór eg að læra Pontoppídans spurningar og móðir mín setti mér blað á dag að læra, en ef eg kunni ekki vel, fékk eg óvægar hýðingar og snoppunga fyrir litla yfirsjón.22 Og ekki tók betra við þegar frændi hans fór að hlýða honum, níu ára gömlum, yfir latínuna; „fékk eg fleiri SAGNIR 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.