Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Síða 100

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Síða 100
Umhverfismál Þetta rafknúna reiðhjól var meðal þess sem sýnt var á vöru- sýningu í tengslum við ráðstefnuna Synergi-21 í Stavanger. Ráðstefnunni var skipt niður i sameiginlega fundi og minni vinnufundi, þar sem fjallað var um afmörkuð viðfangsefni. Einnig var boðið upp á skoðunarferðir þar sem kynnt voru ýmis þróunar- verkefni sem tengdust Staðardagskrárstarfinu í Stavanger á einn eða annan hátt. Auk þess var efnt til mikillar sýningar í tengslum við ráðstefnuna. Þar sýndu framleiðendur vörur sínar, en einnig kynntu ýmis samtök og sveitarfélög starf sitt og þjónustu á sviði umhverfismála. Loks var mikið lagt upp úr listviðburðum í tengslum við ráðstefnu- haldið, ekki síst vegna nærveru Hákonar krónprins og eiginkonu hans, Mette Marit, en þau tóku þátt í fyrsta degi ráðstefnunnar. í framsöguerindum og umræðum á ráðstefnunni bar mjög á óánægju norskra sveitarstjórnarmanna með þátt ríkisvaldsins í starfi Norðmanna að sjálf- bærri þróun. A undanförnum árum hefur norska ríkið veitt árlega nokkurt fé til Staðardagskrárstarfs sveitarfélaga og fylkja, m.a. með því að kosta svo- nefnda „ regionale knutepunkter ", sem eru verk- efnisstjórar, einn í hverju fylki. Nú er ríkið hins vegar að draga úr þessum stuðningi. Annað atriði var mjög gagnrýnt, þ.e.a.s. lítil áhersla norskra stjórnvalda á gerð áætlunar um sjálfbæra þróun á landsvísu, svonefndrar Landsdagskrár 21. Gert er ráð fyrir að ríki heims leggi þessar áætlanir sínar fram fyrir heimsráðstefnuna Ríó+10 haustið 2002, og í samræmi við samþykkt Ríóráðstefnunnar hafa flest ríki í þessum heimshluta skipað sérstaka landsnefnd um sjálfbæra þróun (National Council for Sustainable Development (NCSD)) til að leiða í sýningarbás Hippopotamus voru sýndar ýmsar vörur úr endur- unnum pappír. Greinarhöfundur tók myndirnar hér að framan. þetta starf. Því er ekki að heilsa í Noregi, og auk heldur er það utanríkisráðuneytið en ekki umhverf- isráðuneytið sem sér um framkvæmdina. Láir eða engir ræðumenn á Synergi-21 vöktu viðlíka athygli og auglýsingafrömuðurinn Ingebrigt Steen Jensen. Hann benti á að með aukinni áherslu á umhverfismál á heimsvísu væru að opnast gríð- arlegir möguleikar og markaðstækifæri fyrir þær þjóðir sem næðu að skapa sér sérstöðu og skipa sér í framvarðarsveit á þessu sviði. Hann hélt því enn- fremur fram að engin þjóð í heimi hefði nálægt því jafngóða möguleika og Norðmenn á að verða fremstir allra í starfinu að sjálfbærri þróun. Astand umhverfismála væri mjög gott frá náttúrunnar hendi, og varla væri nokkurs staðar að finna eins virkt lýðræði, eins mikla þekkingu og eins mikið fjármagn. Hann minnti á að hinn 7. júni 1905 hefðu Norðmenn lýst yfir sjálfstæði frá valdi Svía og lagði til að 100 ára frelsis yrði minnst þann 7. júní 2005 með nýrri sjálfstæðisyfirlýsingu, þar sem Norðmenn lýstu yfir sjálfstæði frá neyslubrjálæð- inu, fyrstir þjóða. Eftirmáli Læra má sterk rök íyrir því að allt það sem hér er haft eftir Ingebrigt Steen Jensen um tækifæri og getu Norðmanna til að vera i fararbroddi á heims- vísu í starfinu að sjálföærri þróun eigi jafnvel enn betur við um íslendinga. Hvað náttúruna, lýðræðið og þekkinguna varðar ættu íslendingar að geta staðið íyllilega jafnfætis Norðmönnum; báðar þjóðir eru meðal þeirra ríkustu í heimi, og smæð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.