Stígandi - 01.04.1945, Side 78
.172
BÚENDATAL SANDS í AÐALDAL
STÍGANDI
Vigfús Ólafsson — mun þá búa í Miðhvammi, faðir Hallfríðar,
konu Péturs á Fjalli, Helgasonar.
Arni Björnsson — frá Laxamýri, sá er langa ævi bjó í Haga og
er þar enn á líli hjá Bergþóri bónda, syni sínum, 1703, 97 ára,
elztur allra Pingeyinga manntalsárið.
Helgi Illugason — á Fjalli. —
Arnþór Ólajsson. Enginn eli er á því, að hér er Arnþór á Sandi
í eigin persónu. Fæst þar með full sönnun fyrir föðurnafni hans
og svo hinUj að hann er enn á lífi og ern maður, ferðafær, 24.
maí 1680.
Það, sent verið hefir við að styðjast í framanskráðri ádrepu,
er þetta aðallega:
1. Munnmæli um galdra- og kunnáttumanninn Arnþór á Sandi,
er öll bendla hann við þá jörð. Sbr. Þjóðs. Jóns Árnasonar,
og víðar.
2. Ættartölugrein, er telur Arnþór bróður Elínar á Fjalli.
3. Sögn Þorláks Jónssonar á Sandi, að hann væri þriðji búandi
þar eftir Arnþór.
4. Manntalið 1703, er af verður ráðið, hvenær Elín hafi uppi ver-
ið, systir Arnþórs.
5. Tíundarlistinn frá 1688.
6. Héðinshöfðabréfið 1680, er geymir nafn Arnþórs, líklega
ritað eigin liendi.
Þrátt fyrir þá vitneskju, sem fengizt hefir um Arnþór Ólafsson
á Sandi, er ókunnugt um konu hans, hafi hún nokkur verið, og
svo það, hvort liann hafi látið el’tir sig nokkra niðja. Árið 1703
eru í Þingeyjarsýslu aðeins tveir unglingsmenn með Arnþórs-
nafni: Arnþór Ulugason í Skörðum, 17 ára, sonarsonur Elínar á
Fjalli, og Arnþór Ólafsson á Syðra-Fjalli, 16 ára, dóttursonur
Elínar. Sennilega fæddir unr ]rað leyti senr Arnþór á Sandi deyr,
og bera lrans nafn. Þá eru og í Þingeyjarsýslu fyrrnefnt ár aðeins
tvö Arnþórsbörn: Guðrún Arnþórsdóttir, vinnukona í Kaldbak,
35 ára, og Guðrún Arnþórsdóttir, vinnukona í Húsavík, 22 ára.
Ég tel líklegt, að Guðrún í Kaldbak sé dóttir Arnþórs á Sandi.
og hugsanlegt um hina líka. Um Guðrúnir þessar er annars öld-
ungis ókunnugt. Frh.