Morgunblaðið - 23.10.2014, Side 44

Morgunblaðið - 23.10.2014, Side 44
44 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Vonir standa til að borholur í Hverahlíð geti bætt um 50 MW við framleiðslugetu Hellisheiðar- virkjunar sem hefur farið dalandi þar sem vinnslusvæði hennar hef- ur ekki staðið undir væntingum. Framkvæmdir við gufulögn sem á að tengja holurnar við virkjunina hófust í byrjun þessa mánaðar. Lögnin verður um fimm kíló- metra löng og er kostnaðurinn við framkvæmdina áætlaður um tveir og hálfur milljarður króna. Til stendur að gufulögnin verði tekin í notkun um áramótin 2015-2016 og fullnaðarfrágangi á svæðinu ljúki sumarið 2016. Leituðu til Vegagerðarinnar Jarðvegsvinna er hafin vegna gufulagnarinnar en jafnframt hafa starfsmenn Vegagerðarinnar sem vinna við breikkun Suðurlands- vegar þegar lagt stokk fyrir lögn- ina undir veginn. Eiríkur Hjálmarsson, upplýs- ingafulltrúi Orku náttúrunnar, segir að þegar ákveðið var að ráð- ast í gufulögnina hafi þegar verið leitað til Vegagerðarinnar með það að markmiði að frekari röskun yrði ekki á umferð um þjóðveginn en nauðsynlegt væri. Stokkur fyr- ir gufulögnina yrði lagður á sama tíma og undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð. „Það þarf ekki að rjúfa veginn frekar vegna gufulagnarinnar en það verður vitaskuld umferð vinnuvéla tengd framkvæmdunum þarna næstu misserin,“ segir hann. Eðlilegur hluti af rekstrinum Fljótlega eftir að Sleggjan, síð- asti áfangi Hellisheiðarvirkjunar, var tekin í notkun árið 2011 varð ljóst að vinnslusvæðið stæði ekki undir áformaðri raforkufram- leiðslu til frambúðar. Áætlað hefur verið að gengið hafi á orku- framleiðsluna um sem nemur 2-4% á ári. Dýrt er að bora nýjar holur og ekki lá ljóst fyrir hvaða áhrif þær hefðu á vinnslusvæðið. Því segir Eiríkur að ákveðið hafi verið að klókara væri að nota þær borholur sem voru þegar til staðar í Hvera- hlíð en þær voru boraðar árin 2007 og 2008. „Það sem menn gera sér vonir um er að gufan þarna ofan frá geti staðið undir allt að 50 MW í afli. Það er mikill kostur að fá reynslu á afköst þessara holna og hvernig svæðið bregst við sam- felldri nýtingu áður en menn fara að fjárfesta meira,“ segir Eiríkur en öflun viðbótargufu sé eðlilegur hluti af rekstri jarðvarmavirkj- ana. Næsta sumar stendur svo til að bora nýja holu við Nesjavelli, þá fyrstu þar frá árinu 2008. „Það er mjög gott að fá þessa gufu inn í vinnslulínu virkjunar- innar og það hjálpar okkur að styðja við framleiðslu til fram- búðar,“ segir Eiríkur en til við- bótar við gufulögnina verður skiljuhús reist í Hverahlíð. Sem minnst rask Kapp hefur verið lagt á að gufulögnin verði sem minnst sýni- leg frá þjóðveginum og var leið hennar valin með það í huga. Þá hefur verið lögð áhersla á að svæðið sem hún mun liggja um nýtist áfram til útivistar. Þannig verður hægt að komast yfir lögn- ina á fimm stöðum. Hluti af vandanum með núver- andi vinnslusvæði Hellisheiðar- virkjunar hefur verið að verr hef- ur gengið að dæla niður vatni sem fellur til við framleiðsluna en gert var ráð fyrir. Gufan úr bor- holunum í Hverahlíð er hins veg- ar þurrari en á svæðinu fyrir neðan og dregur