Morgunblaðið - 23.10.2014, Page 83
83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
arsson spilar á gítar og Matthías
Hemstock mannar trommusettið. Til
viðbótar verða fimm framúrskarandi
blásarar.
Sigríður segir tónleikagestum
boðið upp á hugljúfa og rólega jóla-
tónlist og mikið af frumsömdum lög-
um. „Lögin á minni jólaplötu koma
t.d. úr smiðju þierra Guðmundar
Óskars og Bjarna Frímanns sem
tóku sig til og sömdu nýja tónlist við
lítt þekkt ljóð eftir íslensk skáld.
Þetta eru ekki textar sem fjalla um
hangikjöt eða jólasveina, hopp og hí
og dansa í kringum jólatréð, en í fal-
legum kvæðunum koma fyrir vísanir
hér og þar í jól og gleði, engla eða
kertaljós á dimmum vetri.“
Að sögn Sigríðar er hugmyndin að
þessum stóru tónleikum raunar frá
Guðmundi komin og kviknaði um
mitt sumar. „Mér fannst það óneit-
anlega svolítið fáránlegt að fá símtal
í sumarhitanum í ágúst um hvort ég
væri ekki til í risastóra jólatónleika í
Hörpu. Jólin virtust þá svo óralangt
í burtu og hugmyndin eitthvað svo
stór og rugluð,“ segir hún og hlær.
Jólasöngvar að sumri
Sigríður segir bæði skemmtilegt
en líka súrrealískt að gefa út jóla-
plötu. Útgáfan hafi langan aðdrag-
anda og ekki óalgengt að upptökur
fari fram um mitt sumar. Það geti
verið mjög undarleg upplifun að æfa
„Heims um ból“ um miðjan júlí.
Hversu vel platan selst eða hversu
mikið lögin eru spiluð í útvarpi fylgir
líka öðrum lögmálum en venjuleg
plötuútgáfa. „Sölutími jólatónlistar
er örstuttur, varla nema mánuður á
hverju ári, en plöturnar lifa margar í
áraraðir. Ef vel tekst til verður til
nostalgísk tenging milli hlustenda
og lagsins sem þeir heyra bara á
þessum árstíma og tengja við að nú
sé ánægjulegur jólatími að ganga í
garð.“
Hún gantast með að oft geti þessi
fortíðarþrá tekið á sig undarlegustu
myndir. Nefnir Sigríður vinsælt ís-
lenskt jólalag sem henni þykir af-
skaplega leiðinleg tónsmíð. „En um
leið kemst ég ekki hjá því að láta
þetta lag kalla fram ljúfar minningar
um jólin og minna mig á hvaða hátíð
er á næsta leiti.“
Þótt nóvember sé ekki enn geng-
inn í garð er ekki seinna vænna fyrir
Sigríði að byrja að huga að
jólaundirbúningnum. Starfi tónlist-
armannsins fylgir nefnilega oft auk-
ið vinnuálag í desember. Hún segir
þetta ánægjulegan tíma og gaman
að vera á ferðinni og syngja hér og
þar, nánast sem boðberi jólaandans.
„Um leið verður maður að gæta þess
að bóka ekki of mikið af tónleikum
og uppákomum, bæði til að hafa ein-
hvern tíma fyrir jólaundirbúninginn
og eins til að hafa örugglega gaman
af öllum jólasöngvunum út desem-
ber.“
Grætur ekki yfir pottunum
Segir Sigríður það hjálpa mjög til
að hún leggur ekki ofuráherslu á að
halda fullkomin jól. „Ég læt það ekki
svekkja mig þótt ég hafi ekki tíma til
að kaupa jólatré og skreyta eða baka
piparkökuhús. Ég gæti þess vita-
skuld að fá létta taugaveiklun á Þor-
láksmessu og þeysast á milli staða í
leit að síðustu gjöfunum en ég er
ekki eins og sumar húsmæður og
heimilisfeður sem eru grátandi yfir
pottunum ef sósan með jólasteikinni
er ekki alveg fullkomin.“
Morgunblaðið/Kristinn
Rómantík „Er fátt skemmtilegra en að gera stutt
hlé á jólastússinu, sitja í rólegheitum í notalegum
tónleikasal og hlusta á fallega jólatónlist,“ segir
Sigríður. Fólk á ferðinni á jólalegum Laugavegi.
Tónleikar Sigríðar og Sigurðar
verða af stærstu sort en Sigríður
reiknar ekki með að illa gangi að
fylla Eldborgarsalinn. Þannig
hafi Sigurður á síðasta ári haldið
jólatónleika fyrir fullu húsí í Há-
skólabíói.
Hún segir mjög ánægjulegt
hvernig framboðið á jóla-
tónleikum hefur vaxið á und-
anförnum árum og nú er svo kom-
ið að velja má úr aragrúa stórra
og smárra tónleika með alls kyns
áherslum. „Í huga margra Íslend-
inga er þetta orðið að ómissandi
parti af jólaundirbúningnum. Er
fátt skemmtilegra en að gera
stutt hlé á jólastússinu, sitja í ró-
legheitum í notalegum tónleikasal
og hlusta á fallega jólatónlist,
gleyma um stund streitunni og
komast í jólaskap.“
Tækifæri til að taka sér
frí frá jólastússinu
KULDASKÓR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 553 8050
STEINAR WAAGE - SMÁRALIND & KRINGLAN
WWW.SKOR.IS