Milli mála - 01.01.2011, Page 39
39
þjóðfélag verður til og er skapað af einstaklingunum sem það
byggja því þeir hafa ákveðnar sameiginlegar hugmyndir um hvern-
ig heimurinn er eða á að vera.33 Einstaklingurinn velur fyrir mynd ir,
gildi eða viðhorf og skapar eigið „sjálf“ samkvæmt því. Af því leiðir
að sjálfsmyndir einstaklinga og hópa verða nátengdar.34 Í stuttu
máli sagt er um það að ræða að menningar- og félagslegur
bakgrunnur einstaklingsins stýrir því hver honum finnst hann eða
hún vera.35 Einnig mætti útfæra hugmyndina með því að það sé úr
þessum bakgrunni sem við veljum hver við viljum og ætlum að
vera. Mótun persónulegrar sjálfsmyndar verður þannig, eins og
spænski fræðimaðurinn Angel Castiñeira kemst að orði, ferli þar
sem „[…] einstaklingurinn skapar sér ímyndaða sjálfsmynd í
samspili við þá sem í kringum hann eru. […] Hún er samsett úr
þeim fjölmörgu ólíku fyrirmyndum sem umhverfið ber honum á
borð“ og verður „[…] saga í sífelldri mótun“.36 Fræðimenn leggja
áherslu á að andlegt heilbrigði sé nátengt skilningi mannsins á
„sjálfum sér“ og ef sjálfsmynd okkar er ekki sæmilega vel mótuð
verðum við það sem argentínski félagsfræðingurinn Enrique del
Acebo Ibáñez kallar rótlaus, vansæl og óheilbrigð í félagslegum
skilningi.37
Þegar sjónum er sérstaklega beint að Kostaríku og lýsingu Rossi
á aðstæðum og sögu íbúanna blasir við að á Karíbahafsströndinni er
að finna samfélög frumbyggja, afkomenda Evrópumanna, blökku-
manna, mestísa (blendinga hvítra og indíána), múlatta (blendinga
svartra og hvítra), sambóa (blendinga blökkumanna og indíána),
33 Cornelius Castoradis, The Imaginary Institution of Society, Cambridge: Polity Press, 1987, bls. 3.
34 Manuel Montobbio, „Sobre la identidad de la identidad en la era de la globalización“, Revista de
Occidente 352/Septiembre 2010, bls. 130–159, hér bls. 132.
35 Í ofannefndri grein er vísað í tilvitnun frá Maríu Zambrano sem leggur áherslu á að meðlimir
tiltekins samfélags „deili sýn á veröldina“ (bls. 133). Ætlast sé til að einstaklingurinn samþykki
tiltekin viðmið, yfirvald og hefðir.
36 „[…] el individuo, en interacción con los demás va forjando un ideal del yo […] de cualidades o
atributos obtenidos de la diversidad de modelos que los diferentes grupos de su sociedad ofrecen
[…] un relato que vamos construyendo […], Ángel Castiñeira, „Naciones imaginadas: Identidad
personal, identidad nacional y lugar de memoria“, ritstjórar Resina og Winter, Casa encantada.
Lugares de memoria en la España constitucional (1974–2004), Madrid: Iberoamericana, 2005.
37 Enrique del Acebo Ibáñez, Félagsfræði rótfestunnar: Hugmyndir um mótun borgarsamfélagsins. Ritstjórn
og umsjón þýðingar Hólmfríður Garðarsdóttir og Helgi Gunnlaugsson, Reykjavík: Háskóla-
útgáfan, 2007. Sjá frekari umfjöllun um kenningar Ibáñez í greininni: „Ríkjandi rótleysi: Dáðleysi
ungra manna í mexíkóskum stórborgarmyndum“, Ritið 2/2010, bls. 121–143.
HÓLMFRÍðUR GARðARSDÓTTIR