Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2005, Side 73

Læknablaðið - 15.01.2005, Side 73
1 975-1984 / BERKLAVEIKI Fig. 1. Organization of tuberculosis control in Ice- land after 1939. ið að útgjöld vegna berklavarna ríkisins hefðu numið 7,5% af ríkisútgjöldum (64). En þrátt fyrir hið mikla fé sem var varið til berklavarna óx fjöldi berklasjúk- linga stöðugt og um það bil fimmti hver landsmaður sem lést á þessum árum varð berklaveikinni að bráð. Allt fimm ára tímabilið 1926-30 hélst berkladauðinn mjög hár og tók ekki að lækka fyrr en eftir 1930 og þá hægt fyrst í stað. A hinn bóginn fjölgaði skráðum sjúklingum áfram. Árið 1933 var þannig fjöldi ný- skráðra sjúklinga mestur og taldist þá 9,8 miðað við 1000 íbúa. Hinn 31. des. 1935 voru skráðir 15,8 af þúsundi með virka berklaveiki, þ. e. 1,6% af íbúum landsins (allar tegundir sjúkdómsins). Þess ber þó að geta að skráningarreglur voru þá eigi fastmótaðar. Þá var og talið að sjúkrarúmafjöldi fyrir berklasjúklinga á heilsuhælum og sjúkrahúsum væri 420 rúm, eða 3,6 miðað við 1000 landsmenn. Berklavarnastarfsemin skipulögd ■ varnaraðgerðir teknar upp virkari Árið 1935 ákvað Alþingi samkvæmt tillögu landlækn- is að ráða sérstakan lækni, berklayfirlækni ríkisins, er skyldi annast framkvæmd berklavarnanna í landinu. Fram til þessa höfðu berklavarnirnar nálega eingöngu miðast við það að einangra smitandi berklasjúklinga á sjúkrahúsum eða hælum og veita þeim þar þá lækn- ingu er föng voru á. í Læknafélagi íslands hafði því fyrir löngu verið hreyft að senda lækna út í berklasmit- uð og sýkt héruð landsins til þess að framkvæma þar berklapróf á heimilisfólki og aðrar frekari rannsókn- ir (14, 15, 11). Þá hafði og tillaga komið fram um að ráða til þess sérstakan lækni sem stjórnaði og hefði þeim í annað og árangursríkara horf. Um og upp úr 1930 varð æ ljósari sú staðreynd, sér- staklega í Norður-Evrópu, að fjöldi fólks sem stund- aði störf sín sem heilbrigt væri gat verið haldið virkri berklaveiki og jafnvel gengið með smit. Þetta varð enn ljósara eftir að farið var að gera röntgenrann- sóknir á hópum manna, einkum þeim er dvalið höfðu í umhverfi berklaveikra sjúklinga (97, 108, 98). Með því að vinna slfka sjúklinga vannst tvennt: Batahorfur þeirra breyttust mjög til hins betra, því fyrr sem tókst að koma þeim í viðeigandi meðferð, og jafnframt var komið í veg fyrir frekari smitun frá þeim. Leið ekki á löngu uns heilbrigðisyfirvöld hér á landi tóku að færa sér þessar staðreyndir í nyt. Þannig var Jónasi Rafnar yfirlækni Kristneshælis falið árið 1932 að at- huga útbreiðslu berklaveiki í Húsavíkurhéraði en þar virtist sjúkdómurinn þá hafa náð mikilli útbreiðslu. Framkvæmdi Rafnar athugun sína vorið 1932 og fann marga berklasjúklinga án þess að geta þó stuðst við röntgenrannsókn (58). Rúmum tveimur árum síðar, eða haustið 1934, var samkvæmt ákvörðun heilbrigð- isstjórnarinnar (landlæknis) og að beiðni héraðslækn- is framkvæmd berklarannsókn á Raufarhöfn en þar hafði berklafaraldurs orðið vart á undanförnum árum (109). Við endurskipulagningu berklavarnanna 1935 var tekið tillit til þessara staðreynda. Til að byrja með var því aðaláhersla lögð á eftirtalda meginþætti: 1. Kerfisbundnar berklarannsóknir í þeim tilgangi að finna áður ókunna sjúklinga með virka berkla- veiki (106,107). Rannsóknirnar fóru fram með víðtækum berklaprófum og síðan röntgenrann- sóknum (gegnumlýsingum eða photoröntgen- Læknablaðið 2005/91 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.