Sagnir - 01.04.1989, Page 102

Sagnir - 01.04.1989, Page 102
Helgi Skúli Kjartansson lungu (í raka andardráttarins). Slíkt vökvatap fylgir miklum umhverfis- hita, og hætt ervið að stundum hafi verið býsna heitt á reifuðum ung- börnum.20 Einnig er það fylgifiskur sótthita, þannig að vökvatap hefur bæst við aðrar afleiðingar hitasótt- anna sem oft gengu á íslandi og áttu mikinn þátt í ungbarnadauðanum. Einkum mun ungbarnadauðinn hafa tengst niðurgangspestum,21 en niðurgangur er einmitt hin aðal- hættan sem valdið getur auknu vökvatapi ungbarna. Kúamjólkur- gjöfin hefur sjálfsagt að einhverju Tilvísanir 1 Dagný Heiðdal: „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir." Sagnir. Tímarit um söguleg efni 9, Rv. 1988, 65-71. 2 Sbr. rit Gísla Gunnarssonar: The Sex Ratio, the Infant Mortality and Adjoining Societal Response in Pretransitional lceland (Meddelande frán Ekonomisk-historiska institu- tionen, Lunds Universitet, nr. 32), Lundi 1983, sjá einkum 8-10. 3 Sigrfður Sigurðardóttir: „Höfðu kon- ur börn á brjósti 1700-1900?" Sagnir. Blað sagnfrœðinema uið Háskóla Is- lands 3, Rv. 1982, 28-33. 4 Einkum í grein Lofts Guttormssonar: „Barnaeldi, ungbarnadauði og við- koma á íslandi 1750-1860." Athöfn og orð. Afmœlisrit helgað Matthíasi Jónassyni áttræðum, Rv. 1983, 137- 169. 5 Helgi Þorláksson: „Óvelkomin börn?" Saga. Tímarit Sögufélags 24, Rv. 1986, 79-120 6 Darby, W.J.: „Nutrition problems in the industrialized world." í Sinclair, H.M. og Howat, G.R. (ritstj.): World Nutrition and Nutrition Education, Oxford 1980, 27-35. Darby vitnar (29) í fullyrðingar um, að brjósta- mjólk hafi að engu leyti valdið hinni miklu minnkun barnadauða í þróuð- um löndum á 20. öld, enda hafi hann minnkað óðum á sama tíma og brjóstagjöf var að hverfa úr tísku. 7 Davidson, Stanley o.fl.: Human Nutrition and Dietetics, 7. útg., Edin- borg 1979, 522. 8 Guthrie, H.A.: Iritroductory Nutrition, St. Luis 1979, 445. 9 Sjá t.d. lýsingu hjá Darby: „Nutrition problems...“, 28. 10 Spree, Reinhard: „Die Entwicklung der differentiellen Sáuglingssterblich- keit in Deutschland seit der Mitte des 19. Jahrhunderts. Ein Versuch zur leyti valdið niðurgangi.22 Hitt skiptir þó meira máli að kúamjólkin hefur gert ungbörn viðkvæmari fyrir vökva- tapinu þegar þau fengu niðurgang af völdum smitnæmra sótta. Vökvaskortur lýsir sér fyrst í því, að vatn minnkar í vefjum líkamans. Þegar vatnsskorturinn er orðinn mikill, dregur svo úr þvagmyndun að of mikið safnast af salti og öðr- um úrgangi í vökva líkamans. Barn- ið verður lystarlaust og óvært og get- ur fengið krampa. Lifi það lengi í þessu ástandi, geta hlotist af varan- legar heilaskemmdir.23 Mentalitáts-Geschichte." í Imhof, A.E. (ritstj.): Mensch und Gesundheit in der Geschichte (Abhandlungen zur Geschichte der Medizin und der Naturwissenschaften, 39. bindi), Husum 1980, 251-278; sjá einkum 255-260. 11 Dagný Heiðdal: „Þeir sem guðirnir elska...“, 68. 12 Guthrie: Introductory Nutrition, 439- 440, 444-445. 13 Davidson o.fl.: Human Nutrition, 524-525. 14 Davidson o.fl.: Human Nutrition, 526. 