Sagnir - 01.04.1989, Side 67

Sagnir - 01.04.1989, Side 67
.Óttalegur barningur til að bjrrja með' „Betra.hægar og betur ert hratt og ver. Ekki vélrita miHifyrirsagnir! skiljið frekar eftir bit". Eggert Þór Bernharðsson að vélrita I. árgang Sagna, en á veggnum fyrir aftan hann standa ofangreind heil- rœði ti/ þeirra sem unnu að blaðinu. áhugasamt fólk sem vildi aðstoða við útgáfuna gat skráð sig. Einkum þurfti að létta'undir við vélritun efn- 'sins á strimla sem við höfðum út- búið sjálfir, en þeirvoru síðan límd- ir á blöðin sem fjölritað var eftir. Pólk skráði sig á þennan lista og vann svo milli eitt og þrjú eða þrjú °g fimm o.s.frv. Menn voru misdug- legir að mæta og vélritun var ekki öllum gefin en allt gekk þetta þó UPP að lokum. Oft voru vinnubrögðin hjá okkur dálítið skrautleg enda vorum við hinir mestu viðvaningar í útgáfu- vinnu. Áður en hafist var handa um uPpsetningu blaðsins á fyrstu árun- um var fastur liður að fara í verslun- lr>a „Pennann" til þess að kaupa nauðsynleg hjálpartæki, t.d. lím, Þrykkistafi í fyrirsagnir og allra- handa skraut sem mátti á auðveldan bátt festa á blöð. Síðan byrjuðum við að vinna við ljósaborðin eftir öll- Urn kúnstarinnar reglum en æði oft brá þó við að fyrirsagnir yrðu skakk- ar eða skrítnar í laginu. Oft var glatt a hjalla og galsi í mönnum á loka- sPrettinum og útlit fyrstu árgang- anna ber þess nokkur merki, eink- um annar árgangurinn. Þegar hann var í burðarliðnum var sem rynni á okkur hálfgert skrautæði, aðallega þó undir morgun eftir langar tarnir. Við máttum eiginlega hvergi sjá autt svæði á blaðsíðu án þess að troða þar inn einhverri skreytingu og stundum var hugmyndaflugið svo yfirgengilegt að við áttum sjálfir í erfiðleikum með að skilja hvað ein- stakar skrautmyndir táknuðu þegar upp var staðið. Vitaskuld var þetta til lýta, það sér maður eftir á, en skrautfíknin eltist af mönnum. Raunar er eitt helsta einkenni Sagna á síðari árum einmitt markviss notk- un á blaðsíðum, ekki er þrengt um of að texta og myndum heldur eru þær látnar vinna með rýminu. Slíkt er til fyrirmyndar. Fyrsti árgangur Sagna átti að koma út í fimm hundruð eintökum en við vildum vera fínir á því og nota góðan pappír. Þegar til kom reyndist pappírinn svo góður að fjölritunarvélin átti í hinum mestu erfiðleikum með hann, þannig að upplagið af fyrsta heftinu varð tæp- lega fjögur hundruð eintök. Til að ritið stæði undir sér urðum við að selja á milli tvö og þrjú hundruð blöð. Þrátt fyrir erfiðleikana tókst að lokum að greiða allan kostnað við útgáfuna. Nú er fyrsti árgangurinn orðinn „raritet" og kostar líklega meira en væn jólabók. Auðvitað verður að geta þess í sambandi við fjármögnun fyrsta ritsins að við inn- heimtum auglýsingar sem voru sett- ar aftast í það. Þeim hafði að mestu verið safnað í innsta hring og voru af ólíku tagi, t.d. var þarna auglýs- ing um einangrunarefni fyrir lestar- klæðningar í togurum. Mér finnst nú harla ólíklegt að lesendur blaðsins hafi haft gagn af slíku efni en auðvit- að voru flestir sem auglýstu í ritinu aðeins að styrkja góðan málstað eða losa sig undan ágangi ættingja eða vina. Fyrsti árgangurinn gerði nú ekki mikið meira en að bera sig. Þar sem við fórum svo seint af stað gafst ekki kostur á því að fá fjárhags- aðstoð frá Félagi sagnfræðinema nema að litlu leyti. Félagið hjálpaði upp á sakirnar þegar útgáfan stóð í járnum og lánaði pening upp á þau býti að það fengi hann endurgreidd- an þegar fyrirtækið færi að skila hagnaði. Við stóðum í skilum. SAGNIR 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.