Milli mála - 01.01.2011, Blaðsíða 96
96
mann, sendi Inu von Grumbkow póstkort áður en þeir lögðu inn á
hálendið til að láta vita að hann væri kominn heill á húfi.4 Stuttu
síðar barst Inu von Grumbkow önnur orðsending, í þetta sinn frá
jarðfræðinemanum Hans Spethmann. Texti skeytisins var: „Knebel
og Rudloff drukknaðir, ég bjargaðist. Spethmann.“5 Vísindamaður-
inn og vinur hans höfðu farist í Öskjuvatni 10. júlí 1907. Eins og
hendi væri veifað var fótunum kippt undan Inu von Grumbkow.
Slysið vakti mikla athygli erlendis – sér í lagi í Þýskalandi – mikið
var fjallað um það í dagblöðum og bar heimildum ekki saman um
hvernig það hefði átt sér stað. Orðrómur komst á kreik um að ekki
væri allt með felldu, sögusagnir gengu um að sést hefði til
tvímenninganna tveimur vikum eftir slysið. Hans Spethmann lá
undir grun um að eiga sök á dauða þeirra Walthers von Knebels og
Max Rudloffs, þar sem hann einn lifði ferðalagið í Öskju af. Bátur
þeirra félaga, sem þeir fóru í út á Öskjuvatn, hefur hvorki verið vel
byggður né öruggur eftir lýsingunni á honum að dæma: „Bátur
þessi var gerður úr tveimur grindum úr bronsi, sem festar voru
saman, á samsetta grindina var síðan strengdur segldúkur.“6 Bát-
urinn var aldrei prófaður í Þýskalandi heldur settur á flot í fyrsta
skipti á Akureyri og reyndist hann ekki vel þar, fylltist strax af
vatni.7 „Íslendingarnir hristu höfuðið: Það sé ógerningur að fara út
á íslensk vötn á svona báti, hvað þá út á dularfullt gígvatn. Þeir gáfu
bátnum nafnið, sem hann átti síðar eftir að bera með réttu:
Bátshelvítið.“8 Rannsóknarleiðangur Walthers von Knebels hefur
greinilega vanmetið íslenskar aðstæður.
Ina von Grumbkow var afar ósátt við misvísandi frásagnir af
slysinu og þáttur Hans Spethmanns var óljós. Ósamræmið í frá-
sögn un um varð til þess að hún réðst til Íslandsfarar ári eftir slysið,
það er 1908, í leit að Walther von Knebel eða verksummerkjum
sem skýrt gætu hvarf tvímenninganna. Hún hlaut styrk frá prúss-
neska vísindafélaginu og með í förinni var jarðfræðingurinn Hans
Reck sem var vinur Walthers von Knebels. Ina von Grumbkow
4 Sama rit; Frank Schroeder, Hula þagnarinnar, bls. 7.
5 Sama rit, bls. 10.
6 Sama rit, bls. 13.
7 Sama rit, bls. 13.
8 Sama rit, bls. 13.
Í FÓTSPOR FERðALANGA