Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 16
Samtalið
Ifltorade GatyadB
Margir viðburðir í borginni voru á árinu tengdir menningarborg
arárinu. Borgarstjóri ræsir Reykjavíkurmaraþonið 19. ágúst.
Ljósm. Unnar Stefánsson.
Einir 15 viðburðir voru sameiginlega á dagskrá
beggja. Að öllu samanlögðu má auðvitað telja að
flutningur Baldurs eftir Jón Leifs og Svanavatnsins
í uppfærslu San Francisco ballettsins undir list-
rænni stjórn Helga Tómassonar gnæfi hátt. Verk-
efnin voru samtals 284 og einstakir viðburðir yfir
2500 og talið að hálf önnur milljón manna hafi sótt
þá. Eg vil heldur leggja áherslu á hversu víðtæk
starfsemin var og þátttakan almenn. Þannig var eitt
ijölmennasta verkefnið, Listamenn í skólum, á
vegurn Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur þar sem 30
listamenn komu að sköpun listaverka á hinum
ýmsu sviðum með 15 þúsund grunnskólanemum
og kennurum þeirra. Mörgum þykir vafalaust eftir-
nrinnilegust menningarnóttin 18.-19. ágúst, öðrum
ljósahátíð eða þá kórsöngur 2000 barna á Arnar-
hóli og svo mætti lengi telja. Þá er líka rétt að hafa
í huga að á árinu var haldið upp á þrjú afmæli
menningarstofnana, fimmtíu ára afmæli Þjóðleik-
hússins, fimmtíu ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar
íslands og þrjátíu ára afmæli Listahátíðar í Reykja-
vík. Þessi afmælisbörn áttu ríkan þátt í að gera við-
burði menningarborgarársins fjölbreytta.“
- Hve mikið kostuðu atburðir menningarborgar-
ársins?
„Strax og undirbúningur menningarborgarársins
hófst var mikil áhersla lögð á vandaðan undirbúning,
einkum að því er snerti ijárhagshliðina. Það var enda
nauðsynlegt vegna þess fyrirvara sem á þurfti að
hafa vegna styrkumsókna til tilraunasjóðs Evrópu-
sambandsins sem settur var á stofn vegna menn-
ingarborga árið 2000 og til Norræna menningar-
sjóðsins. Báðir þessir sjóðir veittu myndarleg fram-
lög til nokkurra verkefna, s.s. uppfærslunnar á
Baldri. Þegar í október 1998 var gert samkomulag
milli borgarinnar og ríkisins um ijárhagsramma
menningarborgarársins á þá lund að borgin legði
verkefninu til 275 millj. króna, ríkissjóður 235
millj. kr. og verkefnið sjálft aflaði sér 100 millj. kr.
Áætlað var að 80 millj. kr. færu í almennan rekstur,
105 millj. til kynningar heima og erlendis og 425
millj. til einstakra verkefna, m.a. sameignlegra verk-
eíha M2000 og einstakra sveitarfélaga. Þess var vand-
lega gætt að öll verkefni héldust innan áætlunar og
jafhan væri borð fyrir báru. Þá tókst einstaklega vel
samstarf við finun fyrirtæki sem nefnd voru máttar-
stólpar menningarborgarársins og sex aðra sam-
starfsaðila sem áttu góðan þátt í kynningu á M2000
og einstökum viðburðum ársins. Sérstakt fjármála-
ráð hélt traustum höndum um fjármálahlið menn-
ingarborgarverkefnisins og stóð að öflun styrktar-
aðila þess. Ég hygg að aldrei áður hafi tekist jafn
viðamikið samstarf opinberra aðila og einkaaðila
um verkefni á sviði menningarmála og mér er til
efs að íslensk menning hafi í annan tíma fengið
jafn mikla og góða kynningu á erlendum vettvangi.
Velta menningarársins nam um 644 milljónum
króna. Þegar Ijóst varð að afgangur yrði af rekstri
verkefnisins lagði stjórn þess til að hann yrði
lagður í sérstakan sjóð, menningarborgarsjóð sem
veitti styrki til nýsköpunar á sviði lista, menningar-
verkefna á landsbyggðinni og til menningarverk-
efna fyrir börn og ungt fólk og var það samþykkt
af ríki og borg. Sjóðurinn hefur tekið til starfa og
auglýst eftir verkefnum. Meðal þess lærdóms sem
draga má af menningarborgarverkefninu er að afar
nauðsynlegt er sveitarfélögum og öðrum sem ætla