Félagsbréf - 01.07.1957, Síða 94
Hver eru helzÉu vandamál ungs
rithöfundar á fslandi í dag?
Ofanrita'öri spiirningu sló ég fram viS IndriSa G. Þorsteinsson,
er við hittumst af tilviljun á götu i haust. En fyrir því, að
svar I. Þ. var þannig, að mér þótti állmiklu skipta, bað ég
hann að skrá það. Tveim dögum síðar barst mér þetta bréf, sem
rithöfundurinn hefur góðfúslega leyft mér að birta. — Ritstj.
JJERRA RITSTJÓRL Eitt af þeim vandamálum, sem ég lief við
að stríða þessa stundina, er að geta svarað af einhverri skyn-
semi þeirri spurningu þinni, liver séu lielztu vandamál ungs rithöf-
undar 'á Islandi í dag. 1 þessu liggur í rauninni það svar, að við-
fangsefnið hverju sinni sé mesta vandamálið og því meira vanda-
mál, sem höfundur heldur lengra inn í frumskóg ritmennskunnar.
Fyrir utan vanda starfsins koma vandamál í sambandi við efnahag
og í framhaldi af honum starfsskilyrðin og á hinu leytinu ástand
þjóðfélagsins á hverjum tíma, sem alltaf hlýtur að grípa mjög inn
í störf rithöfunda, ungra sem gamalla og skapa þeim örlög.
Flestir höfundar halda því fram, að mesta mein þeirra sé að
liafa ekki efnalegar ástæður til að sitja við skriftir. Og ef dæma
á eftir þeim tíma, sem fer í að setja saman smæstu málsgrein, þá
eru ritstörf sport fyrir milljónamæringa. Golf og laxveiðar eru
hreint hégómamál, samanborið við þau ósköp, sem það kostar að
skrifa bækur. Nú hefur því verið haldið fram, að skáld og ritliöf-
undar hefðu gott af því að vera fátækir og velgengni spillti þeim.
Hins vegar er það staðreynd, að niðurlægjandi ástand eins manns
göfgar ekki verk hans. Engir rithöfundar reikna vinnu sína í pen-
ingum og hér á landi gengur þetta svo langt, að rithöfundafélögin
eru að þrefa við Ríkisútvarpið um mínútugjald, sem verður aldrei