Morgunblaðið - 23.10.2014, Síða 94
94 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa-Fjarðaáls, stendur í ströngu áafmælisdaginn. Þá verður unnið með samstarfsfólki í stefnu-mótun fyrirtækisins fyrir árið 2015. „Við erum með tíu ára
stefnu sem við förum yfir árlega og vorum nýlega að fara yfir
þriggja ára stefnumótun þar sem er farið nákvæmar yfir hlutina. Í
dag erum við svo að skilgreina hvað við stefnum á árið 2015. Við
nýtum slík tækifæri og borðum saman af þessu tilefni svo að ég kem
seint heim og get því lítið verið með fjölskyldunni á afmælisdaginn.
Við fjölskyldan héldum saman upp á afmælið í gær með matarboði.“
Janne er fædd og uppalin í Álaborg í Danmörku. Foreldrar henn-
ar eru Ruth Pedersen, en hún vann við húshjálp hjá öldruðum, og
Kristian Pedersen skipasmiður, en hann er látinn. Janne lærði
tölvuverkfræði í háskólanum í Álaborg og vann eftir skóla fyrir
hugbúnaðarfyrirtækið KMD og síðan hjá Siemens við forritun.
Janne kom fyrst til Íslands 1988, vann hér í fiski í eitt ár og kynntist
þá manninum sínum. Þau fluttu saman til Danmerkur en komu aftur
til Íslands fyrir níu árum.
En hvað er Janne að bardúsa fyrir utan vinnuna? „Nú er kominn
vetur hjá okkur og ég er því búin að leggja fjórhjólinu og pakka
veiðistönginni saman. Næsta verkefni er að klára að gera upp hús
dóttur okkar.“
Eiginmaður Janne er Magnús Sigurðsson múrari og rekur eigið
fyrirtæki. Börn þeirra eru Tenna Elísabet Magnúsdóttir 24 ára og
Ásbjörn Víking Magnússon 20 ára.
Janne Sigurðsson er 48 ára í dag
Morgunblaðið/Ómar
Forstjóri Alcoa Janne vinnur með stefnumótun fyrirtækisins fyrir
árið 2015 í dag og heldur upp á það með vinnufélögunum í kvöld.
Út að borða með
vinnunni í kvöld
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Björn Ari Sigurðarson
fæddist 23. apríl 2014 kl. 9.12.
Hann vó 4.065 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans eru Auður
Ósk Hlynsdóttir og Sigurður
Guðjónsson.
Nýir borgarar
Ásbrú Jökull Frosti Bergmann
Freysson fæddist 23. september
2014 kl. 1.07. Hann vó 3.232 g og
var 48 cm langur. Foreldrar hans
eru Ólöf Stefánsdóttir og Freyr
Bergmann Sigurbjörnsson.
S
tefán Reynir Gíslason
fæddist á Sauðárkróki
23. október 1954. Hann
ólst upp í Miðhúsum í
Akrahreppi í Skagafirði.
Hann fór á vertíð til Vest-
mannaeyja árin 1972 og 1974, vann
sem vörubílstjóri hjá vöruflutninga-
fyrirtæki sem hann átti og starfaði
einnig sem mjólkurbílstjóri um
tíma.
Stefán fór snemma að spila og
lék á böllum og við ýmis tækifæri
frá ellefu ára aldri. Hann var í
nokkrum hljómsveitum og í tónlist-
arnámi samhliða því.
Hann stundaði fyrst nám við
Tónlistarskóla Skagafjarðar og síð-
ar við Tónlistarskóla Akureyrar og
Tónskóla þjóðkirkjunnar. Þar tók
hann lokapróf, m.a. í kórstjórn og
raddþjálfun. Árið 1991 tók Stefán
einleikarapróf í orgelleik.
Stefán Reynir Gíslason, aðstoðarskólastj. og kórstjóri – 60 ára
Fjölskyldan Stefán ásamt konu sinni Margréti og dætrum þeirra, Söru, Berglindi og Höllu, eftir tónleika þar sem
hann stjórnaði Karlakórnum Heimi á sviði Eldborgar í Hörpu síðastliðið vor.
Hefur stjórnað Karla-
kórnum Heimi í 30 ár
Með barnabörnunum Stefán ásamt Stefán Rafni og Árna Degi.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is