Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 58
Erlend samskipti
Pétur S. Jóhannsson bœjarfulltrúi, Snæfellsbœ:
Vinabæjatengsl milli Olafsvíkur og
Vestmanna í Færeyjum
Sumarhátíðin Færeyskir dagar í Ólafsvík voru
fyrst haldnir í ágúst árið 1998. Upphafið að henni
var sú að þrír Færeyingar og makar þeirra sem búa
í Ólafsvík tóku sig saman um veturinn 1998 og
hófu undirbúning ásamt öðru fólki úr Ólafsvík.
Sumarhátíðir sem þessar hafa verið að festa sig í
sessi í mörgum bæjarfélögum á landinu. Hafa þær
verið mikil lyftistöng fyrir alla bæjarbúa og ekki
síst fyrirtæki sem vinna að margs konar þjónustu
fyrir ferðamenn. Bærinn fyllist af fólki og ekki
hvað síst af brottfluttu fólki sem vill hafa gott sam-
band við heimabyggðina.
Það var engin tilviljun að þessi hátíð hafi verið
tileinkuð Færeyingum. Færeyingar tóku mikinn þátt
í að byggja Ólafsvík upp. Á árunum frá 1954 og
alveg til ársins 1980 komu Færeyingar til starfa á
vertíðarbátum frá Ólafsvík. Flestir voru þeir árið
1958. Það ár voru um 120 Færeyingar í Ólafsvík
eða um nær 20% af bæjarbúum og settu þeir mikinn
og góðan svip á bæinn. Árið 1999 kom fram tillaga í
bæjarstjórn Snæfellsbæjar um að stofna til vinabæja-
sambands við bæ í Færeyjum. Fyrir valinu varð bær-
inn Vestmanna en það er 1400 manna bæjarfélag á
Straumey. Þegar Færeysku dagarnir voru haldnir
árið 2000 var svo undirritaður vinabæjasamningur
milli bæjarfélaganna og komu bæjarstjórnarmenn
frá Vestmanna til Ólafsvíkur vegna þess. Þetta var
mjög ánægjulegur viðburður og mun hann efla
mjög samskipti milli landanna ef að líkum lætur.
Pétur S. Jóhannsson
Jluttist frá Skagaströml lil
Ólafsvíkur á árinu 1967,
hefur verið svæðisstjóri
■ Vátiyggingafélags Islands í
Snœfellsbœ frá árinu 1998
og bœjarfulltríii þarfrá
L upphafi núverandi kjörtima-
bils á árinu 1998. Hann
er einn af forsvarsmönnum
Færeyskra daga í Ólafsvík.
Prestarnir sr. Inga Poulsen Dam og sr. Óskar H. Óskarsson
stjórnuðu útimessu á Færeyskum dögum I Ólafsvík 2001.
Við allan undirbúning hefur verið haft gott sam-
band bæði við aðila úti í Færeyjum og Færeyinga-
félagið í Reykjavík og margir þeirra hafa komið á
hátíðina öll skiptin. Lögð hefur verið mikil áhersla
á að kynna menningu Færeyja á þessum dögum og
hafa fyrirlesarar verið fengnir til að flytja erindi
urn Færeyjar. Kórar hafa komið og messur verið
haldnar bæði undir berurn himni og í Ólafsvíkur-
kirkju með færeyskum prestum. Þá hafa verið
sýningar á færeyskum munum, fatnaði og fl. Þá má
ekki gleyma hinum stórkostlega mat þeirra frænda
vorra. Skerpukjöt, frigadellur, knettir og fl. hefur
verið fengið frá Færeyjum og alltaf hefur verið
boðið upp á rastkjöt og súpu fyrir þá sem vilja.