Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 40

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 40
Samgöngumál ,Léttlest“ ekur inn á aðaltorgið í miðbæ borgarinnar Montpellier í Frakklandi. Frakklandi að undanförnu í borgum sem eru af svipaðri stærðargráðu og höfuðborgar- svæðið. Þar virðist vera um mjög spennandi kost að ræða, en eftir er að skoða nánar hvort það er raunhæft miðað við okkar að- stæður. Ekki er ástæða til að gera því nánari skil hér, enda er um að ræða efni í sérstaka um- fjöllun. Ljóst er að tilvist eins al- menningssamgöngufyrirtækis á svæðinu öllu er alger forsenda þess að hægt sé að hugsa þessi mál heildstætt og með metnaðar- fullum hætti ef því er að skipta. Hvernig hefur tekist til? I heild má segja að samein- ingin hafi gengið ótrúlega hratt og vel fyrir sig og sumir ganga jafnvel svo langt að segja að hún hafi til þessa verið fúllkomlega hnökralaus. Að mínu mati er það einkurn tvennt sem hefur ráðið. í fyrsta lagi var um einlægan vilja allra viðkomandi sveitarfélaga að ræða strax frá byrjun. Menn báru gæfu til að horfa heildstætt á málið í stað þess að grúfa sig ofan í einstök framkvæmdarat- riði eins og svo oft hafði verið raunin áður. Þannig horfðu menn fyrst og fremst á sóknarfærin fyrir sveitarfélögin og ibúa þeirra þegar fram í sækir. Auð- vitað á enginn kostnaður að aukast vegna sameiningarinnar sem slíkrar, heldur á hún þvert á rnóti að skila ýmsum samlegðar- áhrifum þegar fram í sækir. Sú alda kostnaðarhækkana sem nú ríður yfir hefur þannig ekkert með sameininguna að gera; þar er alfarið um að ræða miklar hækkanir á aðföngum og rekstr- arþáttum greinarinnar, sem allar hefðu orðið hvort eð er að óbreyttu. Síðast vil ég nefna, en ekki síst, að auðvitað hefði þetta aldrei gengið svona vel fyrir sig ef ekki hefði komið til einstak- lega jákvæð afstaða allra starfs- manna fyrirtækjanna, sem og þeirra verktaka sem sinnt hafa akstri fyrir þau. Reynt var að halda starfsmönnum upplýstum allan tímann eins og kostur var til þess að lágmarka óvissu og jafnframt að kalla eftir við- brögðum þeirra við þeim hug- myndum sem fyrir lágu. Þá lögðu fjölmargir starfsmenn sameiningarstarfinu beint lið með því að taka þátt i hópavinnu sem m.a. lagði grunninn að leiðakerfisbreytingu, gjaldskrár- málum og húsnæðismálum, efnt var til samkeppni meðal starfs- rnanna um nafn á fyrirtækið og svo rnætti lengi telja. Án velvilja og fórnfýsi allra þessara aðila hefði þetta aldrei tekist og er rétt að þakka sérstaklega fyrir það nú. Segðu okkur hverju þú þarft að dæla og við finnum hárréttu og hagkvæmustu dæluna fyrir þig Meira dæluúrval er vandfundið # LOWARA Danfoss hf. SKÚTUVOGI 6 • SÍMI 510 4100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.