Læknablaðið - 15.01.2005, Síða 21
1 915-1 924 / RADÍUMLÆKNINGAR
Vel verða menn að muna að áhrif radíums eru ein-
göngu local og geta því ekki náð að eyða nema þeim
metastaser sem nálægt eru utereus eða vagina. Af
þeim tölum sem tilfærðar hafa verið geta menn skilið
að líðan sjúkl. getur verið tiltölulega góð þó sjúkdóm-
urinn dragi til dauða. Ulcera öll geta gróið en sjúkl.
dáið af anæmi og intoxicatio vegna innvortis metast-
aser.
Sú spurning hefir auðvitað vaknað hvort ekki gæti
komið til mála að operera ekki þar sem það þó ann-
ars er hægt en nota radíum í staðinn. Forssell hefir
ekki árætt að taka til meðferðar sjúklinga sem hægt
er að skera nema sjúkl. hafi færst undan operatio. En
þýsku skurðlæknarnir Krönig, Döderlein og Bumm
eru farnir að nota radíum við operabel sjúklinga og
verður mjög fróðlegt að vita hver árangurinn verður.
C. recti. Árangurinn er mjög misjafn við c. recti því
tumores á þessum stað virðist mjög misjafnlega næm-
ir gagnvart radíum. Tekist hefir að lækna sjúkdóminn
að fullu og líka að græða ulcera cancrosa í rectum þótt
metastaser hafi dregið sjúklinginn til dauða. Stundum
er árangurinn lítill eða enginn.
„Teknik“ við radíumlækningar er ýmsum erfið-
leikum bundin. Áhrif geislanna eru algerlega „loc-
al“ og ná skammt frá efninu; radíum verður því að
koma fyrir með mikilli nákvæmni. Venjulega er það
haft í hylkjum, ca. 2-3 cm. á lengd og álíka og gildur
bandprjónn, eða á lakk- eða gúmmíplötu. Plöturnar
eru sérstaklega notaðar þegar radíum er komið fyr-
ir á yfirborði líkamans en hylkin látin í holrúm, t.d.
uterus og rectum. Við c. uteri eru radíumhylkin færð
inn í uterus eða lacunar og tamponade í vagina; liggur
það í ca. 1 sólarhring. Miklum erfiðleikum getur verið
bundið að koma radíum fyrir í munni eða koki því
sjúkl. er hætt við klígju og uppsölu. Stokkhólmslækn-
arnir hafa fundið þá leið að búa til „prothese“ sem
hylkin eru fest í. Við c. lingvæ er t.d. tekin nákvæm
afsteypa af sulcus alveolo-lingvalis og nærliggjandi
svæði með gúmmí og brædd þar í radíumhylkin. Ef
„prothesen“ fellur alls staðar vel að má t.d. lánast
að hafa radíum allt upp í sólarhring við tunguna án
reglulegra óþæginda fyrir sjúklinginn.
Hvort er betra til lækninga radíum- eða röntgen-
geislar? Þessari spurningu er stundum kastað fram.
Yfirburðir radíums eru m.a. þeir að því má koma fyrir
í uterus, rectum, nasopharynx og os og oft geisla tum-
ores frá fleiri hliðum en einni. Alveg sérstök eru áhrif
radíums á vasa og byggist á þeim angiom-lækningin.
Röntgengeislar hafa svo sína yfirburði á öðrum svið-
um. Flestir geislalæknar leggja áherslu á að nota bæði
radíum- og röntgengeisla við illkynjaða tumores. Er
m.a. mikið gert af geislunum eftir exstirpatio á mein-
semdunum, t.d. við c. mammæ o.fl.
Heimildir
Riis: Radium, del vidunderligea Stof.
K. Meyer: Radium og radioactive Stoffer.
Nord. Tidsskrift f. Therapie 1917.
Strahlentherapie 1917 og 1918.
Tekniska föreningens i Finland förhandlingar, júní 1917.
Myndirnar sýna sjúkl. undan og eftir radíumlækning. Nr. 1-2
cancer faciei. Nr. 3-4 angioma faciei. Nr. 5-6 sama. Nr. 7-8
epithelioma exulcerans auriculæ et genæ.
Eftir fyrirlesturinn var sýndur fjöldi skuggamynda af sjúk-
lingum, aðallega með radíumlæknuð angiom og illkynjaða
tumores.
Læknablaðið 2005/91 21