15 Guthrie: Introductory Nutrition, 455. Guthrie telur pelabarnið þurfa 87 ml vatns á dag fyrir hvert kg líkams- þyngdar, en brjóstabarnið ekki nema 20 ml. 16 Helgi Þorláksson: „Óvelkomin börn?“, 84-87. 17 Sömu áhrif hefði það haft ef ung- börnum hefði verið gefin sauða- mjólk, því að hún er miklu feitari en kúamjólk. — Jón Steffensen: Menn- ing og meinsemdir. Ritgerðasafn um mótunarsögu íslenzkrar þjóðar og baráttu hennar við hungur og sóttir, Rv. 1975, 250. Jón reiknar með 105 hitaeiningum í 100 g sauðamjólkur á móti 65 í kúamjólk. Hafi sauðamjólk verið notuð til muna sem ungbarna- fæði, kynni það að koma fram í árs- tíðadreifingu ungbarnadauðans, sbr. nmgr. 20 hér á eítir. 18 Loftur Guttormsson: Bernska, ung- dómur og uppeldi á einueldisöld. Tilraun til félagslegrar og lýðfræði- legrar greiningar (Ritsafn Sagnfræði- stofnunar 10), Rv. 1983, 142. 19 Það er eðlilegur vandi ólæsra mæðra í þróunarlöndum, en á Vesturlönd- um er víst líka allrík tilhneiging til að Niðurstaða: Vegna of hlýrra reifa, tíðs lasleika með hita, og alveg sér- staklega vegna smitandi niður- gangssótta hefur íslenskum börnum á fyrri öldum verið hætt við vökva- skorti. Þá gat líf barnsins verið undir því komið hvort það naut móður- mjólkurinnar, eða hvort því var gef- in kúamjólk, sem leiddi til meira vökvataps með þvagi. Hinn feyki- mikli ungbarnadauði hefur að veru- legu leyti legið í því að börn dœju úr þorsta, einkum á því tímabili þegar þau voru lítt eða ekki lögð á brjóst. nota mæliskeiðar ögn kúfaðar frem- ur en sýna barni sínu þann nánasar- skap að strjúka hverja skeið slétt- fulla. (Sjá t.d. enska rannsókn sem greint er frá hjá Davidson o.fl.: Hum- an Nutrition, 526.) 20 Guthrie: Introductory Nutrition, 455, telur að við lofthita 34° C dugi óþynnt kúamjólk ekki lengur til að bæta ungbarni vökvatapið með svitanum og þau hitamörk lækka eftir því sem barnið er hlýlegar klætt. Sviti er að vísu saltur, þó ekki eins saltur og okkur finnst þegar við smökkum hann hálfþornaðan á hörundi okkar, og kúamjólkin er óþarflega sölt, jafn- vel fyrir barn sem svitnar mikið. — Um reifar sjá, auk greinar Dagnýjar Heiðdal: „Þeir sem guðirnir elska...“, lýsingu Lofts Guttormssonar: Bernska, ungdómur..., 143-144, einkum nmgr. 59. Loftur bendir á öðrum stað („Barnaeldi, ungbarnadauði og við- koma...“, 145) á, að í sænsku byggðar- lagi, þar sem börn voru ekki alin á brjósti, hafi ungbarnadauði verið langmestur að sumrinu. Þar er e.t.v. ástæða til að gruna samverkan sumarhitanna og hinnar söltu kúa- mjólkur, ef ekki sauðamjólkur, sbr. nmgr. 17 hér á undan. 21 Jón Steffensen ræðir um þetta í greininni „Hungursóttir á íslandi" í greinasafninu Menning og mein- semdir, einkum 381-382, og telur ekki ósennilegt að um 70% ungbarna- dauðans hafi, m'eðan hann var hvað mestur, tengst niðurgangspestum. 22 Dagný Heiðdal: „Þeir sem guðirnir elska..." Dagný fullyrðir það (67) einungis um rjómabland og óheppi- legan mat annan en mjólk. 23 Davidson o.fl.: Human Nutrition, 326. 100 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.