Milli mála - 01.01.2011, Page 168
168
til eru. Það sem er líkast í löndunum er áherslan á að færni í tungu-
málinu og aukin menntun sé forsenda aðlögunar. En framkvæmd og
umgjörð námsins er afar mismunandi í hverju landi fyrir sig og
erfitt að nálgast tölur um þá nemendur sem lokið hafa námi og um
leið hver raunveruleg málfærni þeirra er að loknu námi. Það hlýtur
einnig að teljast veikleiki í rannsókninni að innflytjendur sjálfir
voru ekki spurðir hvernig námsúrræði sem þeim stóð til boða nýtt-
ust þeim. Í næsta kafla verður gerð nánari grein fyrir íslenska hluta
rann sóknarinnar.
3. Íslenska rannsóknin
Gagnasöfnun fyrir íslensku rannsóknina hófst í árslok 2008 og stóð
til hausts 2009. Sumar upplýsingar voru síðan uppfærðar fyrir
útgáfu þessarar greinar eftir því sem við átti. Ekki voru upp færðar
tölur sem notaðar voru í norrænu saman burðar rannsókn inni. Um -
sjón ís lensku rannsóknarinnar var í höndum höfundar fyrir Stofn un
Vigdísar Finnbogadóttur við Háskóla Íslands. Með höfundi störf-
uðu Ingibjörg Hafstað hjá Fjölmenningu ehf. og Elsa Arnardóttir
og Helga Steinsson hjá Fjölmenningarsetri. Gagnasöfnun fór fram í
sam ræmi við markmið sem lýst er á bls. 157 að ofan. Rýnt var í
Stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda,20 framkvæmdaáætlun
sem henni fylgdi frá 2008,21 námskrá, ýmsar útgefnar úttektir,
náms leiðalýsingar og upplýsingar sem fengust frá ýmsum aðilum
símleiðis og í netpósti. En eins og á hinum Norðurlöndunum er afar
lítið um útgefnar lýsingar, beinar rannsóknir eða árangursmælingar
á fullorðinsfræðslu fyrir innflytjendur á Íslandi.
3.1 Innflytjendur á Íslandi
Fjöldi innflytjenda á Íslandi hefur margfaldast síðustu árin. Árið
1994 voru innflytjendur 1,7% af heildaríbúafjölda en þeir voru
orðnir um 8% af heildaríbúafjölda, eða um 25.000 manns, árið
2008. Árið 2009 hægði á fjölguninni vegna ástandsins í efna hags-
20 Stefna ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda, Reykjavík: Félagsmálaráðuneytið, 2007.
21 Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, Þingskjal 1226. 535. mál, Reykjavík:
Alþingi Íslendinga, 2008.
STEFNA OG FRAMKVÆMD SÍMENNTUNAR OG AðLÖGUN INNFLYTJENDA …