Milli mála - 01.01.2011, Page 147
147
Útdráttur
Um Lezione americane eftir Italo Calvino
Árið 1986 var Italo Calvino boðið til Harvard-háskóla til að halda
fyrirlestra á vegum Charles Eliot Norton Poetry Lectures. Hann var
fyrsti Ítalinn sem hlotnaðist þessi heiður. Hann átti að halda sex
fyrirlestra um markmið og framtíð bókmennta, en lést í september
1986, nokkrum vikum áður en hann hugðist fara til Bandaríkjanna.
Eiginkona hans varðveitti handritið að fyrirlestrunum, sem voru
síðan gefnir út 1989 (enskur titill: Six Memos for the Next Millennium;
ítalskur titill: Lezioni americane, sei proposte per il prossimo millennio).
Verkið er talið besta fræðirit Calvinos. Það hefur verið þýtt á meira
en fimmtán tungumál og verið notað í háskólakennslu, bæði á
Ítalíu og í öðrum löndum, sem fyrirmynd að samanburðar rann-
sóknum í bókmenntum.
Calvino var aldrei hrifinn af kenningum, og leit á þær sem
afþreyingu, eins og hann sagði sjálfur í viðtali nokkrum mánuðum
áður en hann lést. Markmið greinarinnar er að benda á veikleika í
samanburðaraðferðum Calvinos. Auk þess skoðar greinarhöfundur
ástæðuna fyrir vinsældum þessa verks Calvinos sem hefur orðið
metsölubók víða um heim. Að lokum bendir hann á að aðferð
Calvinos sé „einföldun“, það er að segja, hún krefst ekki sérstakrar
bókmenntafræðilegrar kunnáttu (í bókmenntasögu, þekkingarfræði
eða textafræði). Þess vegna á aðferð hans vel við í mörgum hug-
vísinda deildum nú á dögum, sem þurfa að berjast við vaxandi
niður skurð og tímaskort, en ein afleiðing þess er að innan þeirra
gefst lítið ráðrúm til að kafa dýpra í fræðin.
Lykilorð: Calvino, bókmenntir, léttleiki, samanburðaraðferð, póst-
módernismi
STEFANO ROSATTI