Morgunblaðið - 23.10.2014, Page 80

Morgunblaðið - 23.10.2014, Page 80
80 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 JÓLAtónleikar háttinn á og á tónleikunum í Hofi. Pálmi syngur lög sem hann er hvað þekktastur fyrir í bland við annað efni, lög sem fólk þekkir og elskar. Svo flytjum við þekktar perlur eins og Jólaköttinn og Hin fyrstu jól eft- ir Ingibjörgu Þorbergs og Jóla jóla- svein eftir Röggu Gísla. Jafnframt syng ég lög eftir mig, til dæmis Jólakveðju og Klukkur klingja, sem er afskaplega ánægjulegt.“ Eru jólin alltaf tími tilhlökkunar? „Ég var áður mikið jólabarn. Svo breyttist ég í jólaskrögg og fann mig í því hlutverki í nokkur ár, en núna, eftir að ég eignaðist litla strákinn minn, Gunnar Magnús, fyrir tveimur árum er ég aftur að verða jóla- barn. Mér finnst þetta flottur árstími og nátt- úran er svo falleg, en ég þoli ekki allt kaup- æðið og eyðsluna sem fylgir jólunum. Ég strauja yfirleitt kred- itkortið og tæmi alla sjóði á síðustu stundu og má ekkert vera að því að búa til flottar sultur eða konfekt til að gefa, eins og væri mest í anda jólanna. Hvað þá að kaupa dót á út- sölum og sýna einhverja fyrir- hyggju. Ég enda alltaf á því að kaupa alltof dýrar gjafir í fljótfærni handa mínum nánustu, nema ein- hverjir fá alltaf bækur. En mér finnst gaman að skreyta og kveikja á kertum og pakka inn gjöfum á Þorláksmessu. Skemmti- legast er að sjá litlu börnin í jólaföt- unum sínum og einlæga gleði þeirra þegar þau leika sér með gjafirnar og fá að smakka Nóa-konfekt og Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is É g hlakka mikið til að syngja með Pálma, rödd Íslands eins og ég kalla hann, sem tónlistarunnendur þekkja svo vel,“ segir söngkonan Ragn- heiður Gröndal, en hún kemur fram með Pálma Gunnarssyni á tónleik- unum Gleði og friðarjól í Eldborg- arsal Hörpu laugardaginn 20. des- ember. „Pálmi hélt þessa tónleika fyrst í fyrra í Hofi á Akureyri og bauð mér þá að koma fram sem gestur. Við náðum strax vel saman og höfum unnið mikið saman allt þetta ár; Pálmi leikur meðal annars á bassa á nýju plötunni minni og syngur með mér í einu laganna, og ég er mjög stolt af því.“ Sérstakir gestir tónleikanna Gleði og friðarjól verða þrjú börn Pálma; Sigurður Helgi, Ragnheiður Helga og Ninna Rún, sem öll hafa erft sönghæfileikana frá föður sín- um. „Þau eru öll miklir mús- íktalentar og mér finnst mjög gam- an að koma fram með þeim. Svo eru atvinnumenn í hljómsveitinni, sem leidd er af Þóri Úlfarssyni. Einnig verðum við með blandaðan kór með okkur og tólf manna strengjasveit, svo þetta verður sannkallað eyrna- konfekt. Og til að sem flestir geti notið verða tvennir tónleikar hinn 20. desember, klukkan 17 og 21.“ Þekktar jólaperlur Spurð út í dagskrá jólatón- leikanna segir Ragnheiður lögin sambland af þekktum jólaperlum, meðal annars bæði úr hennar smiðju og Pálma. „Við höfum sama jólaöl. Svo finnst mér alltaf æðisleg stemning í hádeginu á aðfangadag en þá förum við til mömmu og pabba í flatkökur með hangikjöti.