Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 24

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 24
438 Söfn Eiríkur Þoríáksson forstöðumaður: Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús Með opnun Listasafns Reykjavíkur í Hafnar- húsinu við Tryggvagötu í apríl 2000 opnuðust nýir möguleikar til sýningarhalds í Reykjavík og öll starfsemi safnsins fékk aukinn byr í seglin. Með opnun Hafnarhússins meira en tvöfaldaðist sýningarrými safnsins, sem varð til þess að nú er mögulegt að kynna með skipulegri hætti en áður hina miklu listaverkaeign þess. Auk þess öðlaðist safnið sérstakan vettvang til að þjóna mun betur en áður myndlist sem orðið hefur til undanfarna ára- tugi og byggir á tækni og framsetningu, sem var nær óþekkt fyrir tveimur áratugum; nú er einnig hægt að hýsa í safninu fjölbreytta menningarvið- burði og atburði, sem áður var erfitt að setja upp í listasöfnum hér á landi. Loks er í Hafnarhúsinu útisýningarsvæði, sem er einstakt fyrir íslenskt listasafn, og getur því orðið mikil lyftistöng fyrir höggmyndalist í landinu. Listasafn Reykjavíkur starfar nú á þremur stöðum í borginni, því auk Hafnarhússins eru Kjarvals- staðir á Miklatúni og Ásmundarsafn við Sigtún hlutar þess, en jafnframt hefur safnið umsjón með útilistaverkum Reykjavíkurborgar. Segja má að það safn listaverka sem Reykjavíkur- borg hafði eignast í áranna rás hafi fyrst fengið Eiríkur Þorláksson lauk BA-prófi í sagnfrœði frá Háskóla íslands 1978 og MA-prófi i listasögu frá Universit)’ oflowa í Banda- ríkjunum 1981. Hann hefur stundað kennslu í listasögu á fratn- halds- og háskólastigi og var listgagnrýnandi við Morgunblaðið 1990-1997. Eiríkur varfram- kvœmdastjóri Menntastofnunar Islands og Banda- rikjanna 1989-1997, en hefur verið forstöðumaður Listasafns Reykjavikur frá 1997. heimilisfestu árið 1973 þegar Kjarvalsstaðir voru opnaðir. Þar er að finna tvo stóra sýningarsali, sem strax urðu mjög eftirsóttir, en fyrstu tvo áratugina voru þeir leigðir einkaaðilum til sýninga samhliða því sem settar voru upp sýningar á vegum húsráð- enda. Þetta fyrirkomulag varð til þess að aðeins voru takmarkaðir möguleikar á að sýna listaverkaeign borgarinnar, og því voru t.d. verk Jóhannesar S. Anddyri Listasafns Reykjavíkur i Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.