Læknablaðið - 15.01.2005, Síða 9
RITSTJÓRIUARGREIIUAR
Læknablaðið nírætt
i
Læknablaðið hefur nú náð sjaldgæfum áfanga í út-
gáfumálum hérlendis, en einungis Skírnir - Tímarit
hins íslenska bókmenntafélags (1827), elsta tímarit
á Norðurlöndum, Morgunblaðið (1913) og tvö af rit-
um Bændasamtakanna, Búnaðarritið og Freyr (1904)
hafa lengri samfellda útgáfusögu. Því er vel við hæfi
að tileinka Læknablaðinu þetta hefti og rifja upp
markverð greinaskrif úr sögu þess.
Upphaf útgáfu Læknablaðsins má rekja til félags-
funda í Læknafélagi Reykjavíkur sem stofnað var
1909. A þeim tímum voru allflestir læknar áskrifend-
ur að erlendum fagtímaritum. Upplýsingar um það
sem markverðast var á íslandi í læknisfræðinni kom-
ust illa til skila, einkum til lækna utan Reykjavíkur.
Héraðslæknar áttu sjaldan heimangengt frá héruðum
sínum og því skapaðist þörf fyrir sameiginlegan miðil
um læknisfræði og félagsmál meðal íslenskra lækna.
Upphaf tuttugustu aldarinnar einkenndist á íslandi
af ríkri sjálfstæðiskennd, bjartsýni og stórhuga fram-
kvæmdaáformum. Hið óljósa valda- og vopnabrölt í
Evrópu virtist alls ekki þjaka menn hér á landi. Þvf
var á félagsfundi í LR á árinu 1914 ákveðin bind-
andi könnun meðal allra lækna á íslandi um stofnun
Læknablaðs. Bréf bárust frá 24 læknum sem allir voru
eindregnir stuðningsmenn þessa og var á félagsfundi
LR þann 20. janúar 1915 því samþykkt stofnun lækna-
blaðs. I ritstjórn voru kosnir þeir Guðmundur Hann-
esson sem áður hafði gefið út handritað læknablað
á Akureyri árin 1901-1904, Matthías Einarsson og
Maggi Júl. Magnús. Læknafélag íslands kom að út-
gáfunni frá og með 1. tölublaði 1955 og þannig skipa
nú formenn Læknafélags Reykjavíkur og Læknafé-
lags íslands útgáfustjórn ásamt ritstjóra blaðsins.
Læknablaðið hefur frá upphafi miðlað læknum
alhliða fræðslu um allt sem viðkemur starfi þeirra,
hvort sem um sjúkdóma ellegar sjúkdómavarnir varð-
ar. Greinar þær sem ritrýnendur hafa valið í þetta
afmælisblað eru áhugaverðar fyrir þær sakir að þær
taka til íslenskra staðhátta. í stórum hluta Lækna-
blaðsins hefur þó á hverjum tíma verið fjallað um
aðra þætti sem tengja lækna böndum og er ekki síður
áhugavert að lesa þær greinar.
Þegar ég fletti fyrstu blöðum útgáfunnar varð mér
hugsað til þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á
íslensku þjóðlífi á liðinni öld. I upphafi tuttugustu
aldarinnar voru læknar fáir og dreifðust um sveitir
landsins. I greinaskrifum þess tíma kemur fram að
búnaður lækna og sjúklinga var víða bágborinn. Bú-
staðir héraðslækna voru vanbúnir og stundum voru
þeim úthlutaðar lakar bújarðir, kjör þeirra slík að
læknirinn drýgði tekjur sínar af hefðbundnum bú-
skap. Sjúkrahús voru fá og sérhæft hjúkrunarfólk
ófáanlegt til sveita. Fljótlega komu því fram tillögur
um aðbúnað lækna í starfi, fyrstu staðlarnir tóku að
líta dagsins ljós og læknar rituðu um nauðsyn hjúkr-
unarstarfa. I grein sinni Tuto, cito et jucunde! ritar
Steingrímur Matthíasson í aprflhefti Læknablaðsins
1915 um vitjanir og ferðalög lækna: Eg hefi oft fundið
sáran til þess, hversu það er illa samrýmanlegt, að fást
við áhyggjusamar óperatíónir, og eiga svo að þeytast
á illgengum jálkum í ófærð og kulda langar leiðir, og
til lítils gagns oft og tíðum. Steingrímur ræðir í öf-
undartón um Þórð kollega í Rönne sem þeysist um
Borgundarhólm á mótor-hjólhesti en kvartar undan
þeirri tímaeyðslu sem felst í löngum ferðalögum á lé-
legum reiðskjótum: Síðan eg eignaðist góðan hest,
finn eg betur til þess en áður, hvflíkur heilsuspillir þar
er, að sitja á húðarklárum, eins og oft er vant að setja
undir lækna. Við vitjanir í íslenskri stórhríð þá dugar
að mati Steingríms lítt nema Mývatnshettan og þar
sem það þarf sterk augu til að þola að riðið sé langt
móti stormi og úrkomu þá mælti hann með hlífðar-
gleraugum þeim sem Andrés Fjeldsted læknir kenndi
kollegum hér á landi að nota, en voru talin þarfaþing
erlendis í bifreiðum og flugvélum. Gaman væri að fá
Steingrím endurborinn í jeppaferð á jökli með okkur
kollegunum.
Guðmundur Björnsson landlæknir mun fyrstur ís-
lendinga hafa tekið upp ættarnafn eftir að umdeild lög
frá Alþingi tóku gildi í ársbyrjun 1915. Breytti hann
nafni sínu í Björnson og var það skráð þann 19. mars
það sama ár. Því eru fyrstu greinar hans í Læknablað-
inu ritaðar áður en hann tapaði essi sínu. í byrjun árs
1916 ritar hann um tafir á útgáfu heilbrigðisskýrslna.
Þar greinir hann frá vanda skýrslugerðar en dánar-
skýrslur munu fyrst hafa farið að berast landlækni eft-
ir að Hagstofan tók til starfa í byrjun árs 1914. Greini-
legt er af skrifum hans að hið opinbera stjórnkerfi
hefur ekki verið ýkja frábrugðið því sem við þekkjum
í dag: annríki, seinagangur, misfellur og lélegar heimt-
ur einkenndu skýrslugerðina. Eyðublöðum virðist þá
illu heilli verið að fjölga þannig að landlæknir grípur
til þess ráðs að senda öllum héraðslæknum prentaða
skrá yfir öll þau eyðublöð og bæklinga sem þeir þurfa
að biðja um. Verður það stór hægðarauki fyrir þá og
mig. Þó má merkja í niðurlagi greinarinnar að land-
lækni þyki sumir læknar trassa skýrslugerð og virðist
lítt hafa breyst í þeim efnum.
Óskar Einarsson
Höfundur er formaður
Læknafélags Reykjavíkur.
Læknablaðið 2005/91 9