“ Þrítugsafmælissöngur Nýja platan og verkefnin fram- undan? „Það er afskaplega margt fram- undan og ég horfi bjartsýn og full tilhlökkunar fram á veginn. Jólin eru alltaf mjög annasamur tími hjá mér, ég hef því satt að segja engan tíma fyrir tiltekt eða sörubakstur. Næsta verkefni sem ég fer í er Óskalög þjóðarinnar en þar flyt ég lag Magnúsar Þórs, Ísland er land þitt, sem Pálmi vin- ur minn söng ein- mitt upphaflega. Svo eru það Fleetwood Mac- tónleikar í Hörpu í lok október þar sem ég kem fram ásamt ýmsu góðu fólki. Eftir það tekur við tveggja vikna tón- leikaferðalag um Þýskaland til að kynna áttundu sóló- plötuna mína, Svefnljóð, og Pálmi bassaleikari verður með mér úti hluta af tímanum. Ég hafði svo hugsað mér að halda afmælistónleika 15. desember, en þá verð ég 30 ára. Á aðventunni held ég nokkra jólatónleika með vinum mínum Svavari Knúti og Kristjönu Stefánsdóttur og loks ætla ég að syngja með Jólagestum, á jólatónleikum Björgvins Halldórs- sonar. Það má því eiginlega segja að Íslendingar fái góðan skammt af mér þetta árið.“ Enginn tími fyrir til- tekt eða sörubakstur  Söngkonan Ragnheiður Gröndal stígur aftur á svið með Pálma Gunnarssyni á tónleikunum Gleði og friðarjól í Hörpu  Hún er stolt af samstarfi þeirra á árinu, meðal annars við gerð áttundu sólóplötu hennar Svefnljóð sem kemur út á næstu vikum Við verðum með blandaðan kór með okkur og tólf manna strengja- sveit, svo þetta verður sannkallað eyrnakonfekt Vinsæll „Pálmi Gunnarsson hélt þessa tónleika fyrst í fyrra í Hofi á Ak- ureyri og bauð mér þá að koma fram sem gestur,“ segir Ragnheiður. VELKOMIN Á TAPASHÚSIÐ FISK LOVER/FISH LOVER 5.750 KR. Skelfisksúpan okkar... Bláskel, leturhumar, tómatur Skötuselur & steiktur leturhumar... graskersmauk, fennika, beikonfroða Créme brulée, daim súkkulaði, rifsber, marengs SURF & TURF 7.200 KR. Hægelduð bleikja... Reykt majónes, rúgbrauð, fennika Sojamarineraður túnfiskur... geitaostur, hnetusósa, agúrka Tapas nautapiparsteik & steiktur leturhumar... béarnaise Súkkulaðikaka... reese´s pieces, jarðaber, rjómaís HJÁ OKKUR ER OPIÐ Í HÁDEGINU OG LANGT FRAM Á KVÖLD TAPASHOUSE - ÆGISGARÐUR 2 - SÓLFELLSHÚSIÐ - 101 REYKJAVÍK +354 512 81 81 - INFO@TAPASHOUSE.IS - WWW.TAPASHOUSE.IS Lifandi tónlist fimmtudag og föstudag Stuð og einstök stemning Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is Upplýsingar í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is Hugarlausnir Hentar fólki sem glímir við þunglyndi, kvíða eða streitu. • Hefst 28. október • Þjálfun samkvæmt forskrift hreyfiseðils í 8 vikur • Þri. ogfim. kl. 18:30 laugard.kl.10:00 • Fyrirlestrar og viðtal við sálfr. • Hópmeðferð í núvitund Umsjón: Sigrún Á. Þórðardóttir, sálfr., Elva BráAðalsteinsdóttir, sálfr. ogGuðniHeiðarValentínusson, heilsufr. Stoðkerfislausnir Henta þeim sem eru með einkenni frá stoðkerfi, vilja læra á sjálfan sig og finna sín mörk í hreyfingu. • Hefst 27. og 28. okt - 8 vikur • 2x í viku: Þri. ogfim. kl. 16:30 • 3x í viku: Mán.,mið. og fös. kl. 15:00 • Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara Þjálfarar Anna Borg og Arna Steinarsdóttir, sjúkraþjálfarar Orkulausnir Henta þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda. Hentar vel þeim sem vilja byggja upp orku vegna vefjagigtar eða eftir veikindi. • Hefst 28. október - 8 vikur • Þri. og fim. kl. 10:00 eða 15:00 • Framhaldsnámskeið sömu dagakl. 14:00 • Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing Þjálfari: Linda Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari Eitthvað fyrir alla! Lausnina finnur þú í Heilsuborg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.