Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 107
Tæknimál
521
Hveragerði velur Sveitarstjóra írá Maritech
Nýlega skrifuðu Hveragerðis-
bær og Maritech ehf. undir samn-
inga um kaup Hveragerðisbæjar
á upplýsingakerfunum Sveitar-
stjóra og Navision. Að sögn
Hálfdáns Kristjánssonar bæjar-
stjóra nær hið nýja upplýsinga-
kerfi yfir alla þætti í starfsemi
sveitarfélagsins. „Sveitarstjóri
frá Maritech er góð staðfesting á
þeirri sérþekkingu sem fyrir-
tækið hefur á starfsemi sveitarfé-
laga. Með þessum kaupum erum
við að fá lausn sem við teljum
að mæti kröfum okkar bæði
hvað varðar hæfni kerfisins, not-
endaviðmót og kröfu um hraða
upplýsingagjöf til þeirra sem
hlut eiga að máli,“ segir Hálfdán.
Sveitarstjóri er staðlað upp-
F.v. Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar, og Jón Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Maritech ehf.
lýsingakerfi sveitarfélaga þar
sem íjárhagskerfi Navision hafa
verið séraðlöguð að íjárhagsbók-
haldi sveitarfélaga og auk þess
sem Sveitarstjóri inniheldur sér-
kerfin Skólastjóra og Félags-
málastjóra. Önnur sérkerfi eins
og íbúaskrá, eignakerfi,
greiðsluáætlanakerfi og skulda-
bréfakerfi auka mjög á virkni
kerfisins og á hagræðingu við
rekstur Hveragerðisbæjar.
Samhliða þessu mun Hvera-
gerðisbær innleiða hugbúnaðinn
„Leikskóli til framtiðar“ i öllum
leikskólum bæjarins, en „Leik-
skóli til framtíðar" er fagkerfi í
leikskólastarfi og með þvi að
innleiða kerfið stíga leikskólar
bæjarins stórt skref til aukinnar
þjónustu við barnafólk bæjarins.
Sveitarfélög eru annað af
tveim meginkjörsviðum Mari-
tech ehf. sem þjónar flestum af
stærri sveitarfélögum landsins.
Stærsti einstaki hluthafi Mari-
tech eru TölvuMyndir hf. með
um helmingshlut í félaginu.
Mest selda tölva í heimi
Dell OptiPlex tölvurnar eru hagkvæmar í rekstri,
fallegar, fyrirferðarlitlar og sérhannaðar fyrir
nútíma skrifstofuumhverfi. Enda er engin tilviljun
að Dell tölvur seljast eins og heitar lummur út
um allan heim.
D6LL 1
Intel Celeron 1.1 GHz Dell OptiPlex GX50 SD
128 MB RAM er á einstöku tilboði:
20 GB harður diskur 118.500 m/vsk
17' Dell skjár Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
XP professional Skv. Gartner DataQuest eru Dell
3ja ára ábyrgð á vinnu og varahlutum söluhæstu PC tölvur heims. >