það úr þörfinni á að dæla vatni niður í jörðina. Einfaldar viðureignar Þá verða umhverfisáhrif af orkuvinnslu í Hverahlíð minni með því að dæla gufunni niður í Hellisheiðarvirkjun en ef ný virkjun yrði byggð á Hellisheiði. Þannig verður meðhöndlun brennisteinsvetnis og vinnslu- vatns á einum stað og því einfald- ari viðureignar, að því er kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins. Kostur að fá reynslu af afköstunum  Framkvæmdir við gufulögn niður af Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar hafnar  Reynt að stemma stigu við dvínandi framleiðslu á vinnslusvæði virkjunarinnar  Tilbúin um önnur áramót Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jarðhiti Gufustróka leggur upp í loftið frá borholum á Hellisheiði. Virkjunin var fullkláruð árið 2011 en fljótlega eftir það varð ljóst að vinnslusvæði hennar stæði ekki undir framleiðslunni til frambúðar og grípa þyrfti til aðgerða. Holur sem boraðar voru í Hverahlíð 2007-2008 verða nú notaðar við vinnsluna. Gufulögn frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar Heimild: Orka náttúrunnar Grunnkort/Loftmyndir ehf. Ný skiljustöd Hellisheiðarvirkjun Sleggjan Skiljustöd 1 HVERADALUR STÓRAREYKJAFELL GÍGAHNÚKUR LAKAHNÚKAR Hringvegur 1 sé yfirborðið of óslétt og þá var gripið til þess ráðs að bjóða björgunarsveitum í mosasöfnun í fjáröflunarskyni. Mikilvægt sé að nota réttar uppgræðsluaðferðir og stundum séu þær nokkuð óvenju- legar. Súrmjólk kemur þar meðal annars við sögu. Framkvæmdirnar við gufulögnina á Hellisheiði hófust með óvenjulegum hætti nú í byrjun október, að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsinga- fulltrúa Orku náttúrunnar. „Við byrjuðum á að smala þarna upp eftir starfsfólki og hjálparsveit- armönnum til að bjarga mosaþemb- um sem við ætlum að nota til þess að bæta rask sem verður á lagna- leiðinni og annars staðar á svæðinu. Við erum því með slatta af mosa í frystigámi,“ segir hann. Síðustu ár hefur Orkuveitan verið með sérstakan landgræðslustjóra við Hellisheiðarvirkjun sem hefur stýrt landbótaaðgerðum. Þar segir Eiríkur að notaðar hafi verið að- ferðir til að græða upp land sem hefur verið raskað með gróðri sem er á staðnum. Því sé mikilvægt að varðveita mosa og annan gróður sem annars fer til spillis við fram- kvæmdir. Oftast séu notaðar vélar við slíka vinnu en á sumum svæðum „Henni er blandað við mosann til að klístra hann við undirlagið, gera það stöðugra og auka næringu. Það hefur verið áhugavert að sjá hversu vel hefur tekist til víða og hversu hratt þessi harðgeri heiðagróður tekur við sér með smáaðstoð,“ segir Eiríkur. Ljósmynd/ON-Magnea Magnúsdóttir Björgun Starfsmenn Orkuveitunnar og björgunarsveitarmenn bjarga mosa á Hellisheiði í tengslum við framkvæmdir við gufulögn frá Hverahlíð. Súrmjólk borin á mosann  Hugað að uppgræðslu vegna rasksins Lyftari til sölu Still R60-25 rafmagnslyftari, gámagengur, árgerð 2005 í mjög góðu standi til sölu. Lyftigeta 2,5tonn, lyftihæð 4,48 metrar, þrískipt mastur og hliðarfærsla. Verð aðeins kr. 1.175 þús.+ vsk. Nánari upplýsingar í síma 660 6470 MJÖG GOTT ÁSTAND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.