Milli mála - 01.01.2011, Síða 17
17
Hún felst meðal annars í því að í sögunni er fáránleiki dauða refs-
ingar innar ekki einungis fólginn í því að morðinginn ætlaði sér alls
ekki að drepa mann en gerði það „út af sólinni“,18 heldur einnig og
ekki síður í því að henni er beitt til að refsa Meursault fyrir
óviðeigandi framkomu en ekki vegna morðsins þar sem maður af
frönskum uppruna hefði ekki verið tekinn af lífi í Alsír á þessum
tíma fyrir að drepa araba.19
Ritgerðin Le Mythe de Sisyphe. Essai sur l’absurde (Sísýfosargoð-
sögnin) kom út sama ár og Útlendingurinn og mynda þau verk,
ásamt leikritinu Caligula, það sem Camus kallaði „Hring fárán-
leikans“. Jean-Paul Sartre leit á Útlendinginn sem einskonar fagur-
fræðilega útfærslu á ritgerðinni og sú staða eða tilfinning sem orðið
étranger lýsir í skáldsögu Camus er iðulega sett í samband við þá
mynd af fáránleika mannlegrar tilvistar sem höfundurinn dregur
upp í ritgerðinni.20 Þar líkir Camus manninum og tilvist hans við
Sísýfos sem guðirnir dæmdu til að eyða ævinni við að velta steini
upp fjallshlíð til þess eins að sjá hann rúlla niður aftur. Sú fánýta
iðja, sem byggist á sífelldri endurtekningu tilgangslausra athafna,
veldur hinum fáránlega – eða absúrd – manni þó ekki endilega
þjáningu eða vansæld; henni fylgir þögul gleði í hinum þögla heimi
fárán leikans frá þeirri stundu að Sísýfos lítur ekki lengur á örlög sín
sem verk æðri máttarvalda. Þá er hann hafinn yfir örlög sín, sterkari
en steinninn.21 Í nýlegu riti um Camus bendir danski fræðimaður-
inn Jørn Boisen á að það sé ekki fyrr en undir lok skáldsögunnar,
and spænis dauðanum – og prestinum, fulltrúa framhaldslífsins –,
að söguhetjan verður meðvituð um merkingarleysi tilveru sinnar,
og lífsins almennt22: „Ekkert, ekki neitt skipti máli og ég vissi vel
hvers vegna. Hann vissi það líka.“23 Þessi uppljómun, sem fyllir
Meursault ró, kemur lesandanum ekki á óvart því að Meursault
hefur, í gegnum söguna alla, sýnt að margir þeir atburðir sem skipta
18 Albert Camus, Útlendingurinn. L’Étranger, bls. 195.
19 Sjá t.d. John Foley, Albert Camus. From the Absurd to Revolt, Stocksfield: Acumen, 2008, bls. 14–15,
21.
20 Jean-Paul Sartre, „Explication de l’Étranger“, Situations I, essais critiques, París, Gallimard, 1947,
bls. 99–121. Þessi ritgerð birtist fyrst í Cahiers du Sud, février 1943.
21 Albert Camus, Le mythe de Sisyphe, bls. 166–167.
22 Jørn Boisen, Albert Camus. En introduktion, Kaupmannahöfn: Gyldendal, 2005, bls. 63–64.
23 Albert Camus, Útlendingurinn. L’Étranger, bls. 229.
ÁSDÍS R. MAGNÚSDÓTTIR