Morgunblaðið - 23.10.2014, Síða 60
60 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
frá TORMEK
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
▲ Tormek T-4 er uppfærsla á T-3 og
er nú kominn með málmhaus sem
eykur nákvæmni um 300%
Fylgihlutir sjást á mynd.
Verð: 71.800
▼ Brýnslustöð fyrir Tormek
- Sex skúffur fyrir Tormek stýringar o.fl.
- Lás læsir öllum skúffum
- Gúmmimotta á toppi skáps
- Stillifætur með gúmmísóla
Nýtt
Opið virka daga
frá 9-18
lau frá 10-16
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Líklegt er að Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, hnykli brýnnar þegar úr-
slit þingkosninga í Úkraínu á sunnu-
daginn kemur verða tilkynnt. Allt
bendir til þess að þjóðernissinnar og
stuðningsmenn aðildar að Evrópu-
sambandinu og Atlantshafsbanda-
laginu styrki mjög stöðu sína í kosn-
ingunum. Svo gæti farið að mjög
erfitt yrði fyrir Petro Porosénkó for-
seta að ná samkomulagi við flokka
þjóðernissinna til að tryggja meiri-
hlutastuðning á þinginu við umdeilt
vopnahléssamkomulag hans við
stjórnvöld í Rússlandi.
Þingið hefur verið skipað 450
mönnum en vegna innlimunar Krím-
skaga í Rússland og átaka í Austur-
Úkraínu verða aðeins 424 þingmenn
kjörnir að þessu sinni. Helmingur
þingmannanna er kjörinn í einmenn-
ingskjördæmum en hinn með hlut-
fallskosningu af flokkslistum.
Milljónir manna kjósa ekki
Kosningarnar fara ekki fram á
yfirráðasvæðum aðskilnaðarsinna
sem hafa lýst yfir sjálfstæði í austur-
héruðunum Donetsk og Luhansk.
Rúmar þrjár milljónir manna á þess-
um svæðum geta því ekki kosið og
langflestir þeirra hafa rússnesku að
móðurmáli.
Kosningabandalagi, sem kennt er
við Petro Porosénkó, er spáð mestu
fylgi í kosningunum, um það bil 30%
atkvæða í flokkslistakosningunum.
Forsetinn vonast til þess að geta
samið við aðra flokka um stuðning
við vopnahléssamkomulag sem hann
náði við stjórn Pútíns í september
eftir að stjórnarher Úkraínu beið
ósigur í átökum við aðskilnaðarsinna
sem njóta stuðnings Rússa. Poro-
sénkó vonar að vopnahléssamkomu-
lagið verði til þess að fyrirtæki í
austurhéruðunum geti hafið starf-
semi að nýju og hægt verði að blása
lífi í efnahaginn sem hefur verið í
lamasessi vegna átakanna.
Margir flokkar þjóðernissinna
hafa hins vegar gagnrýnt friðarsam-
komulagið, einkum ákvæði þess um
að austurhéruðin fái aukin sjálf-
stjórnarréttindi, og saka stjórn
Porosénkós um uppgjöf fyrir að-
skilnaðarsinnunum.
Alls taka 29 flokkar þátt í kosning-
unum. Porosénkó forseti vonast til
þess að geta myndað samsteypu-
stjórn með Þjóðarfylkingunni, nýj-
um flokki Arsenís Jatsenjúks for-
sætisráðherra. Henni er hins vegar
aðeins spáð um 10% fylgi og forset-
inn gæti því þurft að leita eftir stuðn-
ingi þjóðernissinna sem hafa gagn-
rýnt vopnahléssamkomulagið. Á
meðal þeirra eru flokkur Júlíu Tí-
mósjenkó, fyrrverandi forsætisráð-
herra og gamals keppinautar Poro-
sénkós, og Róttæki flokkurinn, sem
hefur verið sakaður um lýðskrum.
Stærsti flokkur rússneskumæl-
andi íbúa Austur-Úkraínu er aðeins
með 5% fylgi, ef marka má kannanir,
og útlit er fyrir að kommúnista-
flokkurinn fái ekkert þingsæti í
fyrsta skipti frá því að Úkraína fékk
sjálfstæði árið 1991.
