Læknablaðið - 15.01.2005, Page 64
1 965-1974 / SVÆSINN HÁÞRÝSTINGUR
Mynd 5. Mynd 6.
Eins og fyrr getur var þessi sjúklingahópur ósam-
stæður að nokkru leyti og verður því farið varlega í
að draga ályktanir af þeim niðurstöðum sem hér hafa
komið í ljós. Við samanburð við erlendar rannsóknir
á afdrifum háþrýstingssjúklinga verður að hafa í huga
að um mismunandi sjúklingahópa, a.m.k. að einhverju
leyti, er að ræða og stundum er sérkenna þeirra hópa
sem rannsakaðir voru að litlu eða engu getið. Ekki er
vitað til þess að fyrri íslenskar rannsóknir hafi birst
um þetta efni.
Athyglisverð er hlutfallsleg fækkun á sjúklingum
með svæsinn háþrýsting á síðasta 5 ára tímabilinu,
þ.e. 1967-1971. Skýringar á þessu verða ekki raktar til
breytinga á innlagningum vegna tilkomu taugadeild-
ar Landspítala (sbr. bls. 24*). Vaktafyrirkomulag á
Reykjavíkursvæðinu hefur haldist óbreytt á þeim
tíma sem rannsóknin náði til. Þess vegna þarf ekki
að ætla að sjúklingar með svæsinn háþrýsting hafi
frekar vistast á öðrum spítölum en Landspítalanum
á síðasta 5 ára tímabilinu. Sívaxandi fjöldi þeirra sem
fengu greininguna háþrýstingur á lyflækningadeild-
um á þessum tíma mælir einnig gegn slíkri skýringu.
Líklegast er að hin síðari ár komist færri háþrýstings-
sjúklingar á svæsna stigið en áður. Ástæður fyrir því
gætu m.a. verið að til hafi komið betri greining og
virkari meðferð gegn nýrnasýkingum en áður þekkt-
ist, t.d. með bættri rannsóknartækni og nýjum sýkla-
lyfjum. Einnig er líklegt að vaxandi áhugi á og virkari
meðferð og eftirlit með vægari stigum háþrýstings
Mynd 7.
valdi hér nokkru um enda þótt slíkt verði ekki fullyrt
með vissu. Á síðari árum hefur því verið veitt athygli
að orðið hefur fækkun á svæsnum háþrýstingssjúk-
lingum samkvæmt rannsóknum á Nýja-Sjálandi (13)
og í Englandi (4). Talið er að e.t.v. komist háþrýst-
ingssjúklingar fyrr undir læknishendur en áður var.
Meirihluti sjúklinganna hafði hækkað blóðurea
(5=40 mg%) við greiningu og var það sérstaklega
áberandi hjá IV. stigs sjúklingum og marktækur mun-
ur í þessu efni á III. og IV. stigi. Vitað er að hrað-
vaxandi nýrnabilun gerir oft vart við sig ef svæsinn
háþrýstingur er ómeðhöndlaður eða vanmeðhöndl-
aður. Horfur eru einnig verri hjá sjúklingum sem hafa
hækkað blóðurea við greiningu. Kom það einnig í ljós
í þessari rannsókn.
Tiltölulega færri (43,6%) en búist hafði verið við
höfðu greinileg merki á hjartarafriti um stækkun á
vinstri slegli. Búast mætti við að flestir með svo svæs-
inn háþrýsting eins og hér er fjallað um hafi í raun
stækkaðan vinstri slegil, en dýratilraunir hafa sýnt að
stækkun gerir fljótt vart við sig við verulega hækk-
aðan þrýsting. Við nýlega rannsókn í Englandi (5) á
háþrýstingssjúklingum sem voru yfirleitt með vægari
háþrýsting en hópurinn sem hér var athugaður voru
fleiri taldir hafa vinstri slegilsstækkun. Þar var ein-
göngu stuðst við QRS útslög (voltage criteria). Lík-
legt er að þau hjartarafritseinkenni sem stuðst var við
í rannsókn okkar séu fullþröng. Ætla mætti að þessi
einkenni (þ.e. stór QRS útslög + áreynslubreyting)
* Brynjólfur Ingvarsson. Inn-
lagningar vegna geðrænna
sjúkdóma á lyfjadeild FSA
1954-1972. Um framtíðar-
þróun geðlækninga á Akur-
eyri. Læknablaðið 1974; 60:
21-7.
64 Læknablaðið 2005/91