Milli mála - 01.01.2011, Blaðsíða 31
31
Hólmfríður Garðarsdóttir
Háskóla Íslands
Að skyggnast í skúmaskotin
Um fjölmenningarsamfélag við
Karíbahafsströnd Kostaríku í verkum
Anacristina Rossi1
1. Inngangur
Hugmyndir umheimsins um menningu og mannlíf í Rómönsku Ameríku hafa mótast frá tímum landafundanna í lok fimmt-
ándu aldar. Lýsingar landkönnuða sem birtust í frásögnum þeirra,
bréfum og leiðarbókum lögðu grunninn að viðhorfum Evrópumanna
til álfunnar.2 Hugmyndir um framandleika þessara fjarlægu slóða
urðu til og festust í sessi, jafnvel svo að sumar lifa góðu lífi enn þann
dag í dag.3 Kostaríska skáldkonan Anacristina Rossi gerir umræddan
framandleika að umfjöllunarefni í skáldsögum sínum Limón Blues
(2002) og Limón Reggae (2007).4 Hún beinir sjónum að því hvernig
1 Lindu Guðrúnu Karlsdóttur, meistaranema í spænsku, er þökkuð aðstoð við heimildaöflun.
2 Bréf Kólumbusar til yfirvalda á Spáni öðluðust strax útbreiðslu. Þau höfðu afgerandi áhrif á viðhorf
Evrópumanna til nýja heimsins. Í bréfunum er að finna ferðalýsingar, umfjöllun um staðhætti og
íbúa eyja Karíbahafsins. Áhersla er lögð á heimshlutann sem sælureit, e.k. paradís, þar sem búi
undirgefið og einfalt fólk. Hugmyndin um „góða villimanninn“ festist í sessi í kjölfar þessara
frásagna, enda staðfestar í skrifum munksins Bartolomé de las Casas, sem var í mun að koma
frumbyggjum til varnar í ljósi sívaxandi ofbeldis Spánverja í nýlendunum. Til frekari upplýsinga
er bent á þýðingar Sigurðar Hjartarsonar, s.s. í bókinni Leiðarbækur úr fyrstu siglingunni til
Indíalanda 1492–1493, Reykjavík: Uglan, 1992, og Örstutt frásögn af eyðingu Indíalanda eftir
Bartolomé de las Casas, Reykjavík: þýðandi gaf út, 2007.
3 Sjá nánari umfjöllun höfundar í greininni: „Kvenlegar ásýndir Rómönsku Ameríku“, Ritið 2/2005,
bls. 63–81.
4 Anacristina Rossi fæddist 1952 í höfuðborg Kostaríku, San José, en dvaldi langdvölum í
hafnarborginni Limón á Karíbahafsströnd landsins. Hún stundaði nám í Frakklandi, Bretlandi og
Hollandi og lauk meistaragráðu í þýðingarfræðum. Hún starfar jöfnum höndum sem rithöfundur,
blaðamaður og þýðandi.