Óvinir Pút-
íns styrkja
stöðu sína
Þjóðernissinnum og stuðningsmönn-
um ESB og NATO spáð sigri í Úkraínu
Heimild: AGS, Alþjóðabankinn, Transparency International
Þingkosningar í Úkraínu
0.2
Tengsl við Rússland
Í %
Líklegt tap vegna deilunnar
við Rússa, sem hlutfall af
landsframleiðslu
Áhrif þess að verð á
rússnesku gasi hækkaði
um 50%
Samskiptin við Rússland
* Svæði þar sem aðskilnaðarsinnar hafa lýst yfir sjálfstæði
Sjálfstæði frá Rússlandi
Rauðgula byltingin
Viktor Jústsjenkó
(hlynntur samstarfi við
Vesturlönd) kjörinn forseti
Rússar skrúfa fyrir gasið
Viktor Janúkóvítsj
(hlynntur Rússlandi)
kjörinn forseti
Fjöldamótmæli hófust
þegar Janúkóvítsj
sleit viðræðum um
aukið samstarf við
Evrópusambandið og styrkti
tengslin við Rússland
Janúkóvítsj steypt af stóli.
Þjóðernissinnar mynduðu
bráðabirgðastjórn. Krím-
skagi innlimaður í Rússland.
Lýst yfir aðskilnaði austur-
héraða (Donetsk og Luhansk)
Petró Porosénkó
(hlynntur samstarfi við
Vesturlönd) kjörinn forseti
Þingkosningar
haldnar
1o 175o144o
Danmörk,
Nýja-Sjáland
Úkraína,
Nígería
N-Kórea
Sómalía
Afganistan
Spilling í samanburði við
önnur lönd 21
10
3,7
Innlimun Krím-
skaga í Rússland
Aðskilnaður
austurhéraða
(Donetsk, Luhansk
og Kharkiv)
Minni útflutningur
til Rússlands
Hagvöxtur
af gasinu sem notað
er í Úkraínu koma
frá Rússlandi
420
milljarðar
180 til 200 milljarðar kr.
1991
2004
2009
2010
2013
2014
25. maí
26. okt.
Stærð landsins
Íbúafjöldi
45,6
milljónir
(2012)
-8
-6
-4
-2
0
2
4
2019*2015*2014*2013
Fjöldi atvinnulausra
4,5
1,0
-6.5
0,0%
í %
(2013)
4
6
8
10
12
2015*2014*2013
*Spá
*Spá
Framleiðsla á mann
603.700 km2
(að Krímskaga
meðtöldum)
3.960 dollarar
(477.000 krónur)
(2013)
7,2%
9,810,0
(í %)
(í febrúar sl.)
króna í
vanskilum
er aukakostnaður Úkraínu á ári
vegna verðhækkunarinnar
Prósenta rússnesku-
mælandi íbúa
Gasleiðslur
0 25 50 75 100
200 km
KÆNU-
GARÐUR
Svartahaf
Donetsk*
Luhansk*
Krím*
Kharkiv
ÚKRAÍNA
Odessa
Sebastopol
Lviv
HVÍTA-RÚSSLAND
PÓLLAND RÚSSLAND
RÚMENÍA
M
O
LD
Ó
VAU
N
G
V
ER
JA
L.
58%
Stjórnmálaskýrendur í Úkraínu spá
miklum breytingum á þingi landsins
í kosningunum á sunnudaginn kem-
ur. „Þetta er í fyrsta skipti sem
stuðningsmenn Evrópusambandsins
eru í meirihluta meðal kjósendanna í
Úkraínu frá því að landið fékk sjálf-
stæði,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Vadym Karasjov, sérfræðingi í
úkraínskum stjórnmálum.
Stjórnmálaskýrandinn Mykhaílo
Pohrebinskí telur hugsanlegt að á
þinginu verði enginn flokkur sem
beiti sér fyrir auknu samstarfi við
Rússland frekar en Evrópusam-
bandið. „Það gæti hins vegar hafist
keppni milli flokkanna um hver
þeirra sé þjóðhollastur og mesti
óvinur Rússlands,“ hefur fréttaveit-
an Reuters eftir honum.
Aðskilnaðarsinnar, sem hafa lýst
yfir sjálfstæði á yfirráðasvæðum sín-
um í Austur-Úkraínu, sniðganga
þingkosningarnar og hafa boðað til
kosninga á svæðum sínum í byrjun
næsta mánaðar. Markmið þeirra er
að austurhéruðin, sem þeir nefna
Nýja-Rússland, verði innlimuð í
Rússland, eins og Krímskagi fyrr á
árinu.
Keppst um að vera
mesti óvinur Rússa?
AFP
Kosið í skugga átaka Börn leika sér á brynvagni sem náðist af aðskiln-
aðarsinnum í Austur-Úkraínu og er nú til sýnis í miðborg Kænugarðs.