Milli mála - 01.01.2011, Page 158
158
• safna árangursmælingum og meta hvaða árangur hefur náðst (t.d.
fjöldi atvinnulausra sem komast á vinnumarkað og/eða haldast á
vinnumarkaði vegna þátttöku í námskeiðum).
• setja greininguna í alþjóðlegt samhengi og draga fram reynslu sem
kemur fram í alþjóðlegum rannsóknum og nýtast mætti á Norður-
lönd um.5
Niðurstöður gagnasöfnunar leiddu í ljós að mjög lítið er til af rann-
sóknum og árangursmælingum á sviði fullorðinsfræðslu, sér í lagi á
úrræðum sérstaklega ætluðum innflytjendum á Norður lönd unum.
Flestar þeirra úttekta sem gerðar hafa verið eru mjög almenn ar, og
unnar af aðilum sem ekki hafa sérstaka þekkingu á mál efn inu og
bera niðurstöður keim af því. Sem dæmi má nefna að almennt virtist
nóg til af námsefni fyrir innflytjendur en við nánari athugun var
námsefni víða ómarkvisst og hentaði ekki endilega þeim hópi sem
notaði það. Það kom þó ekki fram í birtum niður stöðum.
Samantekt helstu niðurstaðna rannsókna frá öllum Norðurlöndum
má finna í töflunum í næstu köflum.6 Fyrst verða bornir saman
fjöldi og uppruni innflytjenda á Norðurlöndum, síðan stefnur, þá
námskrár og að lokum verður farið stuttlega yfir almennar og
sértækar námsleiðir sem í boði eru fyrir innflytjendur. Frekari
upplýsingar um rannsóknina má nálgast í útgefnum skýrslum á
www.ncfk.dk.
2.1 Fjöldi, bakgrunnur og atvinnustig innflytjenda
á Norðurlöndum
Saga innflytjenda á Norðurlöndunum fimm er ólík og fjöldi og
uppruni þeirra er mismunandi í hverju landi fyrir sig sem gerir
samanburð flókinn. Þegar könnunin var gerð árið 2009 var hlutfall
innflytjenda lægst í Finnlandi, eða tæp 3% af heildaríbúafjölda.
Hlutfall innflytjenda er hæst í Svíþjóð, eða 16%, og er stærsti
hópurinn flóttamenn. Á Íslandi,7 í Danmörku og í Noregi eru
innflytjendur 8%, 9% og 11%. Innflytjendum fjölgar vegna aukins
5 Wahlgren o.fl., Integration af indvandrere gennem voksen- og efteruddannelse. Þýðing höfundar.
6 Sama rit.
7 Hagtíðindi 2009.1. http://www.hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?ItemID=9077 [sótt 07.06.11].
STEFNA OG FRAMKVÆMD SÍMENNTUNAR OG AðLÖGUN INNFLYTJENDA …