Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 25

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 25
Söfn 439 Á Kjarvalsstöðum er jafnan unnt að sjá verk Jóhannesar S. Kjarvals. í Kjarvalssafni eru rúmlega 5000 verk. Kjarvals, sem eru ein helsta skrautijöðrin i lista- verkaeign borgarinnar, aðeins aðgengileg á tíma- bundnum sýningum ár hvert. Safn Asmundar Sveinssonar tók til starfa sem sjálfstætt listasafn árið 1983 og lýtur sérstakri stjórn, en starfsemi þess var felld undir Kjarvalsstaði árið 1988. Hús- næðiseklan var engu að síður mikil, en miðrými Kjarvalsstaða var í upphafi síðasta áratugar einnig tekið undir sýningar, og safnið gat ekki enn sett upp fastar sýningar á verkum úr sinni eigu. Með tilkomu listverkagjafar Errós árið 1989 varð aðkallandi að finna safninu aukið húsnæði til þess að það gæti sýnt verk sín, og þá þegar beindist áhugi manna að Korpúlfsstöðum sem framtíðarstað fyrir safnið. Eftir nokkur ár var fallið frá þeirri hugmynd vegna fýrirsjáanlegs kostnaðar, og stuttu síðar var stungið upp á Hafnarhúsinu í þessu sam- bandi. Eftir að komist var að niðurstöðu um þá lausn var boðað til samkeppni um útfærslu Lista- safns Reykjavíkur á fyrstu tveimur hæðum Hafnar- hússins vorið 1997 og stefnt var að því að safnið skyldi opnað árið 2000 þegar Reykjavík væri ein af menningarborgum Evrópu. Þessar áætlanir gengu eftir. í Hafnarhúsinu er að finna sex sýningarsali, veglegt Qölnotarými, kaffiteríu, verslunarrými, útisýningarsvæði og sérstakt rými fyrir bókasafn eða aðra starfsemi safnsins. Auk þess munu skrif- stofur Listasafns Reykjavíkur flytjast í bygginguna og þá verður einnig opnað sérstakt tölvuver fyrir gesti safnsins. Því má segja að nú ráði Listasafnið yfir alls níu sýningarsölum og tveimur öðrum sýningarsvæðum, þ.e. ijölnotarými og porti Hafn- arhússins, auk hins sérstæða og skemmtilega sýningarrýmis í Ásmundarsafni. Þetta aukna húsnæði gerir Listasafni Reykjavíkur loks mögulegt að sýna listaverkaeign sína með verðugum hætti. í safninu er að finna milli 13 og 14 þúsund listaverk, en þar ber auðvitað hæst hin stóru sérsöfn, Kjarvalssafnið, sem telur rúmlega 5.000 verk, Errósafnið, með rúmlega 3.000 verk, og Ásmundarsafnið, sem telur um 2.800 verk. Auk þess starfar við safnið sérstök byggingarlistardeild, sem varðveitir mikinn fjölda sérsafna teikninga, líkana og uppdrátta sem eru lykilgögn fyrir rann- sóknir á sögu byggingarlistar á íslandi á 20. öld. Með tilkomu Hafnarhússins má segja að öll þessi sérsöfn hafi loks eignast heimilisfestu innan Lista- safns Reykjavíkur. Höggmyndir Ásmundar Sveinssonar njóta sín að sjálfsögðu best í húsnæðinu og garðinum við Sigtún, þar sem áður var heimili listamannsins. Nú hefur verið sett upp fost sýning á úrvali úr verkum Jóhannesar S. Kjarval í austursal Kjarvals- staða og verður hér eftir ætíð hægt að ganga að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.