Milli mála - 01.01.2011, Page 186
186
ur á Norðurlöndum eykur ekki líkurnar á því að þeir læri þjóðtungu
landanna. Hér þurfa að koma til nýjar nálganir sem fela í sér að
virkja málsamfélagið betur til að nota þjóðmál hvers lands í
samskiptum við innflytjendur. Þetta má gera með ýmsu móti.
Hluti af starfstengdu íslenskukennslunni í HB Granda sem lýst er
að ofan71 gekk út á það að virkja íslenskumælandi starfsfólk í
fyrirtækinu til að tala við útlendingana t.d. í vinnuhléum eða utan
vinnutíma. Íslensku starfsmennirnir fengu sérstaka þjálfun til þess
sem og málnemarnir sjálfir. Í smærri plássum úti á landi fór kenn-
arinn í verslanir í kringum vinnustaðinn og bað starfsmenn að tala
íslensku við erlenda starfsmenn nærliggjandi fyrirtækja. Nálgun
sem þessi hefur fræðilegan í stuðning í félags- og menningarkenningum
(e. socio-cultural theories) sem byggjast á því að yrt félagsleg samskipti
séu undirstaða og forsenda máltileinkunar og málanáms.72 Nýverið
hafa fræðimenn á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð á sviði annars-
málsfræða og hönnunarmannfræði (e. design anthropology) hafið
könn un á möguleikum þess að virkja ákveðna hluta sam félagsins,
s.s. fyrirtæki, stofnanir, félög ýmiskonar og einstaklinga til að verða
virkari í samskiptum við innflytjendur á þjóðtungu landanna, bæði
í formi yrtra samskipta og með hönnun tækja og tóla sem gefa inn-
flytjendum og öðrum þátttakendum upplýsingar um bæði orða-
forða og samskiptafrasa úti í samfélaginu. Sem dæmi má nefna
merk ingu á umbúðum, orðaforða á spjöldum á borðum á veitinga-
stöð um, tungumálakaffihús og klúbba og margt fleira. Þessi
kennslu nálgun hefur verið kölluð „Life Based Language Learning“
eða „tungumálanám úti í lífinu“ og verður tilraun til að bregðast
við þeim raunveruleika sem innflytjendur búa við í norrænu mál-
umhverfi.
Ljóst er að mikil tækifæri eru á Norðurlöndunum til að þróa
rannsóknir og samstarfsverkefni sem samnýta fjármagn og sér þekk-
ingu á menntun og aðlögun innflytjenda. Með samstarfi má sam-
hæfa og styrkja möguleika innflytjenda til að taka þátt í norrænum
sam félögum, auðga þau og styrkja og finna starfskröftum sínum
farveg.
71 Birna Arnbjörnsdóttir, „The HB Grandi Experiment“.
72 Lev S. Vygotsky, Thought and Language, Cambridge, MA: The MIT Press, 1986.
STEFNA OG FRAMKVÆMD SÍMENNTUNAR OG AðLÖGUN INNFLYTJENDA …