Félagsbréf - 01.07.1957, Qupperneq 129
FÉLAGSBRÉF
127
um eintakafjölda til félag'smanna á
mjög lækkuðu verði.
Er þessi háttur allmjög tíðkaður
erlendis og virðist ekkert vera því
til fyrirstöðu að taka hann einnig
upp hér, þegar hin nýja skipan út-
gáfumála félagsins er orðin virk.
I framtíðinni verður tilkynnt um
bók mánaðarins með tveggja mán-
aða fyrirvara. Þannig er t. d. hug-
myndin að öllum félagsmönnum verði
í janúarbyrjun send bréf með upp-
lýsingum um bók þá, sem út á að
koma í marz, heiti hennar, höfund,
efni og verð. Jafnframt verður póst-
lagt spjald, þar sem spurzt er fyrir
um, hvort félagsmaður óski að fá
viðkomandi bók senda. Ef hann ekki
óskar þess, skal hann fyrir 1. næsta
mánaðar (í þessu tilfelli fyrir 1.
febrúar) póstleggja spjald þetta.
Þarf hann hvorki að frímerkja
spjaldið né rita neitt á það, því
að nafn hans stendur þar þegar. Ef
félagsmaður ekki afþakkar nefnda
bók á framangreindan hátt, þ. e.
með því að leggja spjaldið í póst
innan tilskilins tíma, lítur félagið
svo á, að hann óski að fá bókina
senda, og er hann þá skyldur til að
greiða fyrir hana, er eftir verður
gengið.
Aðalskrifstofan í Reykjavík mun
senda bækurnar beint til félagsmanna
um land allt. Útkomudagur verður
auglýstur um það leyti, sem bæk-
umar eru póstlagðar. Útburður í
Reykjavík hefst ekki fyrr en nokkr-
um dögum síðar, enda mun mælzt
til þess við Reykvíkinga, að þeir
nálgist bækumar í afgreiðslu félags-
ins, ef þeir geta komið því við.
Þessi víðtæka breyting krefst mjög
aukinna starfa í skrifstofu félags-
ins, en ætti aftur á móti að létta
störf umboðsmanna svo, að þeir gætu
einbeitt sér að því að stórauka tölu
félagsmanna, enda verður nú mun
gimilegri þátttaka í Almenna bóka-
félaginu en áður hefur verið í ís-
lenzkum bókafélögum.
Ásamt þessu fimmta hefti Félags-
bréfs koma út síðustu bækur, sem
félagið sendir frá sér eftir hinum
gömlu skipulag'sháttum. Félagsbæk-
umar eru:
Einar' Benediktsson: Sýnisbók.
Er þar að finna úrtak eða sýnis-
hom úr öllum bókum Einars. Hefur
stjóm útgáfufélagsins Braga og
bókmenntaráð Almenna bókafélags-
ins unnið saman að útgáfunni. Ber
sérstaklega að þakka foi-manni
Braga, Magnúsi Víglundssyni, ræð-
ismanni og Kristjáni Albertssyni,
sem starfið einkum mæddi á fyrir
hönd bókmenntaráðs og svo Pétri
Sigurðssyni prófessor, sem gekk end-
anlega frá útgáfunni.
Jóhannes Kjarval á nokkrar teikn-
ingar í bókinni, og eykur það enn
verðgildi hennar.
Hundadagastjóm Pippins IV. eftir
John Steinbeck er hin félagsbókin
að þessu sinni. Þetta er síðasta bók
hins þekkta höfundar og sérlega
skemmtileg aflestrar.
Eins og kunnugt er, hét félagið 5
félagsbókum árlega. Ætlunin var að
nefndar bækur teldust fyrri hluti
félagsbóka ársins 1958, en hinar
þrjár kæmu út síðar. Um áramótin
verður hins vegar breyting sú, sem
áður getur, svo að síðasti hlutinn